Fréttablaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 3. apríl 2004 49
Peysur á
20%
afslætti
Allar stærðir
Páskatilboð
Laugaveg i 83 s : 562 3244
Full búð af glæsilegum
vörum, DIESEL, CARS jeans,
Lego, Ticket to heaven,
Rutzou og Bo Dean
Höfum einnig fatnað
á unglinginn og
mömmurnar!
VERIÐ VELKOMIN
ÝMIS OPNUNARTILBOÐ
Sími 555 6688
ER FLUTTUR
að Hlíðarsmára 12
(sama hús og Nings)
í Kópavogi.
NÝIR EIGENDUR
Hárið blásið
upp aftur
SÖNGLEIKUR Fyrir tíu árum síðan
setti Flugfélagið Loftur upp söng-
leikinn Hárið í leikstjórn Baltasars
Kormáks. Sýningin var sú vin-
sælasta þá um sumarið og var sýnd
90 sinnum í Íslensku óperunni fyr-
ir rúmlega 40 þúsund gesti.
Nú hefur hópur listamanna
ákveðið að setja upp söngleikinn á
nýjan leik, að þessu sinni í Austur-
bæ undir leikstjórn Rúnars Freys
Gíslasonar. Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson útsetur tónlistina og Lára
Stefánsdóttir semur dansa.
Hárið verður því blásið upp að
nýju með nýjum áherslum.
„Rokkið er útgangspunkturinn,“
segir Björn Thors, einn af aðstand-
endum sýningarinnar. „Svakaleg
keyrsla og meiri tónleikakraftur í
gangi en hippafílingur. Þetta er
náttúrlega líka önnur sýning, ann-
að fólk og allt önnur orka en var
áður.“
Mánuður er í fyrsta samlestur
og þegar er byrjað að ráða í hlut-
verk. Björn segir að leikhópurinn
verði byggður upp af orkumiklum
leikurum, söngvurum og dönsur-
um. Hilmir Snær hefur tekið að sér
hlutverk Hud en hann sló einmitt í
gegn í uppfærslu Flugfélagsins
fyrir tíu árum sem George Berger.
Á sunnudaginn gefst áhugasöm-
um tækifæri á að næla sér í leik-
eða sönghlutverk í uppfærslunni.
„Þeir sem koma eiga alveg mögu-
leika á þeim sjö hlutverkum sem
mynda kjarnann. Svo eru nokkur af
flottustu söngnúmerum verksins í
höndum kórsins,“ segir Björn að
lokum.
Skráning áhugafólks fer fram í
Austurbæ stundvíslega klukkan 10
á sunnudagsmorgun og prufur stan-
da fram eftir degi. Skráning at-
vinnufólks fer fram á sama stað,
klukkan 13. Æskilegt er að þátttak-
endur syngi lög úr Hárinu. ■
Pondus eftir Frode Øverli
Það þarf að bera
hana upp stigann og
í þvottaherbergið á
annarri hæð!
Það ætti
ekki að
vera
vandamál!
Einn,
tveir,
ooog...
þr... Réttu úr bakinu!
Réttu úr bakinu! JÓI!!
Trúðu mér, þú færð í
bakið með þessu
áframhaldi!
HÁRIÐ
Uppfærsla Flugfélagsins Lofts á Hárinu fyrir tíu árum síðan sló rækilega í gegn. Nú á að
endurtaka leikinn og setja rokkið sem útgangspunkt. Söngleikurinn verður settur upp í
Austurbæ í sumar og á sunnudaginn geta áhugasamir sótt um leik- eða sönghlutverk.