Fréttablaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 3. apríl 2004
Athugul augu starfsmannsBókabúðar Máls og menning-
ar komu á dögunum auga á ótrú-
leg líkindi með tveim bókarkáp-
um, Da Vinci lyklinum og Píslar-
sögu séra Jóns Magnússonar.
Þessi líkindi eru tilviljun ein því
Píslarsagan kom út árið 2001 en
Da Vinci lykillinn kom hins vegar
ekki út fyrr en árið 2003 og er ís-
lenska kápumyndin sú sama
og á amerísku útgáfunni.
Þarna eru augun á Maríu,
párið á bak við textann og
meira að segja fonturinn á
titilnafninu er líkur. ■
Tvær kápur
LÍKAR
Kápur Da Vinci lykilsins og Píslarsögu
Jóns Magnússonar eru ótrúlega líkar.
Könnun meðal starfsfólks bókabúða um bækur til fermingargjafa:
Mælt með Íslensku orðabókinni
Bryndís Loftsdóttir, vöru-stjóri íslenskra bóka hjá
Pennanum, var spurð hvaða
bækur hún myndi færa ferming-
arbarni að gjöf. „Ég vil nú helst
gefa orðabækur, það situr ennþá
svolítið í mér að hafa ekki feng-
ið eina einustu orðabók sjálf í
fermingargjöf og hefði þó ekki
veitt af – ég hef aldrei verið
neitt sérstaklega sleip í tungu-
málum. Ég fékk hins vegar risa-
stóran atlas sem hefur nýst mér
ósjaldan svo ég býst við að ef
orðabók yrði ekki fyrir valinu
myndi ég gefa fermingarbarn-
inu atlas eða Íslendingasögurn-
ar, sem allir ættu að eiga.“
Leita aftur í tímann
Ég er að lesa bók sem er ákaf-lega skemmtileg og full af
fróðleik. Hún heitir The Con-
version of Europe: From Paganism
to Christianity 371-1386 eftir Ric-
hard Fletcher. Þetta er mögnuð
samantekt sem gefur manni inn-
sýn í ýmislegt, ekki bara kristnina
og kristniboð heldur líka sögu Evr-
ópu á þessum tíma,“ segir Friðrik
Erlingsson rithöfundur. Hann seg-
ist vera haldinn fróðleiksfíkn enda
áhugamaður um sögu. „Þessi lest-
ur tengist líka hlutum sem ég er að
vinna að í rólegheitunum og maður
leitar víða fanga,“ segir Friðrik og
bætir við. „Svo er það þannig að
samtíminn getur verið ansi leiðin-
legur og það eru svo margir
ómerkilegir hlutir í gangi að mað-
ur verður stundum að leita aftur í
tímann ætli maður að skemmta sér
rækilega.“
Friðrik er búinn að lesa Da
Vinci lykilinn. „Ég las hana mér til
skemmtunar. Söguþráðurinn er
eins og í fjórða flokks reyfara en
það sem er athyglisvert og spenn-
andi við hana er kenningarnar og
sagnfræðistaðreyndirnar sem
varpað er ljósi á. Bókin stendur
fyrst og fremst í fæturna út af
þeim hlutum sem höfundurinn er
að draga fram í dagsljósið. Margir
hafa litið á Magdalenu-kenning-
arnar, leyniregluna og dulmál Leo-
nardo Da Vinci í málverkum og
dagbókum sem skemmtilegan til-
búning en það hafa fundist handrit
og skjöl sem styðja hluta af þess-
um kenningum.
Eftir að ég las Da Vinci lykilinn
varð ég mér úti um þrjár bækur
eftir tvo frímúrara, Christopher
Knight og Robert Lomas. Þær
heita Uriel’s Machine, The Hiram
Key og The Second Messiah og þar
er verið að rannsaka rætur frímúr-
arareglunnar. Höfundarnir eru á
köflum á grensunni í kenninga-
gleði en draga þó fram ýmsar
sagnfræðilegar staðreyndir og
byggja tilgátur í kringum þessi
mál og önnur þeim tengd. Geysi-
lega áhugaverð lesning og
skemmtileg og inspírerandi á
margan hátt.“ ■
Nýlega var gerð óformlegkönnun meðal starfsfólks í
nokkrum bókabúðum um allt land
þar sem óskað var eftir upplýs-
ingum um bækur sem það mælti
með til fermingargjafa. Það kom á
óvart hversu margir titlar voru
nefndir en sú bók sem langoftast
var nefnd var Íslenska orðabókin
frá Eddu sem kom út árið 2000. ■
BÆKUR Á VERÐBILILINU
1.000 - 6.000 KR.
Earth from the Air kr. 4.995
Ensk - íslensk skólaorðabók kr. 4.190
Íslensk samheitaorðabók kr. 4.980
Íslenskur fuglavísir kr. 3.400
Ljóðasafn Tómasar Guðmundss. kr. 3.990
Passíusálmarnir kr. 1.580
Perlur í skáldskap Laxness kr. 3.390
Philips Concise World Atlas kr. 4.495
Þetta er sú upphæð sem flestir eyða í
fermingargjöf og því úrvalið langmest á
þessu verðbili. Tæplega 30 titlar voru
nefndir en neðangreindir titilar hlutu flest
atkvæði. Þar sem atkvæði þeirra voru svo
jöfn er þeim hér raðað í stafrófsröð.
BÆKUR Á VERÐBILINU
6000-10.000
Ísland í aldanna rás 1900-2000 kr. 9.980
Íslenskir málshættir og Íslensk orðtök
kr. 8.990
Orðastaður og Orðaheimur kr. 9.980
Úrvalið af bókum í þessum verðflokki er
talsvert minna og stóðu þrír titlar þar upp
úr í vali starfsfólks.
BÆKUR Á VERÐBILINU
10.000-20.000
Íslenska orðabókin A-Ö kr. 14.980
Íslendingasögur I-III kr. 14.980
Ensk - íslensk orðabók kr. 14.850
Eins og áður segir var það Íslenska orða-
bókin frá Eddu sem fékk langflest atkvæð-
in og líklegt má teljast að hún verði jafn-
framt ein vinsælasta bókin til fermingar-
gjafa. Það vakti athygli að Biblían fékk
aðeins eitt atkvæði.
ÍSLENSKA ORÐABÓKIN
Starfsfólk bókabúða mælir sérstak-
lega með henni til fermingargjafa.
FRIÐRIK ERLINGSSON
„Samtíminn getur verið ansi leiðinlegur og það eru svo margir ómerkilegir hlutir í gangi
að maður verður stundum að leita aftur í tímann ætli maður að skemmta sér rækilega.“