Tíminn - 24.02.1973, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 24. febr. 1973.
Einvígi nú
öruggari en áður
1 flestum löndum hafa einvigi
veriö bönnuð til langs tima,
viðast hvar i meira en öld. Þrátt
fyrir það láta margir lifið enn
þann dag i dag i tilraunum
sinum til að setja niður deildur.
Þar eru aöalvandræðin þau, að
aðferöir nútimans eru ekki eins
góðar og á hinum gömlu góðu
dögum.
A siðasta ári fóru fram al-
mennar kosningar i Uruguay,
og i hita kosningabaráttunnar
háðu tveir frambjóðenda ein-
vigi, eftir að annar þeirra hafði
ákært hinn fyrir að vera bæði
svikari og fifl. Einviginu lauk
þannig, aö hvor um sig skaut
fjórum skotum á 25 skrefa færi,
en þau geiguðu öll.
Ekki gekk sviðsstjóra og
blaðafulltrúa leikhússins i
Kaupmannahöfn öllu betur i
sinu einvigi, sem hann háði i
dögun eins vorgdags i hitteð-
fyrra. Sviðsstjórinn, Togo
Esben skoraöi blaðamanninn
Henning Ditlev á hólm, vegna
þess, að sá hafði fellt nafnið
hans niður úr blaðagrein.
Einvigið fór þannig, að
skammbyssa Ditlevs stóð á sér,
og skot Esbens lentu alls
staðar annars staöar en þar sem
þeim var ætlað.
1 hina gömlu góðu daga voru
þeir, sem vildu heyja einvigi,
bæði nákvæmari og auðugri að
hugmyndum. Arið 11(43 háðu
tveir Frakkar, Lenfant og
Mellant, einvigi með billiard-
kúlum til að gera út um deilu,
sem risið hafði i hita leiksins.
Mellant henti fyrst, og Lenfant
lézt samstundis.
George Devol, sem var
atvinnufjárhættuspilari i
Missisippi, kunni aftur á móti að
nota höfuðið i einvigi. Hann
neitaði að beita hnefunum i
slagsmálum og var alveg
gjörómöguleg skytta, svo að
hann gerði út um sin deilumál
með þvi að stangast við and-
stæðinginn.
Höfuðskel hans var svo stór-
kostlega sterk, að henni hélt
hann óskerlri, enda þótt allir
þeir, sem deildu við hann út af
spilum mölbrytu sinar.
Einvigi með tilbrigðum var
háð árið 1969, er tveir ungir
Braziliumenn skutust á af
skammbyssum á fullri ferð á
motorhjólunum sinum. Þeir
reyndust betri ökumenn en
skyttur, þvi að annar slapp
ómeiddur, en hinn særðist
aðeins smávægilega, — viö það
að detta af baki.
Kemur hvað
sem verður
Dean Martin og leikkonan
Cathy Hawn voru búin að til-
kynna um giftingu sina, og var
meira að segja búið að leigja
heilt hótel i Hollywood undir
veiziuna. Nú eru vinir Dean og
Cathy farnir að örvænta, að
ekkert verði úr hjónabandinu,
þvi Sammy Davis jr. er búinn
að fá inni með góðgerðar-
skemmtun i hótelinu þennan
sama dag, og hefur Dean
Martin vinur hans lofað að
mæta þar og skemmta. Hann
ætlar sem sagt ekki að láta
starfsliðið missa af þvi að sjá
sig þennan dag, hvort sem af
giftingunni verður eða ekki.
Annars finnst sumum heldur
ótrúlegt að Dean gifti sig fyrr
en hann er búinn að ganga
endanlega frá málum sinum og
fyrri konu sinnar Jean. Hafa
þau átt i einhverjum erfið-
leikum með að koma sér saman
um, hversu mikla peninga
Dean eigi að borga henni i
framíiðinni. Onnur vandamál
blasa einnig við Dean. Honum
fellur ekki sem bezt, að dóttir
hans, Claudia skuli stöðugt
halda áfram að skemmta sér
með rokksöngvaranum, P.J.
Proby, en samband þeirra mun
meira að sgja orðið svo náið, að
margt bendir til - þess, að þau
eigi eftir að hittast fyrir framan
altarið áður en Cathy Hawn
tekst að draga Dean Martin
þangað sjálfan.
Derry og
Tomas
hætta
Margir þeir, sem til London
hafa komið munu þekkja til
verzlunarinnar Derry and
Toms. Þetta er ein af stór-
verzlunum Lundúna, en nú
hefur verið ákveðið að hún
hætti. Hér er eftirlitsmaður úr
verzluninni, sem hvilir sig og
litur i dagblað, á meðan hann
biður þess, að uppboð hefjist á
ginunum, sem fram til þessa
hafa staðið undir fatnaði i
gluggum verzlunarinnar. Allt
átti að selja úr verzluninni,
meira að segja borð og hillur, og
unnu þrir uppboðshaldarar að
þvi til skiptis að bjóða upp eigur
verzlunarinnar. Ekki fer
neinum sögum af þvi, hverjir
hafa keypt þessar hauslausu
dömur, en trúlega hafa margir
orðið til þess að bjóða i þær.
— Þarna sérðu sjálLKonan min
skilur mig ekki.
- — Ef þú vilt endilega vita, hvað
ég lærði i dag, þá er það, að hinir
krakkarnir fá meiri vasapeninga
en ég.
DENNI
DÆMALAUSI
Þvi eldri sem maður verður
þeim mun meira lærir maður.
Hefði þér nokkurn tima dottið i
hug, að ekki væri hægt að hafa
tómatsósu á pönnukökur?
m