Fréttablaðið - 15.06.2004, Síða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 110 stk.
Keypt & selt 30 stk.
Þjónusta 37 stk.
Heilsa 8 stk.
Skólar & námskeið 2 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 31 stk.
Atvinna 21 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Einföld í notkun en bíður samt upp á eftirtektarverð myndgæði.
4.0 milljón díla CCD flaga.
3x aðdráttarlinsa.
Tekur upp kvikmyndir, 10 ramma á sek í 160x120 dílum.
Hugbúnaður, rafhlaða, 16MB minniskort og snúrur fylgja.
Kostar aðeins kr. 27.900,-
Finepix A340 SPARAÐU ÞÉR FERÐINA!
3.1 milljón díla fjórðu kynslóðar Super CCD HR flaga – allt að 6 milljón díla myndir.
Létt (145 gr.) og nett (7,7x6,9x26,4cm).
Mjög fljót að verða tökuklár og skilar frábærum myndum.
Tekur upp kvikmyndir, 30 ramma á sek í 320x240 dílum,
3x aðdráttarlinsa.
Hugbúnaður, hleðslurafhlaða, hleðslutæki, 16MB minniskort og snúrur fylgja.
Kostar aðeins kr. 44.900,-
Finepix F420
Sækið ókeypis netframköllunar-forrit á www.fujifilm.is. Einfaldar og flýtir fyrir sendingu mynda.
Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 ı Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
Myndsmiðjan Egilsstöðum ı Framköllunarþjónustan Borgarnesi ı Filmverk Selfossi
Sjá nánar á www.fujifilm.is
Álfabikarinn er umhverfisvænn
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 15. júní,
167. dagur ársins 2004.
Reykjavík 2.56 13.28 24.01
Akureyri 1.40 13.13 24.50
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég er algjör skömm fyrir Ísland
þar sem ég hreyfi mig ekki og
borða frekar óhollt þannig að ég
er frekar léleg í þessum málum,“
segir Dagbjört Hákonardóttir,
einn af umsjónarmönnum þáttar-
ins Hjartsláttur á ferð og flugi.
„Mér finnst gaman að hreyfa
mig í góðu veðri en ég er ekki
mikið fyrir það að gera eitthvað
skipulagt. Ég geri frekar eitthvað
alveg út í bláinn,“ segir Dagbjört,
sem fær algjöra innilokunar-
kennd í líkamsræktarstöðvum.
„Ég er algjör anti-sportisti og hef
aldrei verið góð í íþróttum. Ég
meika til dæmis ekki að eiga lík-
amsræktarkort því umhverfið
heillar mig ekki. Ég vil frekar
hreyfa mig á mínum eigin for-
sendum. Þegar ég æfi í líkams-
ræktarstöðvum þá rifja ég upp
leikfimitímana í barnaskóla og
man þá hvað ég er léleg,“ segir
Dagbjört, sem skammast sín þá
fyrir það hve léleg hún er í
íþróttum og vill helst komast út
úr stöðinni.
„Ég er að leita að hinni einu
sönnu íþrótt fyrir mig. Þegar ég
finn hana þá mun ég stunda hana
af kappi. Þannig að þetta stendur
nú allt til bóta,“ segir Dagbjört,
sem finnst alveg æðislega
skemmtilegt að hjóla. „Mér finnst
hjólreiðar fínn ferðamáti til að
fara í vinnuna eða á milli staða.
Reyndar þarf ég að klæðast
frekar asnalegum fötum þegar ég
hjóla og það setur svolítið strik í
reikninginn,“ segir Dagbjört, en
hún var alltaf hjólandi áður en
hjólinu hennar var stolið núna
fyrir stuttu.
Dagbjört segist vera algjör
nammifíkill en er ekki mikið fyrir
mjög feitan og brasaðan mat.
„Mér finnst mjög feitur matur
ógeðslegur og er mikið fyrir að fá
mér holla og bragðgóða rétti. En
eftir hollustuna þá fæ ég mér iðu-
lega nammi.“ ■
Leitar að hinni sönnu íþrótt:
Anti-sportisti og nammifíkill
heilsa@frettabladid.is
Vísindamenn við háskóla
einn í London hafa sett fram
þá kenningu að óhreinindi á
heimili sporni ekki gegn of-
næmi. Vísindamennirnir vara
fólk við að safna óhreinindi á
heimilum sínum til að varnar
gegn astma og öðrum sjúk-
dómum. Þeir halda því einnig
fram að sóðskapur auki tíðni
sýkinga.
Reglulegt kynlíf
virðist hjálpa
námsmönnum að
fá betri einkunnir,
samkvæmt rannsókn félags-
fræðings við háskólann í
Hamborg. Kynlíf virðist auka
andlega getu nemendanna
og þurfa þeir að hafa minna
fyrir náminu en þeir sem sofa
einir. Þeir sem sofa lítið hjá
þurfa því að puða meira fyrir
góðum einkunnum.
Nú hefur japanska fyrirtækið
Matsushita hannað svefnvél
en vélin mun tryggja fullan
átta tíma svefn. Vélin verður
kynnt í Japan í næstu viku og
er áætlað að hún komist í
sölu á næsta ári. Búnaðurinn
verður þó ekki ókeypis en
áætlað er að vélin muni kosta
sem samsvarar um 2,2 millj-
ónum króna. Í Japan er sívax-
andi fjöldi fólks sem á við
svefntruflanir að stríða og því
halda fróðir menn því fram
að þessi vél sé algjört þarfa-
þing. Staðreynd er að 31 pró-
sent Japana fær ekki nægan
svefn og 29 prósent af þeim
segja það vera vegna of
mikillar streitu.
Á sumrin skín sólin stund-
um skært og þá er vinsælt að
nota sólgleraugu. Þeir sem
ganga með gleraugu þurfa þá
að fá sér linsur. Ef þú ert ekki
búin(n) að fara til augnlæknis
í tvö ár eða meira er gott að
kíkja til hans. Farðu í augn-
skoðun
hjá augn-
lækni þín-
um, fáðu
nýja mæl-
ingu og skelltu þér síðan út í
einhverja gleraugnaverslun og
kauptu þér linsur.
Strákum líður betur en
stelpum er niðurstaða nýrrar
danskrar rannsóknar. Þeim
finnst þeir vera heilbrigðari
og njóta ágæts félagslífs.
Rannsóknin var gerð á meðal
ungmenna á aldrinum 16–20
ára. 29% drengjanna en 40%
stúlknanna sögðu að þau
ættu við persónuleg vanda-
mál að stríða. 9% drengja og
16% stúlknanna sögðust oft
vera einmana. Helsta vanda-
mál drengjanna voru pening-
ar, þá kærustur og loks skól-
inn. Hjá stúlkunum voru
strákavandamál í efsta sæti,
þá skólinn og loks peningar.
87% drengjanna sögðust vera
við hestaheilsu en þó eiga
17% við offituvandamál að
stríða. 80% stúlknanna segj-
ast vera við góða heilsu.
Dagbjörtu Hákonardóttur finnst æðislegt að hjóla og er algjör nammigrís.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR HEILSUNA
Loksins alvöru garðhúsgögn í boði á Ís-
landi. Landsins mesta úrval. Viðarkó,
Dalvegi 28, Kópavogi. Sími 517 8509.
Landsins mesta úrval af bátum, utan-
borðsmótorum og bátavörum. Vélasal-
an ehf. Ánanaustum 1. S. 580 5300.
www.velasalan.is Ath. Sumaropnunar-
tími til kl. 18.00.
Snorrabraut 56
Til leigu 135 fm gott verslunarhúsnæði.
Laust strax. Upplýsingar veitir Jón Bjarni
í síma 861-5601.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I