Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 57
FÖSTUDAGUR 21. maí 2004 45
■ LISTAHÁTÍÐ Í DAG
Bubbi Morthens spilar og syngur á
Kristjáni X á Hellu.
■ ■ LEIKLIST
20.00 100% „hitt” með Helgu
Brögu í tónlistarhúsinu Ými, Skógarhlíð
20.
20.00 Eldað með Elvis í Sam-
komuhúsinu á Akureyri.
20.00 Vesturport sýnir Rómeó og
Júlíu eftir Shakespeare í Borgarleik-
húsinu.
20.00 Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason í leikgerð Baltasar
Kormáks á stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Belgíska kongó eftir Braga
Ólafsson á nýja sviði Borgarleikhússins.
21.00 Secret face í Iðnó.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Búðarbandið skemmtir á
Prikinu í kvöld. Bryndís Ásmundsdóttir
syngur og sprellar, Thordís Claessen
syngur, sprellar og hamrar á slagverk, og
Franz Gunnarsson syngur, sprellar og
spilar á gítar.
23.00 Rokksveit Rúnars Júlíus-
sonar verður með stórdansleik á
Kringlukránni.
Spilafíklarnir skemmta á Dubliner.
Í svörtum fötum skemmtir á Players
í Kópavogi.
Spilafíklarnir skemmta á Dubliner.
Plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn
DJ Kontrol spilar á Breakbeat.is kvöldi
á skemmtistaðnum Kapital. Frændurnir
Dj Reynir og Dj Grétar G sjá um upp-
hitun fyrir Kontrol.
Hljómsveitin Fjandakornið spilar
klassískt rokk og ról í Drauma Kaffi í
Mosfellsbæ.
■ ■ FUNDIR
20.00 Opið hús í Alþjóðahúsinu,
Hverfisgötu. Hope Knútsson og Tatjana
Latinovic kynna og stjórna umræðum
um nýju útlendingalögin.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
20.00 Körper, dansleikhús frá
Schaubühne í Þýskalandi. Borgarleik-
húsið. Fyrri sýning
21.00 Stórsveit Jagúar og Tómas R.
með djassdans í Nasa. Fyrri tónleikar.
Sellóið er íhugult hljóðfæri
TÓNLEIKAR „Ég veit það ekki, það er
svolítið íhugult hljóðfæri,“ segir
Sigrún Erla Egilsdóttir selló-
leikari þegar hún er spurð hvað
heilli hana við sellóið.
„Vinur minn sagði að fiðla væri
svolítið eins og fiðrildi en sellóið
væri meira að hugsa málið. Mér
finnst það mjög rétt hjá honum og
mjög fallegt.“
Í dag klukkan átján verða burt-
fararprófstónleikar Sigrúnar Erlu
frá Listaháskóla Íslands haldnir í
Salnum í Kópavogi. Með henni
spila Hafdís Vigfúsdóttir á flautu
og Anna Guðný Guðmundsdóttir á
píanó.
„Ég ætla að spila Bach og Beet-
hoven,“ segir hún.
„Síðan ætla ég að spila mjög
skemmtilegt verk eftir Hafliða
Hallgrímsson með Hafdísi Vig-
fúsdóttur flautuleikara, sem er
góð vinkona mín og líka í Lista-
háskólanum. Svo ætla ég að spila
sónötu eftir Debussy, sem er í
mjög miklu uppáhaldi hjá mér.
Hann sækir svolítið innblástur í
leikhúsið og notar sellóið á mjög
sérstakan hátt. Maður þarf að
vera mikill leikari í sér til að geta
spilað þetta. Til dæmis er ítalski
trúðurinn Pierrot nálægur, að
minnsta kosti í öðrum kaflanum.
Ég enda svo á einleiksverki eftir
Hans Werner Henze.“ ■
SIGRÚN ERLA EGILSDÓTTIR
Burtfararprófstónleikar hennar á sellóið
verða haldnir í Salnum í Kópavogi klukkan
sex í dag.