Fréttablaðið - 21.05.2004, Side 55

Fréttablaðið - 21.05.2004, Side 55
FÓTBOLTI Nýliðar Keflvíkur eru komnir á topp Landsbankadeild karla með fullt hús stiga eftir 3-1 sigur á Íslandsmeisturum KR í Keflavík í gær. Meistarnir úr Vesturbænum sitja hins vegar í fallsæti án stiga eftir tvo fyrstu leikina. Keflvíkingar minntust þess í gær að 40 ár eru liðin síðan félag- ið varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti og kannski hafi ungu strákarnir í liðinu smitast af sig- urgleði Keflvíkinga fyrir 40 árum því þeir spiluðu eins og meis- taraefni gegn KR í gær. Keflavíkurliðið var mörgum gæðaflokkum ofar en liðið sem hefur unnið Íslandsmeistara- titilinn fjórum sinnum á síðustu fimm árum. KR-ingar fengu þó drauma- byrjun þegar Arnar Gunnlaugsson kom þeim yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik en líkt og gegn KA í fyrstu umferð missti hið unga lið Keflavíkur ekki móðinn og tók fljótlega frumkvæðið. Langbesti maður vallarins, Stefán Gíslason, jafnaði leikinn og staðan var 1–1 í hálfleik. Scott Ramsey kom síðan Keflavík yfir með marki beint úr aukaspyrnu og fékk síðan annað dauðafæri til að auka muninn en tókst ekki að skora. Þriðja markið skoraði hins vegar Hörður Sveinsson á lokamínútunum og kórónaði þar með frábæran sigur nýliðanna á meisturunum. Réðum ferðinni allan tímann Stefán Gíslason, sem var besti maður vallarins, var að vonum sáttur í leikslok þegar Fréttablaðið ræddi við hann. „Þetta var flottur leikur hjá okkur og mér fannst við í raun ráða ferðinni allan tímann. Í sjálfu sér fannst mér sigurinn aldrei í neinni hættu þrátt fyrir að við skyldum lenda undir strax í byrjun. Við vissum að það væri lítið sjálfstraust í KR-liðinu og ákváðum þess vegna að keyra á þá og það gekk eins og í sögu, sagði Stefán sem er bjartsýnn á framhaldið. „Það er mikið sjálfstraust í liðinu. Allir vilja fá boltann og hafa gaman af því sem þeir eru að gera. Við munum halda áfram að taka einn leik fyrir í einu en ef við spilum eins og við spiluðum í kvöld þá verðum við í topp- baráttunni. Það er klárt mál,“ sagði Stefán að lokum. Of margir menn ekki í leik- formi Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, var niðurlútur í leikslok og hafði þetta að segja um leikinn. „Við mættum mjög góðu liði og vissum að þetta yrði erfitt. Ég var sáttur við leik minna manna framan af en það er bara alltof dýrt að gefa þeim tvö mörk úr föstum leikatriðum. Staðan er þannig að við erum einfaldlega með of marga menn sem eru ekki komnir í leikform. Það tekur tíma að koma mannskapnum í form og við því er ekkert að gera. Ég tek það samt skýrt fram að ég er ekki nota þetta sem afsökun. Þeir sem eru inni á vellinum hverju sinni eiga að geta barist og unnið fyrir stigunum,“ sagði Willum Þór, sem situr með sitt í níunda sæti deild- darinnar. henry@frettabladid.is 43FÖSTUDAGUR 21. maí 2004 Karakter Keflavíkur Nýliðar Keflavík unnu KR, 3–1, í gær, sinn annan sigur í jafnmörgum leikjum eftir að hafa lent undir og komið til baka. Með sigrinum eru nýliðarnir komnir á toppinn í Landsbankadeild karla. notaðir bílarIngvarHelgason Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is Komdu í heimsókn til okkar á Sævarhöfða 2 og gerðu góð bílakaup fyrir sumarið. Sölumenn okkar taka vel á móti þér. Opið virka daga kl. 9–18 og laugardaga kl. 13–17. HJÁ INGVARI HELGASYNI STÓRÚTSALA Á NOTUÐUM BÍLUM F í t o n / S Í A F I 0 0 9 6 1 3 Úrslitaeinvígi Minnesota Timberwolves og LA Lakers í Vestudeild NBA í körfubolta: Risarnir á vesturströndinni hefja slaginn í kvöld KÖRFUBOLTI Núna eru liðin sex ár síðan að NBA-titillinn var á Aust- urströndinni og ljóst að Vestur- deildin hefur verið mikið mun sterkari undanfarin ár. Los Angel- es Lakers og San Antonio Spurs hafa skipt á milli sín titlinum síðan árið 1999 og líklegt er að engin breyting verði þar á í ár. Margir veðjuðu á að Lakers myndu hirða titilinn í ár en eftir slitrótt gengi í vetur urðu þær raddir háværari að það myndi ekki takast. Fyrir tímabilið fengu þeir tvo þrautreynda leikmenn, Karl Malone og Gary Payton, sem hafa báðir þráð titilinn og þótti liðið því sigurstranglegt með allar sínar stjörnur innanborðs. Lakers byrjaði úrslitakeppnina sterkt strax í fyrstu umferð, sló út Houston Rockets en tapaði svo fyrstu tveimur leikjunum á móti San Antonio í undanúrslitum vest- urdeildarinnar. Í stöðunni 2-0 af- skrifuðu flestir Lakers, enda að- eins sjö lið í sögunni sem hafa unn- ið seríu í úrslitakeppninni eftir að hafa verið í sömu stöðu. Shaquille O’Neal og félagar gerðu sér lítið fyrir og unnu næstu fjögur og hefndu sín þar með á Spurs sem að sló liðið út í fyrra. Fáir áttu von á að Lakers myndu ná að stöðva Tim Duncan og Tony Parker sem áttu báðir stórleiki í fyrstu tveimur leikjum seríunnar en annað kom á daginn og sigur Lakers staðreynd. Það verður ekki auðvelt fyrir Minnesota að fara í gegnum Los Angeles Lakers, ætli liðið sér alla leið í úrslitin. Timberwolves vann að vísu allar viðureignir liðanna í deildinni en það telur ekki þegar í úrslitarimmu er komið. Minnesota á að vísu heimaleikjaréttinn og gæti því komið á óvart, ef það nær að byrja sterkt. Ef stöðva skal hið reynslumikla lið Lakers verður liðið að finna leiðir til stoppa Shaquille O’Neal, en virðist Timberwolves ekki eiga nægilega sterkan leikmann sem gæti hugsanlega stöðvað tröllið. Svo má ekki gleyma Kobe Bryant, sem er einnig illstöðvanlegur ef sá gállinn er á honum. Breiddin er þar að auki meiri Lakers megin á meðan að Timberwolves keyra á færri mönnum. Einnig eru slæm tíðindi fyrir Minnesota-unnendur að Sam Cassell hefur átt við meiðsli að stríða en hann er liðinu mjög mikilvægur. Það er einna helst að sjálft Lakers gæti orðið til þess að rimm- an yrði jöfn. Liðið á til að detta niður í einhvern furðulegan forar- pytt og tapað ólíklegustu leikjum. Ef að þeir mæta með hausinn vel á skrúfaðan og þá sérstaklega Kobe Bryant, sem á það til að gleyma samherjum sínum á köflum, þá eru fá lið sem standast þeim snúning Fyrsti leikur í úrslitum vestur- deildarinnar fer fram í nótt. ■ SKIN OG SKÚRAR SUÐUR MEÐ SJÓ Í GÆR Á efri myndinni sjást Keflvíkingar fagna einu marka sinna í gær en á neðri myndinni sést Kristján Finnbogason, fyrirliði KR-inga, sitja niðurlútir eftir annað tap KR-inga í röð. BRYANT SÁTTUR MEÐ FÉLAGANA Kobe Bryant fagnar hér ásamt félögum sínum í LA Lakers eftir sigurinn á Spurs. KEFLAVÍK–KR 3–1 (1–1) 0–1 Arnar Gunnlaugsson 3. 1–1 Stefán Gíslason 24. 2–1 Scott Ramsey 60. 3–1 Hörður Sveinsson 90. DÓMARINN Erlendur Eiríksson Slakur BESTUR Á VELLINUM Stefán Gíslason Keflavík TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–5 (5–2) Horn 5–3 Aukaspyrnur fengnar 20–10 Rangstæður 6–0 Spjöld (rauð) 1–3 (0–0) FRÁBÆRIR Stefán Gíslason Keflavík MJÖG GÓÐIR Kristján Örn Sigurðsson KR GÓÐIR Stretan Djurovic Keflavík Haraldur Guðmundsson Keflavík Scott Ramsey Keflavík Zoran Daníel Ljubicic Keflavík Hólmar Örn Rúnarsson Keflavík Bjarni Þorsteinsson KR ■ Það sem skipti máli STAÐAN Í DEILDINNI Keflavík 2 2 0 0 5–2 6 Fram 2 1 1 0 4–1 4 FH 1 1 0 0 1–0 3 ÍBV 2 0 2 0 2–2 2 Grindavík 2 0 2 0 1–1 2 ÍA 2 0 2 0 1–1 2 Fylkir 1 0 1 0 1–1 1 KA 1 0 0 1 1–2 0 KR 2 0 0 2 1–4 0 Víkingur 1 0 0 1 0–3 0 MARKAHÆSTUR Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Fram 2 NÆSTU LEIKIR Víkingur–KA Í kvöld 20:00 Fylkir–FH Á morgun 17:00 Alan Smith, leikmaður Leeds, er eftirsóttur: Everton býður sjö milljónir punda FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildar- félagið Everton, hefur boðið Leeds sjö milljónir punda fyrir sóknarmanninn Alan Smith. Eins og knattspyrnuáhugamönnum er kunnugt um féll Leeds á dögunum úr ensku úrvalsdeildinni og þarf nauðsynlega að selja leikmenn til að bæta verulegan morkinn fjár- hag sinn. Þetta er ekki fyrsta tilboðið sem Leeds fær í Alan Smith en áður hafa bæði Manchester United og Liverpool boðið í hann en án árangurs. Þetta allt staðfesti forstjóri Leeds, Peter Lorrimer, og bætti við: „Þetta er nýjasta til- boðið í Alan Smith en við munum að sjálfsögðu reyna að fá sem mest fyrir hann.“ Umboðsmaður Alan Smith hef- ur látið hafa það eftir sér að piltur vilji helst af öllu ganga til liðs við Manchester United. ■ M YN D V ÍK U RF RÉ TT IR M YN D V ÍK U RF RÉ TT IR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.