Fréttablaðið - 27.06.2004, Qupperneq 44
Hvati fyrir kynlíf
34 27. júní 2004 SUNNUDAGUR
... fá kjósendur fyrir að nýta
kosningarétt sinn með einum eða
öðrum hætti.
HRÓSIÐ
Það er örugglega óhætt að full-
yrða fyrir fram að tónleikar
Peaches í Klink og Bank á þriðju-
dagskvöldið verði svakalegir.
Tónlist hennar er engu lík, ein-
föld blanda raftónlistar og
pönks.
Peaches er fædd í Kanada en
hefur hefur búið í Berlín síðustu
árin þar sem hún er mikils metin
á listasenunni. Textar hennar
fjalla opinskátt um kynlíf á þann
hátt að hún hefur útilokað sig frá
allri útvarpsspilun. Frumraun
hennar, Teaches of Peaches, frá
árinu 2000, þótti það ögrandi að
hróður plötunnar og ótrúleg
sviðsframkoma skiluðu Peaches
á síður tískublaðanna. Lög henn-
ar eru einnig mikið spiluð á
klúbbum um allan heim og
óvenju mikið á homma- og lesb-
íustöðum. Kannski vegna laga-
heita á borð við Fuck the Pain
Away og I Don’t Give a Fuck.
Peaches gerir allt sjálf, forrit-
ar, semur, útsetur og spilar á öll
hljóðfæri sjálf.
Seinni plata hennar, Father-
fucker, frá því í fyrra, þykir ekki
síður ögrandi. Það að koma fólki
í opna skjöldu virðist vera afl
sem Peaches hefur náð að beisla
fullkomlega. Titil nýju plötunnar
útskýrir hún sem mótvægi við
karlmennskuhroka gagnvart
kynhvötinni og kvenleikanum.
Framan á umslaginu sést
Peaches skarta síðu svörtu
skeggi. Þar segist hún vera að
blanda kvenlegri hlið sinni sam-
an við þá karlmannlegu.
Á tónleikum er Peaches
þekkt fyrir að ögra áhorfendum
eins og hún getur. Fólk má því
eiga von á því að hún skutli sér á
hópinn í miðju lagi eða spýti
blóði yfir sig alla. Sjálf segist
hún vera holdgervingur frelsis í
kynlífi. Hún berst gegn kynja-
skiptingu í öllu með tilheyrandi
stælum. Hún er líka yfirleitt fá-
klædd á sviði.
„Áhorfendur vilja þó ekkert
endilega ríða mér, þá langar bara
að ríða,“ útskýrði hún í viðtali
við Spin Magazine í fyrra. „Ég er
frekar hvati fyrir kynlíf. Á ein-
um tónleikunum mínum greip
hljóðmaðurinn kærustuna sína
og fór inn á salerni að gera það.
Það er spennandi.“
Miðasala er hafin í 12 Tónum.
Miðaverð er 2.500 krónur. Húsið
opnar kl. 19. Egill Sæbjörnsson
sér um upphitun og Sindri Eldon
þeytir skífum. ■
TÓNLIST
PEACHES
■ Kanadíska elektróclash-drottningin Peaches
heldur tónleika í Klink og Bank á þriðjudag.
PEACHES
Segir sýningu sína svo kynæsandi að áhorfendur eigi erfitt með sig.
Það viðraði frekar illaá bandarísku stjörn-
urnar Shannon Eliza-
beth, Tanya Roberts og
Eric Szmanda þegar
þau spiluðu golf á
Amstel Open golfmót-
inu á fimmtudag og föstudag. Fáum sög-
um fer af Elizabeth, sem þekktust er fyr-
ir að hafa fækkað fötum í American Pie
unglingamyndunum, og einhverjir sem
hugðust berja hana augum í rigningunni
á fimmtudagskvöldið fóru fýluferð.
Gamla Bond-stúlkan Tanya Roberts var
öllu meira áberandi en hún og golffélag-
ar hennar voru vel við skál og þóttu full
hress miðað við það hvernig fólk al-
mennt hegðar sér þegar það stundar
þessa virðulegu íþrótt. Þá höfðu þátttak-
endur á mótinu orð á því að Roberts
hlyti að vera búin að fjárfesta vel í útliti
sínu en leikkonan, sem er fædd 1955,
leit út eins og unglingsstúlka, unglegri
en þegar hún spókaði sig með James
Bond á hvíta tjaldinu 1985.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Laugavegi 32 sími 561 0075
Stokkseyringurinn Daníel Örn
Heiðarsson gerði sér lítið fyrir og
lenti í fjórða sæti í heimsmeist-
arakeppninni í hnífasmíði sem
haldin var í Bandaríkjunum á dög-
unum.
Hann segir að árangurinn hafi
komið sér á óvart. „Ég var alveg
hissa og hélt að þetta væri djók
fyrst. Það voru margir þátttak-
endur þarna og ég kom seint inn í
keppnina. Ég hefði sennilega get-
að náð lengra ef ég hefði byrjað
fyrr. Dómararnir töluðu um mig
sem listamann á heimsmæli-
kvarða og fannst undarlegt að Ís-
lendingar vissu ekki neitt um
mig,“ segir Daníel. Eftir keppnina
fór hann að hugleiða að fara út til
Danmerkur í listnám, þar sem
hann gæti meðal annars menntað
sig frekar í hnífasmíðinni. Sú ferð
er nú í burðarliðnum.
Daníel hefur verið listrænn í
sér síðan hann man eftir sér. „Ég
uppgötvaði útskurð á hnífum fyrir
tilviljun. Ég fór að skera út og
hafði aldrei fengið kennslu. Svo
fór ég að smíða skartgripi en
hafði aldrei fengið kennslu í því.“
Hann segist hafa selt þónokkuð af
hnífunum sínum, sem flestir eru
veiðihnífar með fornri áferð, í
gegnum heimasíðu sína, mookma-
an.com. Hafa Bandaríkjamenn
verið helstu kaupendurnir.
Daníel hefur ekki ákveðið
hvort og þá hvenær hann taki þátt
í næstu keppni. Það eigi eftir að
koma í ljós en margar slíkar séu í
gangi. „Ég ætla að byrja að skoða
þetta þarna úti og svo ætla ég að
taka ákvörðun út frá því.“ ■
VEIÐIHNÍFUR
Þess fallegi veiðihnífur, Giigoo, var
smíðaður af Daníel Erni.
Hnífasmiður á heimsmæliskvarða
Hvernig ertu núna? Saddur eftir kökuveislu
hjá Siggu og Jóa.
Hæð: Önnur hæð, strax til vinstri.
Augnlitur: Gráblár.
Starf: Dagskrárgerðarmaður og birtinga-
stjóri á Skjá einum.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Hjúskaparstaða: Dásamleg sambúð.
Hvaðan ertu? Að norðan.
Helsta afrek: Freyja Káradóttir.
Helstu veikleikar: Matur, finnst gott að
borða.
Helstu kostir: Mögnuð grillfimi.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: King of
Queens klikkar aldrei.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Allt á útvarp Latabæ.
Uppáhaldsmatur: Maturinn hennar Lovísu
minnar.
Uppáhaldsveitingastaður: Hereford.
Uppáhaldsborg: Vail í Colorado telst samt
varla borg.
Uppáhaldsíþróttafélag: KA.
Mestu vonbrigði lífsins: Þegar ég og bróð-
ir minn fengum ekki vinnu sem stjórnendur
Stundarinnar okkar.
Hobbý: Skíði.
Viltu vinna milljón? Já, takk.
Jeppi eða sportbíll: Amerískur pick-up ef
það mætti.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór? Heimsfræg rokkstjarna.
Skelfilegasta lífsreynslan: Þegar ég villtist
í Amaro-versluninni á Akureyri þegar ég var
lítill.
Hver er fyndnastur? Hlynur Már Erlings.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Heitkona mín
Lovísa.
Trúir þú á drauga? Já.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Tígrisdýr.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Kónguló.
Áttu gæludýr? Nei...aldrei átt.
Hvar líður þér best? Heima með fjölskyld-
unni.
Besta kvikmynd í heimi: Dumb and
Dumber.
Besta bók í heimi: Chocolate Dreams eftir
Christine France.
Næst á dagskrá: Út að grilla með Kára og
Villa.
Líður best heima hjá fjölskyldunniBakhliðin
KÁRI JÓNSSON, GÍTARLEIKARI NAGLBÍTANNA
OG ÞÁTTASTJÓRNANDI Á SKJÁ EINUM.