Fréttablaðið - 06.05.2004, Page 51
■ Tónlist
FIMMTUDAGUR 6. maí 2004
Liam Gallagher, söngvari Oasis,var ölvaður og í kókaínvímu þeg-
ar hann réðst á þýskan lögregluþjón
fyrir utan næturklúbb í München
fyrir sautján mánuðum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
úr blóðprufu sem var tekin úr
Gallagher eftir atvikið. Svo gæti
farið að kappinn verði ákærður
vegna niðurstöðunnar en hann hefur
þegar greitt um tólf milljón króna
sekt fyrir að ráðast á lögregluna.
Liðsmenn Oasis voru að skemmta
sér á næturklúbbnum þegar einn úr
hópi þeirra stökk upp á borð þar sem
nokkrir fínir viðskiptajöfrar sátu í
rólegheitum. Upphófust þá mikil
slagsmál þar sem Gallagher missti
meðal annars báðar framtennur sín-
ar. Áttatíu lögregluþjónar voru kall-
aðir á staðinn og var Gallagher sá
eini sem var handtekinn. Réðst hann
á einn lögregluþjónanna fyrir utan
klúbbinn og kallaði nærstadda öllum
illum nöfnum. ■
Þrjátíu sekúndna auglýsing ílokaþætti Friends-seríunnar
sem sýndur verður í Bandaríkjun-
um annað kvöld kostar allt að 150
milljónum króna.
Slær hann þar með met sem
lokaþáttur Seinfeld setti á sínum
tíma þegar auglýsingaplássið
kostaði um 125 milljónir. Auglýs-
ingaplássið fyrir úrslitaleikinn í
bandarísku NFL-deildinni, Super
Bowl, er það eina sem hefur kost-
að meira á þessu ári. Talið er að
Friends-þátturinn, sem er klukku-
tíma langur, muni laða að sér að
minnsta kosti 50 milljónir áhorf-
enda og því um tilvalið tækifæri
að ræða fyrir auglýsendur að ná
athygli neytenda sinna.
„Þetta er einn af þessum sjald-
gæfu fjölmiðlaatburðum,“ sagði
Charlie Rutman, sem kaupir aug-
lýsingapláss fyrir stærstu fyrir-
tæki Bandaríkjanna. „Þetta eru
þættir sem hafa fangað heila kyn-
slóð og haft áhrif á lífsstíl fólks
undanfarin tíu ár. Þeir eru orðnir
miklu meira en bara sjónvaps-
þættir.“ ■
LIAM GALLAGHER
Lét öllum illum látum í München fyrir
sautján mánuðum síðan.
Ölvaður og
í kókaínvímu
FRIENDS
Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda síðan
þeir voru frumsýndir 1994. Mikil eftirvænt-
ing ríkir í Bandaríkjunum fyrir lokaþáttinn.
Friends-auglýsing
á 150 milljónir