Fréttablaðið - 21.05.2004, Page 62
50 21. maí 2004 FÖSTUDAGUR
...fær Arinbjörn Vilhjálmsson
fyrir að stöðva frekari náttúru-
spjöll við Þingvallavatn.
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
Ámiðvikudaginn afhentimenntamálaráðherra, Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir,
verðlaun í Landskeppni ungra vís-
indamanna á Íslandi. Sjö verkefni
bárust í keppnina í ár og tvö þeirra
hlutu verðlaun. Verðlaunaverk-
efnin munu svo taka þátt á Evr-
ópukeppni ungra vísindamanna í
Dublin 25.-29. september.
Þeir sem hlutu verðlaun að
þessu sinnu voru Hrafn Þórisson
úr Fjölbraut í Ármúla fyrir verk-
efnið sitt Áhrif fjölbreytilegs um-
hverfis á sköpunargáfu og Elísa
Guðrún Brynjólfsdóttir, Eva Mar-
ía Þrastardóttir og Stefán Þór Ey-
steinsson úr Verkmenntaskóla
Austurlands fyrir verkefnið
Hasskötturinn.
„Hugmyndin að hasskettinum
kom frá föður Evu Maríu,“ segir
Stefán Þór en verkefnið þeirra
snerist um hvort hægt sé að þjálfa
ketti til að leita eftir lykt. „Þeir eru
minni og liðugari og örugglega
ódýrari í rekstri en hundar og flest-
ir kattareigendur tala um að þeir
séu með mjög gott lyktarskyn. Við
fengum tvo kettlinga og höfum unn-
ið með þá í tvo mánuði til að athuga
hvort kettir geti fundið te og það
hefur gengið ágætlega. Þeir hlýða á
meðan þeir fá rækjur í verðlaun.
Seinna var okkur sagt að það væri
hægt að nota aðrar tegundir sem
hafa betra lyktarskyn, eins og síam-
sketti og oriental en við erum bara
með venjulega sveitaketti.“
Stefán segir að þau muni ör-
ugglega halda áfram að þjálfa
kettina fyrst þau unnu keppnina,
og jafnvel prófa nýjar breytur í
rannsókninni. ■
Áherslur þingmanna á hinu háaAlþingi eru greinilega mis-
munandi. Á netinu er hægt að
fylgjast með starfi þeirra gegn-
um heimasíðurnar og er þar
marga gullmolana að finna. Á
heimasíðu Dagnýjar Jónsdóttur
kemur í ljós að
hennar hjartans
mál þessa dag-
ana eru bólgu-
eyðandi lyf. Kol-
brún Halldórs-
dóttir er á
jákvæðu
nótunum að
fjalla um ein-
kenni góðs þjóðleikhússtjóra. Já-
kvæðasta innleggið kemur þó frá
Hjálmari Árnasyni þar sem hann
upplýsir að víst geti þingmenn
allra flokka unnið saman, þó svo
að frekar sé tekið eftir þegar
slær í brýnu á milli manna.
VÍSINDAMENN FRAMTÍÐARINNAR
Tvö verkefni voru verðlaunuð í Landskeppni ungra vísindamanna. Þeir sem standa að
verkefnunum fara á Evrópukeppni í Dublin í haust.VERÐLAUN
LANDSKEPPNI UNGRA VÍS-
INDAMANNA Á ÍSLANDI
■ Nemar úr Fjölbraut í Ármúla og Verk-
menntaskóla Austurlands fengu verðlaun.
Eru hasskettir framtíðin?
Lárétt:
1 búk, 6 skýra frá, 7 kyrrð, 8 tveir eins,
9 þrumuguð, 10 ábreiður, 12 dugleg,
14 augnhár, 15 rykkorn, 16 hvíldist,
17 konungur fugla, 18 fyrrum.
Lóðrétt:
1 málm, 2 gera gælur við, 3 stöng, 4 deyr
úr kulda, 5 söngsveit, 9 á húsum,
11 andvari, 13 óska, 14 á litinn,
17 hvatur.
Lausn:
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt: 1skrokk,6tjá,7ró,8áá,9þór,
10lök,12kná,14brá,15ar, 16lá,
17örn,18áður.
Lóðrétt: 1stál,2kjá,3rá,4króknar,
5kór, 9þök,11gráð, 13árna,14blá,
17ör.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Manmohan Singh.
69.
Arnór Atlason.
Hvað einkennir sögurnar í árer tíðarandi sagnaumhverfis
og áberandi hvað horft er aftur í
tímann,“ segir Kristinn Kristjáns-
son, foringi Hins íslenska glæpa-
félags. Glæpafélagið skipuleggur
í ár bókmenntaverðlaun Norður-
landa, Glerlykilinn, sem afhentur
verður höfundi bestu norrænu
glæpasögu síðasta árs í Norræna
húsinu klukkan 15.
Glæpasögur frá öllum Norður-
löndunum eru tilnefndar og hafa
íslendingar titil að verja því Arn-
aldur Indriðason hefur tvívegis
unnið til lykilinn. Fyrst fyrir Mýr-
ina árið 2002 og svo fyrir Grafar-
þögn í fyrra. Í þetta sinn er það
bók Viktors Arnars Ingólfssonar,
Flateyjargáta sem tilnefnd er fyr-
ir okkar hönd.
„Þetta eru sögulegar sögur og
spanna þrjár þeirra tímabilið frá
17. og fram til 20. aldar. Hin ís-
lenska Flateyjargata gerist í
kringum 1960, sú danska gerist á
heimsstyrjaldarárunum, en
norska bókin rekur sögu frá 17.
öld. Sænsku og finnsku bækurnar
eiga sér stað í nútímanum. Í raun
er niðurstaðan afar spennandi en
um leið sérkennileg. Ekki veit ég
hvernig á þessu stendur, en er
sannfærður um að tilnefningar
grundvallast ekki á fyrrgreindu
tímaflakki.“
Þetta er í fyrsta skipti sem at-
höfnin fer fram hér á landi og
jafnframt í fyrsta skipti sem allir
tilnefndir höfundar eru viðstaddir
þennan árlega viðburð. „Þarna
fær fólk því tækifæri til að sjá og
heyra í höfundunum sjálfum í
Norræna húsinu. Það er gaman að
það skuli gerast í Íslandi að allir
tilnefndir höfundar sjá sér fært
að koma saman.“
Í kjölfar verðlaunaafhending-
ar munu höfundar allir stíga á
svið og lesa valda kafla úr verk-
um sínum á móðurmálinu og
spjalla um höfundarverk sín. Með
verðlaunaafhendingunni hefst
tveggja daga glæpasagnaráð-
stefna sem Hið íslenska glæpafé-
lag stendur fyrir á Flúðum í sam-
vinnu við Skandinavíska krimila-
sallskapet, þar sem fjölbreytt
safn fyrirlestra verður í boði. Að-
gangur að afhendingu Glerlykils-
ins í Norræna húsinu sem og að-
gangur að fyrirlestrum og tengd-
um atburðum er ókeypis öllum
áhugasömum um glæpasagna-
menningu og bókmenntir. ■
Glerlykillinn afhentur
■ FÓLK Í FRÉTTUM
KRISTINN KRISTJÁNSSON
Hið íslenska glæpafélag verður á stjái um helgina. Í stað þess að standa fyrir glæpaverkum er meira rætt um glæpasögur.
ARNALDUR INDRIÐASON
Bettý var ekki tilnefnd fyrir Íslands hönd þetta árið en Arnaldur hefur hlotið Glerlykilinn
tvö síðastliðin ár.
VERÐLAUN
HIÐ ÍSLENSKA GLÆPAFÉLAG
■ býður til bókmenntaverðlauna
Norðurlanda í Norræna húsinu.