Fréttablaðið - 20.03.2004, Side 2
KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn er
búinn að vinna upp allt það fylgi
sem hann tapaði í síðustu kosn-
ingum samkvæmt nýrri skoðana-
könnun Fréttablaðsins. Sam-
kvæmt henni fengju sjálfstæðis-
menn 40,8% atkvæða, sem er
sama fylgi og flokkurinn fékk í
kosningunum 1999, en sjö pró-
sentustigum meira en hann fékk í
síðustu kosningum.
„Þetta undirstrikar sterka
stöðu Sjálfstæðisflokksins,“ seg-
ir Einar K. Guðfinnsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðis-
flokks. „Við höfum greinilega
sótt í okkur veðrið frá því í síð-
ustu alþingiskosningum.“
Fylgi Framsóknarflokks
minnkar enn. Hann fengi 10,1%
atkvæða samkvæmt könnuninni
en fékk 17,7% í kosningum og
11,2% í síðustu könnun.
„Þetta er alltof lít-
ið fylgi fyrir Fram-
sóknarflokkinn mið-
að við þá framtíð sem
blasir við í landinu,“
segir Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráð-
herra og treystir því
að flokkurinn eigi
mikið fylgi meðal
þeirra sem taka ekki
afstöðu í könnuninni.
Samfylkingin bæt-
ir við sig fylgi, hvort
tveggja frá kosn-
ingum og síðustu
könnun.
„Það er sannar-
lega ánægjulegt að
Samfylkingin standi vel í könn-
unum og það er í samræmi við
þær undirtektir sem ég hef fund-
ið við málflutningi okkar,“ segir
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, en ítrekar að
flokkur sinn sé í langhlaupi sem
ljúki í næstu kosningum..
Nær 40% kjósenda Frjáls-
lynda flokksins hafa snúið baki
við honum samkvæmt könn-
uninni. Hann fékk 7,7% atkvæða
í kosningum, en aðeins 4,7% í
þessari könnun. Í síðustu kön-
nun Fréttablaðsins, í byrjun
febrúar, fékk hann sjö prósent
atkvæða.
Magnús Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjálslynda flokks-
ins, segir hátt hlutfall óákveðinna
þýða að skekkjumörkin séu stór
og fyrir þeim séu litlir flokkar
viðkvæmari en þeir stærri.
„Þetta er meira fylgi en við
fengum í síðustu alþingiskosn-
ingum,“ segir Ögmundur Jónas-
son, þingflokksformaður Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs, og segir niðurstöður
skoðanakannana ekki raska ró
sinna manna.
Vinstri grænir tapa lítillega
fylgi frá síðustu könnun en eru
með talsvert meira fylgi en þeir
fengu í kosningunum.
Sjálfstæðisflokkur fengi 26
þingmenn samkvæmt könnun-
inni og Framsókn sex þannig að
stjórnin héldi eins manns meiri-
hluta en í síðustu könnun féll
meirihlutinn sem telur þrjá
þingmenn frá kosningum á
síðasta ári. Samfylking fengi 21
þingmann og bætti einum við
sig frá kosningum. Vinstri
grænir fengju sjö í stað fimm og
frjálslyndir töpuðu
einum þingmanni af
fjórum miðað við
kosningar.
Skoðanakönnunin
var unnin í gærkvöldi.
Hringt var í 800
manns, jafnt skipt
milli kynja og hlut-
fallslega eftir búsetu,
og þeir spurðir:
„Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði
til þingkosninga nú?“
63,5% tóku afstöðu og
3,8% kváðust ekki
myndu kjósa. 32,9%
voru óákveðin eða neit-
uðu að svara. ■
George W. Bush:
Berst áfram
WASHINGTON, AP Bandaríkjaforseti
hvatti þjóðir heims til dáða í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum í
ræðu sem hann
hélt í tilefni af
því að ár er lið-
ið frá inn-
rásinni í Írak.
Hann sagði það
skyldu hverrar
einustu ríkis-
stjórnar að
berjast gegn
hryðjuverkum
og vernda
borgara sína.
„Það getur
enginn samið
frið við hryðjuverkamenn. Öll
merki um veikleika eða flótta sýn-
ir aðeins fram á að hryðjuverk
beri árangur og býður hættunni
heim,“ sagði forsetinn.
Dominique de Villepin, utan-
ríkisráðherra Frakklands, sagði
hins vegar að heimurinn væri
hættulegri en áður vegna innrás-
arinnar í Írak sem hefði aukið
hættuna á hryðjuverkum. ■
2 20. mars 2004 LAUGARDAGUR
„Nei. Ætli við fáum okkur ekki ýsu og
horfum á mynd með Clint Eastwood.“
Steinþór Helgi Arnsteinsson er fyrirliði liðs Borgar-
holtsskóla í Gettu betur. Á fimmtudaginn vann
liðið frækinn sigur á MR en í lokaspurningunni
munaði minnstu að sigurinn tapaðist þar sem
liðsmenn þekktu ekki ufsa af mynd –
og töldu ýsu vera.
Spurningdagsins
Steinþór, ætla menn að fá sér ufsa til
að halda upp á sigurinn?
■ Dómsmál
Fylgið snýr aftur
til Sjálfstæðisflokks
Sjálfstæðisflokkur er orðinn jafn stór og í kosningunum 1999. Frjáls-
lyndi flokkurinn tapar þriðjungi fylgis síns og Framsóknarflokkur er
kominn niður í tíu prósent. Stjórnin heldur eins manns meirihluta.
Endurhæfing fjölfatlaðar í Kópavogi:
Rætt við starfsmenn
um yfirtöku reksturs
HEILBRIGÐISMÁL Viðræður eru hafnar
milli heilbrigðisráðuneytisins og
starfsfólks endurhæfingarþjónustu
fjölfatlaðra í Kópavogi um að starfs-
fólkið taki að sér rekstur deildarinn-
ar. Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins miðar viðræðunum vel. Þær
voru settar af stað í kjölfar tillagna
starfshóps þriggja ráðuneyta og
Landspítala háskólasjúkrahúss um
tilhögun þjónustunnar til framtíðar
litið. Í sparnaðartillögum Land-
spítala hafði verið gert fyrir að
henni yrði hætt, en starfshópurinn
telur henni best fyrir komið í þeirri
aðstöðu sem fyrir hendi er í Kópa-
vogi.
„Það er búið að taka þá grundvall-
arákvörðun, að þessi þjónusta verði
þarna,“ sagði Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra um stöðu málsins.
Tillögur starfshópsins byggjast á
því að stofnaður verði sérstakur
rekstur um endurhæfinguna. Þær
miða jafnframt að því að efla göngu-
deild hennar. Í þeim efnum er rætt
um að beina þeim fjölfötluðu ein-
staklingum, sem búa vítt og breitt á
höfuðborgarsvæðinu og sækja end-
urhæfingu annars staðar á , á Kópa-
vogsstöðina. Aðstaðan þar er mjög
góð, mjög hæft starfsfólk og góður
húsakostur, auk þess sem góð sund-
laug er á staðnum.
Um 33 fatlaðir einstaklingar fá
nú göngudeildarþjónustu í Kópa-
vogi. Þá dvelja þar nú 24 fatlaðir
vistmenn. ■
Fíkniefnamál í
Þýskaland:
Íslendingur í
varðhaldi
FÍKNIEFNI Tveir Íslendingar á þrí-
tugsaldri voru handteknir í Þýska-
landi í síðustu viku fyrir smygl á
fíkniefnum frá Hollandi. Annar
þeirra situr nú í gæsluvarðhaldi en
hinum var sleppt að yfirheyrslum
loknum. Hjá utanríkisráðuneytinu
fékkst staðfest að Íslendingarnir
hefðu verið handteknir og að sendi-
ráðið í Berlín fylgdist með málinu.
Heimildir blaðsins herma að um
100 grömm af kókaíni hafi fundist í
bíl mannanna á landamærum
Þýskalands og Hollands. Starfsmað-
ur sendiráðsins í Berlín vildi engar
upplýsingar um málið gefa. ■
VEGAFARENDUR Í MADRÍD
Vegfarendur við Atochalestarstöðina virða
fyrir sér kerti sem voru kveikt til minningar
um þá látnu.
Árásirnar í Madríd:
Þrír ákærðir
MADRÍD, AP „Ég er saklaus,“ kallaði
einn sakborningur og annar grét
þegar spænskur dómari gaf út
ákæru á hendur þremur Marokkó-
mönnum sem er gefið að sök að
hafa tekið beinan þátt í hryðju-
verkaárásunum í Madríd í byrjun
mánaðarins.
Mennirnir voru handteknir fyrir
viku en þar til í gær höfðu þeir ekki
verið sakaðir um beina aðild að
árásunum. Í ákærunum er þeim
gefið að sök að hafa banað 190
manns, það er sá fjöldi sem tekist
hefur að bera kennsl á. Þeir eru ein-
nig ákærðir fyrir 1.400 morðtilræði
og aðild að hryðjuverkasamtökum.
Tveir Indverjar voru kærðir fyr-
ir samstarf við hryðjuverkamenn. ■
SLAGSMÁL Á DANSGÓLFI Rúm-
lega tvítug kona var dæmd til að
greiða 20 þúsund króna sekt fyrir
að ráðast á tvítuga konu á dans-
gólfi veitingastaðarins Sjallans á
Ísafirði. Konan sparkaði í sköfl-
ung hinnar konunnar, togaði í hár
og sló hana með þeim afleiðing-
um að hún marðist og bólgnaði.
Dæmt var í málinu í Héraðsdómi
Vestfjarða.
Bónusræningjar:
Fengu eitt
og hálft ár
DÓMSMÁL Mennirnir sem stóðu að
vopnuðu ráni í verslun Bónus í
Kópavogi í desember síðastliðn-
um voru í gær dæmdir í eins og
hálfs árs fangelsi í héraðsdómi
Reykjaness.
Mennirnir eru allir fæddir árið
1984. Fjórði maður var einnig
ákærður í málinu en sá lánaði þre-
menningunum afsagaðar hagla-
byssur sem notaðaðar voru til að
ógna starfsólki. Hann var sýknaður.
Ránsfengurinn nam um sex
hundruð þúsund krónum en einn
þremenninganna var starfsmaður
í versluninni þar sem ránið átti
sér stað. ■
Næstráðandi í fíkniefnadeildinni í Reykjavík dró sér fé:
Fíkniefnadeildin til rannsóknar
LÖGREGLAN „Það er ljóst að við
erum mjög slegnir yfir þeim
vanda sem hefur komið hér upp.
Vissa er fyrir því að ekki hefur
verið farið með haldlagt fé eins og
reglur mæla fyrir um,“ segir
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, en næstæðsti maður
fíkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík tók um 900 þúsund
krónur sem lagt hafði verið hald á
í fíkniefnamáli.
Lögreglumaðurinn bað um
lausn frá starfi á þriðjudag og
hætti strax. Hann hefur skilað öll-
um peningunum sem hann tók.
„Allir þurfa að draga lærdóm af
því sem fyrir kemur. Við munum
að sjálfsögðu kanna hvort þarna
sé ekki tæmandi talið og að aðrir
hlutir í deildinni séu í lagi,“ segir
Böðvar.
Böðvar segir peninga hafa
komið á lögreglustöðina sem ekki
hafi verið afhendir réttum aðilum
til innlagnar á færslureikninga.
Eigandi peninganna átti að fá þá
aftur í sínar hendur en þegar hann
leitaði eftir þeim komst lögreglan
að því að ekki var allt með felldu.
Böðvar segir að búið sé að vísa
málinu til ríkissaksóknara eins og
reglur segja til um þegar hugsan-
legt er að lögreglumaður hafi
brotið af sér í starfi. Ríkis-
saksóknari mun mæla fyrir um
rannsókn eða annað er hann vill
láta gera af þessu tilefni. Þá segir
hann ríkislögreglustjóra hafa
veitt manninum lausn eins og
hann óskaði eftir. ■
BÖÐVAR BRAGASON
Lögreglustjórinn í Reykjavík segir
lögreglumenn mjög slegna eftir að
vissa fékkst við því að næstráðandi í
fíkniefnadeildinni hefði tekið um 900
þúsund krónur sem lagt hafði verið
hald á í fíkniefnamáli.
ENDURHÆFING
Viðræður standa yfir við starfsfólk endur-
hæfingarinnar í Kópavogi um yfirtöku
rekstrar deildarinnar.
BUSH
Skaut á nýja stjórn
Spánar.
7,
0%
12
,6
%
10,1%
40,8%
4,7%
FYLGI FLOKKANNA
Hvaða stjórnmálaflokk myndirðu kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú?
B D F S U
11,8%
32,1%
30
,9
%
37
,9
%
Nú
5. febrúar
Kosningar 2003
11
,2
%
7,
4% 8,
8%
31
,0
%
33
,7
%
17
,7
%