Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2004, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 27.06.2004, Qupperneq 37
27SUNNUDAGUR 27. júní 2004 0–1 Sandy Martens 26. DÓMARINN Emil Laursen Dapur BESTUR Á VELLINUM Bjarni Þórður Halldórsson Fylki TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–16 (1–9) Horn 9–5 Aukaspyrnur fengnar 9–13 Rangstöður 1–8 GÓÐIR Bjarni Þórður Halldórsson Fylki Þórhallur Dan Jóhannsson Fylki Ólafur Ingi Stígsson Fylki Eyjólfur Héðinsson Fylki Sandy Martens Gent Mustapha Oussalah Gent Jacky Peeters Gent ■ FYLKIR – GENT 0-1 Fylkismenn úr leik í Intertoto-keppninni: Sáu aldrei til sólar FÓTBOLTI Fylkismenn hafa lokið keppni í Intertoto-keppninni eftir 1–0 tap gegn belgíska félaginu Gent á Laugardalsvelli í gær. Gent vann fyrri leikinn í Belgíu 2–1 og fer því áfram 3–1 saman- lagt. Leikurinn á Laugardalsvelli í gær var vægt til orða tekið hundleiðinlegur og var ekki að sjá að það væri eitthvað undir í leiknum. Fylkismenn hófu leikinn skelfi- lega og komust vart yfir miðju í fyrri hálfleik. Það var síðan fyllilega sanngjarnt þegar Sandy Martens kom Belgunum yfir með skoti af stuttu færi. Belgarnir féllu til baka í síðari hálfleik og leyfðu Fylkismönnum að koma. Þrátt fyrir að hafa boltann lengst- um var lítið púður í sóknarleik Fylkis og aðeins eitt færi leit dagsins ljós. Frammistaða Fylkis- manna var léleg. Þeir sá aldrei til sólar í leiknum og áttu ekkert skil- ið úr þessum leik. „Fyrsti hálftíminn var lélegur hjá okkur en okkar leikur batnaði eftir að þeir skoruðu,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkis. „Þetta var skárra í seinni hálfleik en það vantaði kraft og gæði til að fá eitthvað úr leiknum.“ ■ EITT AF LJÓSUNUM Í MYRKRINU Ólafur Ingi Stígsson var einn fárra leikmanna Fylkis sem gátu eitthvað í gær. Hann sést hér í harðri baráttu við einn leikmanna Gent. Páll Axel Vilbergsson tryggði íslenska karlalandsliðinu eina sigurinn gegn Belgum: Flott flautukarfa fyrirliðans KÖRFUBOLTI Páll Axel Vilbergsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðs- ins, tryggði íslenska liðinu eina sigurinn gegn Belgum, 77–76, með þriggja stiga körfu um leið og leiktíminn rann úr í þriðja og síðasta vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Stykkishólmi í gærdag. Belgar unnu tvo fyrstu leikina, 78–88 í Borgarnesi á fimmtudags- kvöld og svo 74-78 í Keflavík á föstudagskvöld. Íslenska liðið sýndi betri spilamennsku með hverjum leik og flautukörfu fyrir- liðans var vel fagnað af fjölmörg- um stuðningsmönnum sem studdu vel við bakið á sínum mönnum í Hólminum. Það var reyndar ólíkt hlut- skipti fyrirliða liðanna á lokamínútunum í Hólminu. Fyrirliði Belga, Alex Hervelle klikkaði á tveimur vítaskotum þegar 8 sekúndur voru eftir og staðan var 74–76 fyrir Belga. Íslenska liðið náði frákastinu og Páll Axel Vilbergsson tók síðan sóknarfrákast og setti erfitt þriggja stiga skot niður um leið og tíminn rann út. Hetja og skúrkur. Maður dagsins var þó heima- maðurinn Hlynur Bæringsson sem kórónaði góða frammistöðu í leikjunum þremur með því að skora 23 stig, taka 14 fráköst og gefa 3 stoðsendingar í síðasta leiknum. Hlynur nýtti 7 af 11 skotum sínum og 6 af 7 vítaskot- um og átti algjöran stórleik. Páll Axel lék einnig sinn besta leik þessa helgi og skoraði 16 stig. Jakob Sigurðarson gerði 11 stig og þeir Magnús Þór Gunnarsson, Sigurður Þorvaldsson og Friðrik Stefánsson skoruðu allir 7 stig. Magnús Þór átti mjög góða inn- komu og var einnig með 7 fráköst og 4 stoðsendingar. Íslensku strákarnir áttu góða möguleika á að vinna annan leikinn sem fram fór í Keflavík en liðið kastaði frá sér sigrinum á jöfnum og æsispennandi loka- mínútum þar sem Belgar skoruðu 9 af síðustu 12 stigum leiksins og unnu 74–78. Helgi Már Magnússon var mjög góður í Keflavík með 16 stig og 7 fráköst, Fannar Ólafsson skoraði 13 stig, Friðrik Stefánsson gerði 9 og þá má ekki gleyma Hlyni Bæringssyni sem var með 8 stig, 10 fráköst (6 í sókn), 7 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Páll Axel var síðan með 7 stig. ■ HLYNUR ALLT Í ÖLLU Hlynur Bæringsson skoraði 23 stig og tók 14 fráköst í leiknum gegn Belgum í gær. 1. deild karla: HK sækir að Val FÓTBOLTI HK-menn eru farnir að anda ofan í hálsmálið hjá Vals- mönnum eftir leiki gærdagsins í 1. deildinni. Þeir lögðu Þrótt á Valbjarnarvelli, 0-1, með marki Viktors Knúts Viktorssonar en á sama tíma gerðu Valsmenn jafn- tefli við Breiðablik í Kópavogi, 1-1. Pétur Sigurðsson kom Blik- um yfir á 9. mínútu en Matthías Guðmundsson jafnaði fyrir Val í upphafi síðari hálfleiks. Vals- menn voru betri aðilinn í leikn- um en nýttu færi sín illa. Njarðvík er áfram í þriðja sæti eftir markalaust jafntefli gegn Þór en Fjölnismenn hopp- uðu upp í sjöunda sæti með góð- um sigri á Stjörnunni í Garða- bæ, 2-3. Dragoslav Stojanovic og Valdimar Kristófersson komu Stjörnunni tvisvar yfir í leiknum en það dugði ekki til þar sem Stanisa Mitic skoraði í þrígang fyrir Fjölnismenn og tryggði þeim stigin þrjú. Svo gerðu Völsungur og Haukar jafntefli á Húsavík í sex stiga leik. Sævar Eyjólfsson kom Haukum yfir á 38. mínútu en Hermann Aðalgeirsson jafn- aði fyrir Völsung á 58. mínútu og þar við sat. ■ Luis Figo: Er ekki í fýlu EM Í FÓTBOLTA Luis Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgals, segir að Luis Figo sé ekki í fýlu en ann- að mátti halda er honum var skipt af velli gegn Englendingum. Þá strunsaði Figo inn í klefa án þess að kveðja kóng né prest og höfðu Portúgalar áhyggjur af eftirmál- um þess. Þeir verða engir að sögn Scolari en hann segir að Figo hafi tekið fullan þátt í fagnaðarlátun- um eftir leikinn og að hann hafi legið á bæn inni í búningsklefan- um er vítaspyrnukeppnin fór fram. „Ég bið ykkur blaðamenn um að virða mann sem á skilið að vera virtur. Þegar við tölum um Figo þá tölum við um mann sem er til í að verja land sitt og legg- ur sig allan fram. Gleymið þessu atviki. Hann er ekki í fýlu. Ég get líka sagt ykkur að hann gerir margt í klefanum sem þið vitið ekki um. Figo er liðinu mikilvæg- ur og verður það áfram,“ sagði Scolari. ■ 1. DEILD KARLA Völsungur-Haukar 1-1 Stjarnan-Fjölnir 2-3 Njarðvík-Þór 0-0 Breiðablik-Valur 1-1 Þróttur-HK 0-1 STAÐAN: Valur 7 5 2 0 13-5 17 HK 7 5 1 1 7-6 16 Njarðvík 7 4 1 2 10-5 13 Breiðablik 7 4 1 2 11-10 12 Þór 7 2 4 1 7-4 10 Þróttur 7 2 2 3 8-10 8 Fjölnir 7 2 0 5 9-11 5 Völsungur 7 1 2 4 9-11 5 Haukar 7 1 2 4 8-10 5 Stjarnan 7 1 1 5 10-17 4 EM Í FÓTBOLTA Fyrri hálfleikurinn var hreint út sagt leiðinlegur. Bæði lið léku mjög varfærnislega, voru þétt og skipulögð aftast á vellinum og gáfu fá færi á sér. Fyrir vikið var leikurinn án allra alvöru færa en örfá hálffæri litu dagsins ljós sem ekkert varð úr. Hollendingar áttu síðari hálfleik- inn með húð og hári. Svíar bökkuðu enn aftar og sóttu aðeins á þrem mönnum, sem skapaði litla hættu. Sænski varnarmúrinn var þéttur og Hollendingum gekk illa að brjóta hann niður. Van Nistelrooy komst reyndar í tvígang í fín færi en allt kom fyrir ekki. Besta færi Svía fékk Zlatan Ibrahimovic eftir mis- tök Jaaps Stam í hollensku vörninni og Zlatan var klaufi að gera ekki betur. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi þar sem Hollending- ar pressuðu stíft, fengu nokkur færi en inn vildi boltinn ekki og því varð að framlengja. Framlengingin var bráðfjörug. Arjen Robben var nærri búinn að skora strax í upphafi eftir mistök Andreas Isaksson í sænska markinu en Kim Källström fékk gott færi hinum megin skömmu síðar. Isaks- son varði síðan stórglæsilega auka- spyrnu Clarence Seedorf á 107. mínútu en þar var á ferð ein besta markvarsla keppninnar. Á 112. mín- útu fékk Svíinn Henrik Larsson síð- an dauðafæri en hann skaut boltan- um í þverslá hollenska marksins. Þarna vöknuðu Svíar því Freddie Ljungberg skaut í stöng hollenska marksins fjórum mínútum síðar. Ótrúleg dramatík. Fleira markvert gerðist ekki í framlengingunni og því varð að grípa til vítaspyrnu- keppni í þessum ótrúlega leik. Það var hinn 21 árs gamli Kim Källström sem tók fyrsta vítið fyrir Svía og strákurinn skoraði örugg- lega, 1-0. Þá var komið að Ruud van Nistelrooy og hann skoraði líka af miklu öryggi, 1-1. Henrik Larsson var næstur og hann var ekki í mikl- um vandræðum með að skora, 2-1. Johnny Heitinga tók næsta víti fyr- ir Holland og hann skoraði af feiknaöryggi, 2-2. Zlatan Ibra- himovic tók þriðju spyrnu Svía og hann skaut langt yfir markið, 2-2. Michael Reiziger gat komið Hol- lendingum yfir með næstu spyrnu og það gerði hann af öryggi, 2-3. Það var því mikil pressa á Freddie Lj- ungberg sem tók fjórðu spyrnu Svía. Hann mætti einbeittur á punktinn og skoraði með glæsibrag – í slána, bakið á van der Sar og svo inn, 3-3. Fjórðu spyrnu Hollendinga tók Philip Cocu og hann skaut í stöng, 3-3, og allt jafnt fyrir síðustu vítin. Christer Wilhelmsson tók síð- ustu spyrnu Svía og skoraði örugg- lega, 4-3. Það voru þung spor fyrir Roy Makaay að punktinum en hann svitnaði ekki og skoraði örugglega, 4-4, og bráðabani. Fyrsta spyrnu bráðabanans tók fyrirliði Svía, Olof Mellberg, en Edwin van der Sar varði glæsilega frá honum, 4-4. Hinn tvítugi Arjen Robben gat því skotið Hollendingum í undanúrslit og það gerði hann örugglega, 4-5. henry@frettabladid.is Hollenskur sigur í vítaspyrnukeppni Þrátt fyrir fjölda færa tókst ekki að knýja fram úrslit í leik Svíþjóðar og Hollands fyrr en í vítaspyrnu- keppni. Hún fór í bráðabana og þar reyndist Arjen Robben vera hetja en Olof Mellberg skúrkur. DRAMATÍSKUR SIGUR HOLLENDINGA Á SVÍUM Hollendingar hafa farið illa út úr vítaspyrnukeppnum á síðustu stórmótum en það var ekki uppi á teningnum í gær. Þá tryggðu þeir sér sigur á Svíum í vítaspyrnu- keppni. Hér fagna Ruud van Nistelrooy og Arjen Robben en þeir voru bestu menn vallarins í gær.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.