Fréttablaðið - 21.05.2004, Qupperneq 56
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Norski kirkjukórinn Sofiemyr
kirkekor syngur á tónleikum í Selfoss-
kirkju ásamt Kirkjukór Selfoss.
20.30 Karlakór Eyjafjarðar heldur
tónleika í Akureyrarkirkju. Haraldur
Hauksson, Jónas Þór Jónasson, Stefán
Birgisson, Þór Sigurðsson og Petra B.
Pálsdóttir syngja einsöng. Daníel Þor-
steinsson leikur með á píanó, Birgir
Karlsson á gítar, Eiríkur Bóasson á
bassa og Rafn Sveinsson á trommur.
Stjórnandi er Petra Björk Pálsdóttir.
21.00 Viva vox, kammerkór dóm-
kirkjunnar í Helsinki, tónleika í Skálholts-
kirkju. Stjórnandi er Seppo Murto en
hann er dómorganisti í Helsinki.
44 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
Mig langaði til að byrja tón-leikana hér á því að syngja
og leyfa okkur að upplifa eitt af
stærstu og mestu tónskáldum
Rússlands, Mússorgskí,“ segir
Olga Borodina, mezzósópran,
sem söng í Háskólabíói með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands á mið-
vikudagskvöldið. Seinni tón-
leikar hennar verða á sama stað
síðdegis á morgun.
„Ég er að koma hingað til Ís-
lands í fyrsta skipti sem rúss-
nesk söngkona, og þess vegna
finnst mér sérstaklega mikil-
vægt að syngja hér rússneska
tónlist.“
Olga er ein allra eftirsóttasta
mezzósópransöngkona heims.
Hún kom hingað á þriðjudaginn
beint frá New York, þar sem hún
hafði sungið á tvennum tónleik-
um. Annars vegar einsöngstón-
leika með píanóundirleik og hins
vegar tónleikar í Metropolitan-
óperunni með hljómsveit undir
stjórn James Levine.
Héðan heldur hún til Ítalíu
strax á sunnudaginn þar sem
hún á að syngja á La Scala,
þannig að dvöl hennar hér er að-
eins millilending á milli fræg-
ustu óperuhúsa heims.
„Ég er óperusöngkona og ferð-
ast þess vegna mikið á milli óp-
eruhúsa eins og óperusöngvarar
gera. En inn á milli held ég alltaf
reglulega tónleika og mér finnst
það skipta miklu máli fyrir mig,
bæði til þess að halda áfram að
þróast á báðum sviðum og geta
ráðið yfir mismunandi stílum, og
svo auðvitað líka til að fá tæki-
færi til að syngja annars konar
tónlist en bara óperutónlist.“
Hún flytur hér efnisskrá með
verkum eftir Mussorgskí fyrir
hlé, en eftir hlé syngur hún ýms-
ar óperuaríur. Efnisskráin er ein
af nokkrum sem hún hefur æft
til flutnings, en segist skipta
reglulega um efnisskrá til þess
að sér leiðist ekki.
Borodina var lengi stjarna
Kirov-óperunnar í Rússlandi. Á
tónleikunum í Háskólabíói
stjórnar Alexander Vedernikov
hljómsveitinni, en hann er
tónlistarstjóri Bolshoj-óperunn-
ar í Moskvu. ■
Millilending
óperustjörnunnar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
18 19 20 21 22 23 24
Föstudagur
MAÍ
■ SKEMMTUN
Tónlistartorg Listahátíðar
í Kringlunni
Dagskrá
í dag kl. 17
Ég hef taktinn
Jazzkvartett Reykjavíkur;
Sigurður Flosason,
Eyþór Gunnarsson,
Tómas R. Einarsson
og Gunnlaugur Briem.
Ert þú búinn að skora á forsetann?
a s k o r u n . i s
Velja eingöngu íslenskt
Við erum tveir leiklistar-nemar og þrír fyrrverandi
Sóldaggarmeðlimir sem sett-
um saman band sem sérhæfir
sig í íslenskri eighties og
nineties músík,“ segir Halli,
annar söngvara í stuðhljóm-
sveitinni Hollívúdd, sem
ætlar að troða upp á Gauknum
í kvöld.
Hinn leiklistarneminn
heitir Gói, sem söng í Grease
og syngur í Hárinu í sumar, en
úr Sóldögg koma þeir Jónsi,
Baddi og Gunni. Einnig spilar
með þeim á hljómborð Leifur
nokkur, sem er tónlistarnemi.
„Við Gói syngjum báðir og
erum að leika ýmsa dúetta,
eins og Siggu Beinteins og
Grétar, Eirík Hauks og Helgu
Möller og fleiri góða frá þess-
um tíma,“ segir Halli.
Hljómsveitin Sóldögg er
lögst í dvala, um stundarsakir
að minnsta kosti, en þeir
félagar í Hollívúdd stefna á að
spila víða í sumar. ■
HLJÓMSVEITIN HOLLÍVÚDD
Spilar eingöngu íslensk stuðlög frá níunda og tíunda áratugnum. Verður í kvöld á Gauknum.
OLGA BORODINA
Seinni tónleikar hennar með Sinfóníuhljómsveitinni verða í Háskólabíói síðdegis á morgun.
■ TÓNLEIKAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T