Fréttablaðið - 02.07.2004, Blaðsíða 28
Settu einn hluta af ammoníaki og þrjá hluta
af vatni saman í brúsa og blandaðu vel saman.
Settu þetta á eldhúsfleti og þá hverfa blettir
og efnið sótthreinsar í leiðinni.
Dömuda
gar
15 % afs
láttur
a
f dömuh
jólum
BRONCO PRO TRACK 26”
21 gíra Shimano/GripShift.
Tilboð aðeins kr. 17.850
GIANT GSR F/S LDS 26”
Alvöru dömu demparahjól.
Tilboð kr. 22.015
SCOTT TIKI 26”
21 gíra Shimano.
Vandað dömuhjól með álstelli
og demparagaffli.
Tilboð kr. 32.130
BRONCO WINDSOR 26” 3 gíra
með fótbremsu. Hátt stýri, breiður hnakkur
með dempara. Bretti, bögglaberi og karfa.
Tilboð
kr. 22.865
BRONCO BOSTON 26”
21 gíra Shimano. Hátt stýri,
breiður hnakkur með dempara.
Bretti, bögglaberi og karfa.
Tilboð kr. 23.715
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
06
. 2
00
4
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett
og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði.
Ábyrgð og upphersla.
Skipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
Sumartilboð
Amerískar lúxux heilsudýnur
– Betra verð, betri gæði –
Ungur íslenskur hönnuður að
nafni Björg Stefánsdóttir býr og
starfar með Nicola Girolami fyrir
fyrirtækið Flatlife-Almost Wall-
paper við hönnun á veggfóðri, en
fyrirtækið er í hans eigu og hefur
starfað frá árinu 1999.
Nicola stofnaði Flatlife í
London árið 1999 eftir að hafa
stundað nám í innanhússhönnun
við Chelsea College of Art and
Design og mastersnám við Royal
College of Art.
Nicola tók þátt í sinni fyrstu
sýningu, 100% design, í London
sama ár. Margar sýningar fylgdu í
kjölfarið og nú framleiðir Flatlife
tvær línur af veggfóðri, annars
vegar tilbúnar lausnir fyrir vegg-
klæðningu, „ready made“ og hins
vegar sérsniðnar.
Nýjasta framleiðsla fyrirtæk-
isins í hinni tilbúnu vörulínu er
kölluð „Instant Wall features“ eða
„Tilbúinn skyndiveggur“.
Eins og myndirnar sýna er upp-
runi myndefnis þessa veggfóðurs
sóttur í allavega hversdagslegar
þrívíðar sjónrænar upplifanir úr
heimilislífi fólks, nema að hjá
Flatlife er allt flatt og í tvívídd.
Svarthvítar myndir af hlutum eða
uppstillingum eru stækkaðar upp í
raunstærð og þeim varpað með
blöndu af stafrænu og hand-
þrykktu silkiprenti á tauefni,
plastrenninga, plexígler, gifsplöt-
ur, viðarþiljur og fleira.
Einstök svæði myndanna eru
svo handmáluð eftir á til þess að
skerpa á andstæðum eða á vægi
smáatriða.
Sérsniðnu veggfóðrin eiga sér
engin takmörk og hafa verið mjög
vinsæl sökum persónulegra
áhrifa sem kúnninn getur skapað.
Möguleikarnir í samstarfi við
viðskiptavinina eru endalausir og
útkoman úr slíku samstarfi hefur
tekist afar vel, en meðal við-
skiptavina Flatlife í London eru
stór nöfn eins og Harvey Nichols,
Mint og Sotheby’s.
Björg og Nicola búa nú á Ítalíu
eftir nokkur ár í London og eiga
ársgamlan son, Rocco.
Þau sýndu veggfóðrin sín ný-
verið á Salone Satellite í Mílanó
þar sem þau hlutu góðar viðtökur,
sérstaklega frá London og París.
Ljóst er að hefðbundin skil-
greining á veggfóðri nær tæpast
yfir nýstarlegar vegglausnir
Flatlife-fyrirtækisins en á vefsíðu
þess kemur fram að þær séu ætl-
aðar til notkunar við ýmsar að-
stæður á heimilum eða á vinnu-
stöðum. Nánari upplýsingar er að
finna á vefsíðunni flatlife.co.uk
Flatlife-Almost Wallpaper:
Tilbúinn skyndiveggur
Björg, Nicola og sonurinn Rocco.