Fréttablaðið - 15.06.2004, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 15. júní 2004
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
HEILSU LÍKAMA OG SÁLAR.
Áfengislaus fjölskyldustaður
Breytingarskeiðið er ekki sjúkdómur. Það er náttúrulegt ferli í ævi kvenna.
Breytingarskeiðinu geta hins vegar fylgt óþægindi. Úr náttúrunni má fá mild en afar
virk efni við þessum óþægindum. Í Kvennablóma eru:
• Soja ísóflavonóíðar, stundum nefndir jurtaestrógen
• Dong Quai, þekkt sem lækningajurt kvenna
• Villi-yam inniheldur jurtaprógesteronlík hormón
• Náttljósarolía til betri nýtingar kalks
• Drottningarhunang inniheldur fjölþætt bætiefni fyrir konur
• Kalk er afar nauðsynlegt steinefni fyrir beinin
• Magnesíum viðheldur ásamt kalki sterkum beinum
• E-Vítamín er andoxunarefni og nauðsynlegt fyrir margháttaða starfsemi líkamans
• Vítamín B-6 er m.a. nauðsynlegt til myndunar prótína, hormóna og taugaboðefna
Kvennablómi er einstök samsetning þessara náttúruefna. Berið innihald Kvennablóma
saman við innihald annara vörutegunda sem ætlaðar eru konum á þessu skeiði
ævinnar. Einungis Kvennablómi inniheldur ofangreind bætiefni öll í einni töflu.
ENGIN SKAÐLEG HORMÓN
Fyrir konur á breytingarskeiði
Valin náttúruleg bætiefni og jurtir fyrir konur á breytingarskeiði
! HÚSRÁÐ EINFÖLD LÍKAMSRÆKTEf þú ert að skjótast eitthvað að sinna störfum sem daglegt
amstur krefst, leggðu þá bílnum þínum eins langt frá staðn-
um sem þú þarft að komast á og þú getur. Notaðu hvert tæki-
færi til að ganga og hreyfa þig – það borgar sig á endanum.
Ég var nýlega staddur í Banda-
ríkjunum sem er ekki í frásögur
færandi nema vegna staðarins
sem ég dvaldi á. Ég fór í tveggja
vikna heimsókn til Yogi Shanti
Desai sem hefur margoft sótt Ís-
land heim. Þessi stutta grein fjall-
ar ekki um dvöl mína hjá honum
heldur frekar þann bæ sem Yogi
Shanti Desai býr í. Bærinn heitir
Ocean City og er í New Jersey en
það er til annar bær með sama
nafni í Maryland. Það merkilega
við þennan bæ í NJ er að þar má
hvergi selja áfengi. Þar er engin
áfengisverslun, hvergi er selt
áfengi við ströndina, á veitinga-
stöðum eða kaffihúsum. Íbúa-
fjöldi allt árið er um 15 þúsund en
á sumrin tífaldast sá fjöldi iðulega
og þar búa allt að 150 þúsund
manns. Og af hverju sækir fólk í
Ocean City? Vegna þess að bær-
inn er áfengislaus fjölskyldu-
staður. Ég var þar um hvítasunn-
una en þá halda Bandaríkjamenn
upp á Memorial Day. Þá fylltist
ströndin af fjölskyldum og ég skal
segja ykkur að ég hef aldrei upp-
lifað jafn góða stemningu á neinni
sólarströnd, nema þá kannski
mannlausri strönd í Ástralíu. Ég
vildi gjarnan upplifa þessa stemn-
ingu hér á landi og spyr því:
Hvaða íslenska bæjarfélag hefur
hugrekki til að bjóða fjölskyldum
upp á áfengislausa og áhyggju-
lausa umgjörð? ■
gbergmann@gbergmann.is.
smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Á Íslandi eru um 75.000 konur sem
hafa blæðingar einu sinni í mán-
uði. Flestar nota dömubindi eða
túrtappa á meðan á blæðingum
stendur en undanfarin ár hefur
álfabikarinn svokallaði verið að
ryðja sér til rúms. Álfabikarinn er
margnota gúmmíbikar sem tekur
við tíðablóði og kemur í stað dömu-
binda og tappa. Hann er gerður úr
100% náttúrlegu gúmmíi, án allra
aukaefna og veldur því ekki
ertingu.
Þegar það er haft í huga að
venjuleg kona hendir að meðaltali
100-150 kílóum af bindum og töpp-
um um ævina og það tekur mörg
ár fyrir umhverfið að brjóta niður
plastið og bleikiefnin sem notuð
eru við framleiðsluna er óhætt að
fullyrða að álfabikarinn sé um-
hverfisvænn kostur. Ef vel er með
hann farið endist hann í tíu ár.
Álfabikarinn er auðveldur í
notkun. Honum er komið fyrir
neðarlega í leggöngum meðan á
tíðum stendur og þarf að tæma á
4–12 tíma fresti, en það er
þónokkuð misjafnt eftir því hvað
blæðingarnar eru miklar. Að
notkun lokinni er álfabikarinn
hreinsaður upp úr volgu vatni sem
er búið að blanda ediki að einum
fjórða og settur upp í skáp þar til
næstu blæðingar hefjast.
Álfabikarinn hentar flestum
konum. Ekki er þó mælt með að
konur með latexofnæmi noti hann
vegna þess að hann er úr nátt-
úrugúmmíi sem inniheldur latex.
Álfabikarinn fæst í Móðurást,
Dalbrekku 28, Kópavogi. ■
Álfabikarinn er þægilegur og tekur lítið
pláss
Álfabikarinn:
Umhverfisvænn valkostur
Með álfabikarinn er auðvelt
að fara um fjöll og firnindi
svo að eitthvað sé nefnt.
SMÁAUGLÝSINGAR ALLA DAGA
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins