Fréttablaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 28
Grétar Ólason og Þorsteinn Magnússon, sem rekið hafa
SG-Bílaleiguna undanfarin ár, hafa keypt rekstur bíla-
umboðs B&L á Suðurnesjum af Smára Helgasyni, um-
boðsmanni B&L til margra ára. SG-Bílar munu fram-
vegis annast sölu á Hyundai, Renault, BMW, Land
Rover og Arctic Cat til íbúa á Reykjanesi.
Þeir Grétar og Þorsteinn munu selja bæði nýja og
notaða bíla í samstarfi við B&L og hyggjast þeir kynna
Reyknesingum nýju bílasöluna, sem hlotið hefur nafnið
SG-Bílar, með stórri bílasýningu um helgina.
Opið verður hjá þeim félögum í sýningarsalnum við
Bolafót 1 í Reykjanesbæ 10-18 á morgun og 12-18 á
sunnudag. Á sýningunni verða allir nýjustu bílarnir frá
Hyundai, Renault, BMW og Land Rover.
Aðdáendur BMW-bíla á Reykjanesi hafa einnig
ástæðu til að fagna því boðið verður upp á sérstakan
reynsluakstur á BMW 3 línunni, BMW X3 og BMW X5
í tengslum við stórsýningu nýju umboðsaðilanna. ■
NÝR TOYOTA VERSO
Í byrjun maí er væntanlegur til landsins nýr og gjörbreyttur sjö sæta
Corolla Verso. Um er að ræða skemmtilegan bíl sem er ekki aðeins
fallegur heldur ótrúlega fjölbreyttur. Nýja einingaskipta Toyota Easy
Flat-7 sætakerfið er auðvelt í notkun og með marga möguleika í
sætaskipan og farangursrými.
Vinnuvélanámskeið
Kvöldnámskeið.
Námskeiðsstaður, Þarabakki 3.
109 Reykjavík (Mjódd).
Verð 39.900.-
Upplýsingar og innritun í síma: 894-2737
Flest verkalýðsfélög styrkja nemendur á vinnuvélanámskeið, einnig atvinnuleysistryggingasjóður
Eðalvagnar með sögu og sjarma:
Gamli Fordinn ómótstæðilegur
Sævar Pétursson og gamli Ford '30.
Sævar á nokkra fornbíla en
heldur mest upp á þennan.
Sævar Pétursson, formaður Fornbílaklúbbsins, á þrjá
gamla eðalbíla en heldur mest upp a Ford '30-árgerðina
sem hann eignaðist árið 1994. „Ég keyrði hann í ein fimm,
sex ár eins og hann kom til landsins, en síðan er ég búinn
að taka hann allan í gegn. Við rífum þessa bíla alveg í
spað og förum yfir hvert einasta stykki. Það þarf ýmist
að smíða þetta upp eða fá nýtt, sem er auðvitað oft erfitt í
svona gamla bíla. En þá er reynt að smíða hlutina í sem
upprunalegustu formi.“
Gamli Fordinn hans Sævars er rauður og svartur eins
og hann var í upphafi og það hefur aldrei hvarflað að
Sævari að breyta því neitt.
En hefur hann alltaf verið óforbetranlegur bíladellu-
karl?
„Ja, fornbílaáhuginn vaknaði í kringum 1990, en ég hef
verið viðloðandi bíla miklu lengur og er með réttingar og
sprautun. Þetta er ofboðslega skemmtilegt áhugamál og
félagsskapurinn í kringum bílana frábær. Það má geta
þess að við verðum einmitt með fornbílasýningu í Laugar-
dalshöll 3.-6. júní.“
Sýningar á bílunum eru einmitt stór liður í félagsskap
fornbílamanna, og þeir fara gjarnan saman í ferðir um
landið. „Ég fór með fjármálaráðherrann, Geir Haarde,
niður Kambana í fyrrasumar á þessum bíl. Þá vorum við í
svona sýningarferð um landið.“
Fordinn hans Sævars er ekki elsti gangfæri Fordinn í
Fornbílaklúbbnum, en Sævar tekur hann út á sumrin og
ekur á honum yfir sumartímann. „Þetta er sparibíll, al-
gjör eðalvagn,“ segir Sævar. ■
Nýir eigendur efna til veislu:
Bílasýning í Keflavík
Til hamingju Grétar Ólason og Þorsteinn
Magnússon handsala umboðssamning við
Heiðar Sveinsson, sölustjóra B&L.