Tíminn - 24.02.1973, Qupperneq 5

Tíminn - 24.02.1973, Qupperneq 5
Laugardagur 24. febr. 1973. TÍMINN 5 Fyrsta útiveran Hér er mynd, sem tekin var af Paddiwack isbirni, er hann fór i fyrsta sinn út á göngu með henni móður sinni i Dýragarðinum i Lundúnum. Paddiwack er 25 pund að þyngd, og fæddist 29. nóvember i vetur. Móðirin, hún Sally, öskrar ánægjulega yfir barninu sinu, sem hún má svo sannarlega vera stolt af. Sally kom i dýragarðinn árið 1960, en það var dýragarðurinn i Moskvu, sem gaf dýragarði Lundúna Sally. Nýjar gerðir ávísana Stöðugt fá fleiri og fleiri láns- viðskiptakort, og þar af leiðandi fækkar þeim ávisunum, sem skrifaðar eru úti i hinum stóra heimi. Flestum aðilum likar betur við þessi kort en tékkana, enda ekki að furða, ef tillit er tekið til allra þeirra ávisana- gerða, sem litið hafa dagsins ljós. Fyrir skömmu barst einum virtasta banka i London stærðar ávisun, sem rituð var á helja- stóra gangstéttarhellu, og hann mátti gjöra svo vel að innleysa. Sá, sem ávisunina skrifaði, þurfti að fá mannhjálp til að bera tékkann með sér inn i bankann. En hann hafði verið skrifaður til að mótmæla „hinu viðbjóðslega göturæsaþjóð- félagi.” Þeir eru fleiri, sem greitt hafa reikninga sina á hugmyndarik- an hátt. T.d. , greiddi stúdent i Oxford máltið með borðplötu, sem hann hafði ritað á ávisun. Hún var tekin gild. Ofursti i Konunglega brezka flughernum skrifaði ávisun aft- an á tveggja penca frimerki. Henni fylgdi önnur, sem skrifuð var á kexköku, sem var vand- lega vafin innan i bómullarklút. Texasbúi nokkur, sem fannst skattbyrði sin þung, eins og fleirum, ákvað að skrifa ávisun á nærbolinn sinn. ,,Nú hafið þið fengið allt,” sagði hann er hann greiddi skattinn. ★ Gott að skemmta Holiendingum Michael Elb er tuttugu og þriggja ára gamall. Hann er bæði söngvari, lagasmiður og hljóðfæraleikari. Hann brá sér til Hollands til þess að láta gera þar hljómplötu en i Hollandi segir hann að sé gott að vinna. Hann syngur einna mest á ensku þrátt fyrir það, að hann er danskur i húð og hár. í Englandi þýðir litið fyrir útlending að reyna að komast á toppinn, þótt hann syngi á ensku, þvi þar er nóg af snillingum. En Hollend- ingum fellur vel, að hlusta á fólk syngja á ensku, og i Hollandi er mörgum sinnum fleira fólk heldur en i Danmörku, svo auð- veldara ætti að vera að fá þar vinnu eða svo segir Michael. TIL ALLRA ATTA OSLO STOKKHOLMUR KAUPMANNAHOFN LUXEMBOURG MANUDAGA MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ALLA DAGA FOSTUDAGA SUNNUDAGA FÖSTUDAGA

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.