Fréttablaðið - 12.03.2004, Síða 47
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Stærra typpi
Alltaf finnst mér jafn skemmtilegtþegar ég opna tölvupóstinn minn
og þar er póstur til mín, þar sem ég
er spurður á mjög hressilegan og
glaðlegan máta hvort ég vilji nú ekki
slá til og fá mér stærra typpi. Mér
finnst þetta svo ofsalega vinalegt.
Um daginn grasseraði tölvuvírus á
Netinu, sem virðist hafa leitt til þess
að opið skotveiðileyfi var gefið á mig
– ungan mann á Íslandi – hvað varð-
ar ruslpóst. Allir gáttir hafa opnast.
Ruslpósturinn dynur á mér.
MÁ BJÓÐA þér viagra, gus? (Gus
er netfangið mitt.) Má bjóða þér líf-
tryggingu, gus? Gus! Fáðu ódýr lán
hjá okkur! Hvers vegna ekki að slá
til, Gus, og skella sér í lögfræðinám
á Netinu! Einmana húsfreyjur leita
að félagsskap, Gus, í nágrenni við
þig! (Hvernig vita þeir hvar ég bý?)
Langar þig í platínukort, Gus?
Komdu magavöðvunum í lag á einni
viku, Gus, með magabeltinu frá
okkur! Fáðu þér líftryggingu, Gus!
Flottar skvísur vilja bara þig, Gus!
Berðu á þig brúnkukrem, Gus! Lifðu
lengur, Gus! Vertu hamingjusamari,
Gus! Kauptu hlutabréf, Gus!
BEST VAR nú samt þegar einn
dæmigerður ruslpóstur slæddist inn
á netfang hljómsveitarinnar sem ég
er í, og heitir Ske. Í honum stóð: Má
bjóða Ske stærra typpi? Vitaskuld
var þetta tilboð tekið fyrir á hljóm-
sveitarfundi. Sem leiðir auðvitað
hugann að eftirfarandi: maður yrði
náttúrlega ansi flottur ef maður tæki
öllum þessum kostaboðum. Spáið í
það. Sólbrúnn kvennabósi með flotta
magavöðva, lögfræðigráðu, platínu-
kort, birgðir af víagra, líftryggingu
og stórt typpi.
ÉG VERÐ bara að segja að ég er
svo ofsalega hrifinn af þessu að ég
skil ekki af hverju sölumennirnir
ganga ekki í hús og bjóða þjónustu
sína augliti til auglitis. Það er falleg
sýn: ding dong... Jú, góðan daginn.
Má bjóða herranum stærra typpi?
Best væri ef boðið yrði upp á stærra
typpi í framtíðinni um leið og maður
kaupir sér buxur. Kannski verður ný
starfsgrein til með aukinni eftir-
spurn: typpalingar? Svona getur
Internetið verið upphafið að mörgu
æðislegu. En það er bara eitt sem
plagar mig í öllu þessu: af hverju
halda þessir aðilar, sem eru að senda
manni þennan póst, að maður sé með
eitthvað sérstaklega lítið typpi núna?
Ég er smá paranojd yfir því, verð ég
að viðurkenna. ■
Íslenska óperan