Fréttablaðið - 27.06.2004, Qupperneq 29
SUNNUDAGUR 27. júní 2004 19
Þó að Þröstur hafi lengi fengist við
tónlist og samið mörg lög í gegnum
árin hefur hann ekki gefið út plötu
fyrr en nú, þegar 75 ára afmælið er
á næstu grösum.
Tónlistaráhuginn kom af sjálfu
sér enda má segja að Þröstur sé al-
inn upp við tónlist. Faðir hans, Sig-
tryggur prestur í Dýrafirðinum,
var nokkuð iðinn við kolann. „Pabbi
var orðinn 67 ára þegar ég fæddist
og samdi mörg sálmalög eða aðra
trúartónlist og ég man vel eftir
honum hummandi lög sem hann var
að semja. Svo fór ég að stelast í org-
elið og átti að læra nótur en þótti
leiðinlegt að spila sálma svo minna
varð úr því en til stóð. Ég fór svo að
spila eftir eyranu og það á harm-
ónikkur sem til voru í nágrenninu,“
segir Þröstur.
Hann hóf störf hjá Landhelgis-
gæslunni árið 1948 og sigldi um
landhelgina á varðskipum, fyrst
sem stýrimaður og síðar sem skip-
herra. Hann hafði þá keypt sér tví-
borða orgel, hálfgerðan skemmt-
ara. „Ég hafði orgelið með mér um
borð og æfði mig þegar rólegt var
að gera. Þegar ég hafði náð góðum
tökum á einhverju lagi hækkaði ég
í græjunni en held að öðrum skip-
verjum hafi ekki þótt þetta mjög
sniðugt. Svo hótaði ég mönnum að
ef þeir mættu ekki á réttum tíma til
brottfarar myndi ég setja æfing-
arnar í hátalarakerfið. Þetta bar
mjög góðan árangur, allir mættu á
réttum tíma og það voru engin al-
varleg hegðunarvandamál um borð
á meðan þessi hótun var í gildi.“
Athyglissýki og tímamót
Þröstur kallar plötuna sína Haf-
blik og á henni eru 10 lög, öll eftir
hann. Ljóðin ortu Gylfi Ægisson,
Kristján Hreinsson og Torfi Ólafs-
son. Fimm söngvarar syngja lögin;
þau Ari Jónsson, Einar Júlíusson,
María Björk Sverrisdóttir, Ragnar
Bjarnason og Ragnar Gunnarsson.
Þröstur lét af störfum fyrir næst-
um 15 árum og hefur gefið tónlist-
inni betri gaum eftir það. „Eftir að
ég kom í land fór ég að fást betur við
þetta og það má segja að þessi 10 lög
séu skásti árangurinn,“ segir hann.
En hvers vegna ræðstu í þessa
útgáfu? „Ja, þetta er bara athyglis-
sýki, meðfædd eða áunnin og ólækn-
andi. Svo finnst sumum þessi lög
falleg og þar sem dvölin hér á jörð-
inni styttist nú þá er kannski gaman
fyrir afkomendur að eiga þetta og
hlusta á þetta. Rifja eitthvað upp
með afa eða langafa.“
Athyglissýkin og bautasteinninn
eru þó ekki einu ástæður útgáfunn-
ar, Þröstur stendur á tvennum
tímamótum í lífinu. „Jú jú, ég er nú
orðinn rúmlega fimmtugur, altso
brúðgumi, og búinn að vera til í
þrjá fjórðu úr öld. Það eru síðustu
forvöð að gera eitthvað.“
Kona Þrastar, Guðrún Pálsdóttir,
Dúra, hefur hlýtt á lögin verða til og
um hana er raunar sungið í einu
þeirra. Henni líkar tónlist bóndans
vel. „Mjög vel, ég gæti þetta náttúr-
lega ekki nema hún hafi þolað þetta.
Hún lygnir aftur augunum þegar
hún hlustar á þetta,“ segir Þröstur.
Gott að koma í land
Eins og áður sagði starfaði
Þröstur Sigtryggsson í 42 ár hjá
Landhelgisgæslunni, í lofti, láði og
legi. Hann var þó lengst af á sjón-
um og var meðal annars á Þór í
þorskastríðinu 1972 og á Ægi í
stríðinu þremur árum síðar. Engu
að síður fannst honum ágætt að
koma í land. „Já, það var nú að
mörgu leyti gott. Ég fór á skrifstof-
una og starfaði í stjórnstöð, var
björgunarstjóri við björgunarleit
og fleira slíkt. En síðan varð þetta
ansi bindandi, maður fór eiginlega
beint af skrifstofunni til að sitja við
símann eða útkallstækið heima hjá
sér. Ég komst ekki einu sinni á skíði
og svo þurfti að spyrja um leyfi ef
maður ætlaði að fá sér í glas. Mað-
ur fékk frí um önnur hver áramót
og önnur hver jól, annars var mað-
ur bara á útkallinu nema í sumar-
fríum. Það voru ýmis vandkvæði á
þessu svo ég sagði nú bara upp
fljótlega eftir að ég hafði náð 95 ára
reglunni.“
bjorn@frettabladid.is
Þröstur Sigtryggsson skipherra stóð í ströngu í Þorskastríðunum 1972 og 1975. Hann kom í land fyrir 14 árum eftir 42 ára störf fyrir Landhelgis-
gæsluna og hefur síðustu ár sinnt tónlistinni af heilum hug. Þröstur sendir nú frá sér sína fyrstu geislaplötu.
Sumum finnst
lögin falleg
Lagið Blástur er án texta en um það segir
Þröstur á plötuumslaginu: Blástur er það
kallað hjá Veðurstofu Íslands þegar með-
alhraði vinds er um 7 metrar á sekúndu,
24 kílómetrar á klukkustund eða 13 hnút-
ar (sjómílur á klukkustund). Blástur getur
verið úr öllum áttum, ýmist hlýr eða kald-
ur, nístandi eða notalegur, þurr eða rakur.
Blástur hvala er rakur, upp á við. Blástur
Sigurðar Flosasonar er hlýr og seiðandi,
samtímis úr öllum áttum, einnig ofan frá.
Umvefjandi.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/G
VA
ÞRÖSTUR SIGTRYGGSSON, SKIPHERRA OG LAGASMIÐUR