Fréttablaðið - 03.04.2004, Page 50

Fréttablaðið - 03.04.2004, Page 50
3. apríl 2004 LAUGARDAGUR Enn er ég að rekast á plötur semkomu út í fyrra en hafa ekki náð hingað til lands, af einhverjum ástæðum. Það er eins og sameining stóru útgáfurisanna hafi orðið til þess að bylgjur undiröldunnar í Bandaríkjunum nái varla að Íslands ströndum lengur. Netverjar eru lík- legast þeir einu sem geta nálgast þetta í augnablikinu, en þá er oft erfitt að vita að hverju á að leita. Fimmta breiðskífa Cursive, The Ugly Organ, er eitt af meistaraverk- um síðasta árs sem vantar í plötu- búðirnar hér. Í fyrstu virkar þetta sem frekar venjuleg rokksveit. En svo skríða lögin aftan að manni og hlustandinn byrjar að átta sig á því hversu djúp- ar lagasmíðarnar eru. Útsetning- arnar leyna líka verulega á sér. Undir látunum iðar stundum ringul- reið af gíturum og hljóðum sem ýkja tilfinningarnar sem verið er að tjá. Í gegnum alla plötuna spilar svo selló, á mjög smekklegan hátt. Hvasst þegar verið er að tjá reiði, mjúkt og fallegt þegar sögumaður- inn er að ná andanum. Það sem er magnaðast af öllu á þessari plötu er hversu vel sveitinni tekst að tjá erfiðar tilfinningar. Öll platan fjallar um þau vandræði sem „ljóta líffærið“ (The Ugly Organ) getur komið okkur karlmönnum í. Lögin eru því oft full af sjálfsfyrir- litningu og reiði. Textarnir eru svo virkilega sterkir, djúpir og frumleg- ir. Ef samviskubit væri gert að hljóði, þá myndi það hljóma eins og þessi plata. Tilfinningalega sterkari gerast plötur varla. Gæsahúðirnar voru margar. Með bestu emo-rokkplötum sem ég hef heyrt um ævina. Birgir Örn Steinarsson N.E.R.D. - Fly or Die „Þó þessi tónlist sé úr sömu belju og skil- aði okkur lögum á borð við Senorita og Like I Love You er ekki jafn mikið um rjóma. Mjólkin er líka þyngri í maga og ekki jafn fersk og hún hefur verið. En samt efast ég ekki um hæfileikana og mun halda áfram að fylgjast með af áhuga. En þessi plata bætir engu við snilldina og virkar á köflum andlaus, punktur.“ BÖS Death Cab for Cutie - Transatlanticism „Það er ekki oft sem hæfileikar sem slíkir vella út úr einni og sömu skífunni. Þetta er eins og pönnukaka með rabbabara- sultu og rjóma. Þegar maður bítur í ann- an endann þrýstist hluti af rjómanum út um hinn og maður sér eftir honum þrátt fyrir að vera með munninn fullan af góð- gætinu. Án efa með betri plötum síðasta árs, þó að fá okkar hefðu hugmynd um það þá.“ BÖS Andlát - Mors Longa „Andlát eru asskoti þungir og grimmir, það fer ekki á milli mála. Mæli ég með hlustun í smærri skömmtum en vana- lega, því eyrun þreytast fljótt í öllum lát- unum. Þéttleiki sveitarinnar er engu að síður gríðarlegur og ljóst að þessi undar- lega langa fjarvera hefur ekki verið til einskis nýtt. Hvort hið dauðaskotna þungarokk Andláts sé málið í dag veit ég ekki en gæðin eru alla vega til staðar, svo mikið er víst.“ FB Probot - Probot „Nú skil ég loksins hvað er svona töff við Lemmy! Ég vissi ekki að hann hljómar eins og áttatíu ára gamalmenni með gyllinæð sem er samt staðráðið í því að rokka í sundur á sér síðustu heilu liðamótin. Mun tala með virðingu um hann hér eftir. Þessi plata Dave Grohl er ágætis skóli. Gítarriffin eru mörg mjög flott og Grohl trommar eins og hann eigi lífið að leysa.“ BÖS Bonnie Prince Billy - Greatest Palace Music „Eins og allar aðrar plötur Bonnie er hún góð. Kannski ekki eins mögnuð og þau verk sem Oldham hefur gefið út eftir að hann tók sér upp listamannanafnið en engu að síður ljúf. Samanburður við síð- ustu plötu væri líka ósanngjarn þar sem þessi lög eru margra ára gömul.“ BÖS Samviskubit ljóta líffærisins Umfjölluntónlist CURSIVE: The Ugly Organ SMS um nýjustu plöturnar N.E.R.D. Gagnrýnandi Fréttablaðsins var ekki nægilega heillaður af annarri plötu N.E.R.D.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.