Tíminn - 24.02.1973, Síða 21
Laugardagur 24. febr. 1973.
TÍMINN
21
Fyrirliði norska liðsins, Hans Sperre, hefur 30 landsleiki að baki
Firmakeppni
Arnarins
þriðja firmakeppni Arnarins í
borðtennis í Laugardalshöllinni i dag
ÚRSLITIN i firmakeppni
Arnarins i borðtennis fara
fram i Laugardalshöllinni í
dag kl. 13.30. Tólf fyrirtæki
eru eftir í keppninni, sem
er úrtökukeppni, það firma
sem tapar leik, fellur úr.
Þetta er þriðja firma-
keppni Arnarins og er nú,
einsog áður< keppt um fall-
egan farnandbikar og svo
fá fyrstu tvö fyrirtækin
silfurbikar til eignar. Árið
1971 sigraði Smjörlíki h.f.
en 1972 Samvinnutrygg-
ingar.
I ár keppa eftirtalin 12 fyrirtæki
til úrslita: H.P. Húsgögn, Albert
Guðmundsson heildv. Slátur-
félag Suðurlands, Múlakaffi,
Teiknistofan s.f. Lögfr.st.
Ragnars' Ragnarssonar, Verzl.
Óla bór, Karnabær, Smjörlfki h.f.
Samvinnubankinn, Neon, og E.N.
Lampar.
Firmakeppni er gamalt hugtak
og firmakeppnir hafa verið háðar
lengi og á mörgum sviðum.
Fimrakeppni Arnarins er nú háð i
3. sinn. Eftir stofnun Arnarins var
farið að athuga leiðir til
fjáröflunar fyrir félagið og kom
þá mönnum fyrst i hug firma-
keppni. Þetta var reynt og gafst
ágætlega strax i fyrsta sinn.
Firmakeppnin er nú önnur
tveggja aðal fjáröflunarleiða
Arnarins i dag, hin er getrauna-
seðlasala sem er að færast i vöxt.
Þetta tvennt hefur ennþá séð
félaginu fyrir nægu fjármagni til
starfseminnar en ekki má láta
staðar numið fyrir það. Þrátt
fyrir miklar niðurgreiðslur á
æfingagjöldum unglinga hefur
tekizt að draga saman fé fyrir vél
þeirri er keypt var á siðasta
sumri eða „ROBOT” eins og hún
er kölluð. Vél þessi er þarfaþing
mikið ekki sizt þar sem við erum
svo einangraðir hér á íslandi þvi
hún kemur að miklum notum við
þjálfun og stilla má inn á hana
alla hugsanlega snúninga og hin
ýmsu högg sem færustu menn
geta öfundað hana af. Þessi vél er
að mestu leyti tilkomin vegna
framlaga velviljaðra manna til
félagsins i sambandi við hina
árlegu firmakeppni þess og kann
stjórn Arnarins þeim mestu þökk
fyrir. Þó vélmennið sé gott tæki
er það ekki nóg til að ungir borð-
tennisiðkendur nái fullkomnu
valdi yfir iþróttinni, til þess þarf
meira. Þrisvar hafa fámennir
hópar farið til útlanda til að
mennta sig betur i borðtennis og
keppa, en það þarf að gefa
fleirum kost á að sjá þjálfara er-
lendra liða og vera undir þeirra
tilsögn. Hingað koma erlendir
kappar til að keppa og sýna i
flestum iþróttagreinum, en enn
hefur ekki fengizt fjármagn til
þessa i borðtennis og ætlar
örninn nú að reyna að standa
fyrir heimsókn slikra manna á
árinu ef vel tekst til með firma-
keppnina 1973. Borðtennis er ung
iþróttagrein hérlendis og á
framtiðina fyrir sér og engin
ástæða er til að örvænta.
Fyrsti landsleikur
íslendinga í bad-
minton í dag
og 2 i tvenndarleik. Fljótlega eftir
að Óskar hóf að leika badminton,
vakti hann athygli fyrir góða
tækni og þá sérstaklega, fyrir
fallega bakhönd. Óskar er okkar
reyndasti badmintonspilari og
hans aðalmerki hefur verið geysi-
legt keppnisskap.
— mæta Norðmönnum í Laugardalshöllinni
Hvað gera íslenzku landsliðsmennirnir i sín
ÍSLENDINGAIl leika
sinn fyrsta landsleik i
badminton i Laugar-
dalshöllinni i dag. island
mætir Noregi og hefst
keppnin kl. 14.00.
Norska liðið er rnjög
sterkt og i þvi eru mjög
g ó ð i r b a d m i n t o n -
leikarar. Undrabarnið
Patter Thoresen, sem er
aðeins 17 ára, leikur sinn
fyrsta landsleik, er hann
mætir fyrirliða islenzka
liðsins, Óskari Guð-
m u n d s s y n i, h i n u in
gamalkunna badmin-
tonspilara úr KR. Patter
er talinn einn efnilegasti
badmintonspilari á
Norðurlöndum, hann er
mjög skemmtilegur
leikmaður á velli og
verður eflaust gaman að
horfa á hann.
kl. 14.00.
um fyrsta landsleik?
Islandsmeistari i tviliðaleik og
þrisvar sinnum i tvenndarleik.
Hann er þvi handhafi allra
Islandsmeistaratitla i dag.
SIGURDUR HARALDSSON
T.B.R., 19 ára gamall mennta-
skólanemi. Hann er okkar efni-
Framhald á bls. 27.
Eins og við sögðum frá i gær, þá
eru landslið hvors lands skipuð 4
mönnum og verða leiknir 6 leikir
(4 einliðaleikir og 2 tviliðaleikir).
Þeir sem leika eru þessir, (inn i
sviga landsleikir):
1. Haraldur Korneliusson gegn
Knut Engebretsen. (11).
2. Sigurður Haraldsson gegn
Hans Sperre. (30)
3. Óskar Guðmundsson gegn
Patter Thorésen. (0)
4. Steinar Petersen gegn Pál
öian. (21).
1 tviliðaleik mætast þessir:
1. Haraldur Korneliusson og
Steinar Petersen gegn Knut
Engebretsen og Pál öian.
2. Óskar Guðmundsson og
Sigurður Haraldsson gegn Hans
Sperre og Petter Thoresen.
Við val landsliðanna var
mönnum raðað eftir styrkleika.
Fyrirliði íslands er Óskar
Guðmundsson, en fyrirliði Norð-
manna er Hans Sperre. Þjálfari
islenzka landsliðsins er Garðar
Alfonsson. Hér á eftir verða
islenzku keppendurnir, sem leika
fyrsta landsleik tslands i badmin-
ton, kynntir:
ÓSKAR GUÐMUNDSSON KR,
40 ára verzlunarmaður. Hann
hefur orðið Islandsmeistari oftar
en nokkur annar eða 9 sinnum i
einliðaleik, 5 sinnum i tviliðaleik
Undrabarnið Patter Thoresen leikur sinn fyrsta landsleik i dag. Ilann
er lalinn cinn efnilcgasti badinintonleikari á Norðurlöndum.
STEINAR PETERSENT.B.R.,
fulltrúi,26 ára. Steinar er fyrstur
þeirra, sem kominn er til full-
orðinsára, sem hóf að leika bad-
minton ungur að árum, en það er
talin ein aðalforsenda þess að ná
árangri i badminton. Hans sér-
grein er tviliðaleikur og er hann
talinn einn allra sterkasti tviliða-
leiksmaður hér á landi. Steinar
tók þátt i undankeppni „All
England” 1970 ásamt Haraldi
Korneliussyni. Hann er Reykja-
vikurog Islandsmeistari i tviliða-
leik og hefur tvivegis unnið
íslandsmeistaratitil i þeirri
grein.
HARALDUR KORNELÍUSSON
T.B.R., 22 ára gullsmiður
ókrýndur konungur islenzkra
badmintonmanna undanfarin ár.
Hann er mjög fljótur og er það
hans aðalkostur ásamt mjög
góðri tækni og útsjónarsemi.
Hann hefur tekið þátt i tveim
stórmótum erlendis. 1970 i „All
England”og i vetur tók hann þátt
i Norðurlandamótinu. Haraldur
hefur tvisvar sinnum orðið
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
|Opið mót í|
|badminton |
x— í Laugardals x
ghöllinni d x
xmorgun. Norsku ö
X
ölandsliðsmennirnirx
gtaka þdtt í því £
X A sunnudaginn kl. 18.00 X
^ verður haldið opið mót i
X badminton i Laugardalshöll- X
X inni. i mótinu taka þátt
Jj norsku iandsliðsmennirnir jj
X og þeir islenzku. Má þar X
^ búast við skemmtilegri ^
X viðureign við norsku lands- X
X liðsmcnnina og einnig ^4
X fjörugum leikjum, þcgar x
X þcir leika hvor gegn öðrum X
5^ innbyrðis. x
X xxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
tslenzka landsliðið: Steinar Petersen, Haraldur Kornelíusson, ÓskarGuðmundsson fyrirliði og Sigurður
Haraidsson. Tekst þeim aö veita Norðmönnum keppni?