Fréttablaðið - 24.07.2004, Blaðsíða 30
Horft í gegnum tóma tunnu á Snæfellsnesi.
SJÓNARHORN
VISSIR ÞÚ ...
...að munnharpan er mest selda hljóð-
færið í heimi?
...að konur kaupa fjörutíu prósent af
öllum smokkum í Bandaríkjunum?
...að hljómsveitin U2 hét upprunalega
Feedback?
...að 63 prósent Bandaríkjamanna tala
við bílana sína?
...að Gene Kelly var fyrsta kvikmynda-
stjarnan sem komst á frímerki?
...að í Svíþjóð er ólöglegt að þjálfa sel
að halda bolta uppi með nefinu?
...að raunverulegt nafn söngvarans
Meatloaf er Marvin Lee Aday?
...að Leonardo da Vinci fann upp
bílatjakkinn áður en bíllinn var fund-
inn upp?
...að meðalkýr eyðir þrettán stundum
á dag í að leggja sig?
...að minni gullfiska spannar þrjár sek-
úndur?
...að drykkurinn tekíla er búinn til úr
kaktusrót?
...að fóstur fær fingraför eftir þrjá mán-
uði?
...að mannvera missir að meðaltali
fjörutíu til hundrað hár á dag?
...að fingraneglur vaxa hraðar en tá-
neglur?
...að elsti hundur sem vitað er um
varð 29 ára og fimm mánaða?
12
BLÓMIÐ
Eyrarós
Eyrarósin er með tilkomumestu blómstrum
í íslenskri náttúru með sína klasa af rauð-
bleikum krónublöðum yfir dökkrauð bikar-
blöð og blöðin blágræn og þykk. Eyrarósin
vex á áreyrum, í gljúfrum, urðum og skrið-
um víða um land en lítið mun þó sjást af
henni á Norðvesturlandi. Hún blómgast í
júlí og getur orðið allt að 40 cm á hæð.
Lækningarmáttur eyrarósar er einkum fólg-
inn í að stilla blóðrennsli, seyði af henni var
drukkið gegn blóðnösum og blöð hennar
lögð á opin sár.
Heimild: Ágúst H. Bjarnason. Íslensk flóra
með litmyndum. Iðunn. 1983.
Ég: Ragnheiður Lára Hanson.
Kyn: Kvenkyn.
Einkenni: Ekki sjáanleg.
Aldur: 41.
Starf: Innkaupastjóri og tónleikahaldari.
Hvar: Hjá Íslenska-ameríska og RR tón-
leikum.
Af hverju? Bæði störfin eru skapandi
og gefandi og góð blanda fyrir mig.
Ef ég væri ekki ég þá vildi ég vera:
Mick Jagger.
Á hvaða aldri: Alla hans ævi.
Hvað værir þú að gera: Nákvæmlega
það sama og hann gerir.
Hvar: Þar sem hann er...
Hvenær? ... akkúrat núna.
Af hverju? Því ég held að þessi maður
hafi skemmt sér svo vel um ævina að
það ætti að vera ólöglegt með öllu.
Ég vildi að ég væri:
Mick Jagger
Ragnheiður Hansen tónleikahaldari vildi helst vera rúllandi steinninn Mick Jagger.
VÍK Í MÝRDAL: ÞJÓNUSTU- OG VERSLUNARÞORP Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU.
ÍBÚAFJÖLDI: Kringum 300.
BÆJARFJALLIÐ: Reynisfjall 340 m.
MESTA ÓGN: Eldfjallið Katla er á næsta leiti. Búist er við að hún gjósi þá og
þegar og vatnsflaumur flæði um Mýrdalssand.
HELSTU VIÐKOMUSTAÐIR: Víkurskáli og Víkurprjón standa við þjóðveg 1 og þar
stoppa margir. Halldórskaffi dregur líka að. Það er inni í þorpinu.
GOTT AÐ VITA: Fyrsti bíllinn kom til Víkur árið 1927.
páá
SVIPMYND
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
30 (12) Allt bak 23.7.2004 18:56 Page 2