Fréttablaðið - 27.06.2004, Qupperneq 46
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 50 00, fax: 550 50 16 Ritstjórn: 550 50 05, fax: 550 50 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 50 10 - fax 550 57 27, auglysingar@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Í
SL
E
N
SK
A
A
U
G
L
†S
IN
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
B
I
25
06
3
06
/2
00
4
Allir vinnuskólaverkamenn sem leggja sumarlaunin sín inn á Námureikning
í Landsbankanum eiga möguleika á því að raka inn peningum í sumar.
Í hverri viku drögum við út Námufélaga sem fær 10.000 krónur inn á
reikninginn sinn og í lok sumars fær einn rosalega heppinn hvorki meira
né minna en 100.000 krónur!*
*B
un
di
nn
r
ei
kn
in
gu
r
Það skiptir máli að alltaf sé nóg aðgera. Minnsta kosti er þá eitthvað
um að vera. Aðgerðarleysið er versta
mál. Einu gildir hvort miklu eða litlu
sé hrundið í framkvæmd. Maður
verður að hafa mikið fyrir stafni í
baslinu.
EITT MERKI um reykvíska at-
hafnasemi hefur orðið auðsætt á síð-
ustu árum. Þetta er ekki R-listaein-
kenni. Þetta fór áður leynt en fer nú
fram í augsýn þeirra sem nenna að
nota augun. Hér er um það að ræða
að hirða dósir, fara ófeiminn í rusla-
tunnur um hábjartan dag og vera
ekkert að fela pokann. Eitt gott hafa
innlendir lært af komu útlendinga,
einkum konunni með ruslaprikið.
Landlægri feimni hefur verið svipt
af þeim sem voru í felum.
FÓLK í dósahringiðunni fór árla á
fætur við að drýgja ellilífeyrinn eða
fá pening til að hjálpa bágstöddum
barnabörnum. Dósir sem þau drukku
úr og fleygðu eftir böllin hirti amma
undir morgun og seldi.
TIL VORU vaktir sem um giltu
óskrifuð lög. Hinni helgu borg var
deilt í svæði. Menn innan síns létu
eins og þeir þekktu ekki aðra á öðr-
um svæðum. Átök milli svæða þekkt-
ust ekki. En allir vissu allt um alla,
einkum hvað þeir höfðu drjúgan
skilding upp úr sér með tínslunni.
Það kynlega var að þótt dósakúlur
væru á nokkrum stöðum og margir
ráðsettir og vistvænir færu með dós-
ir sínar í þær, vildi enginn fiska dós
upp um göt þeirra á nóttinni. Dósa-
fólkið var sómakært. Þetta hefði ver-
ið svindl. Gamli íslenski heiðarleik-
inn var ríkur í baslinu.
AÐ FARA í dósakúlu hefði verið að
svíkja ríkið og stela frá Sorpu, en
dósir á glámbekk götunnar almenn-
ingseign. Einstaklingsframtak og
hirðusemi fólst í því að stinga þeim í
pokann, og aðeins gott eitt um það að
segja.
ÍSLAND í sinni dýrð og eymd lýsti
sér í dósahringrásinni. Mörkin milli
þessa tvenns, æsku og elli, voru um
óttustund. Svo komu Austurlandabú-
arnir og hirtu ófeimnir dósir hvar
sem þær var að finna. Um leið var
bylting gerð. Þá breyttist allt. Hinir
innlendu lærðu af þeim, nú frjálsir í
því að hirða bara fyrir sjálfa sig. ■
Athafnasemin
99 kr/skeytið.
Sendu SMS skeytið JA POPP
á númerið 1900 & þú gætir
farið á tónleikana. Við sendum þér
spurningu sem þú svarar með SMS
JA A, B eða C á númerið 1900.
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR