Fréttablaðið - 13.08.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.08.2004, Blaðsíða 4
4 13. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR KÁRAHNJÚKAR Flóðin í Jökulsá á Dal, sem ógnað hafa framkvæmdum við Kárahnjúkastíflu um hríð, virðast vera í rénun. Mikið sjatnaði í ánni aðfaranótt fimmtudags og telja fræðingar ólíklegt að frekar vaxi í ánni frá því sem þegar hefur orðið. Rennsli í fyrrakvöld náði mest 830 rúmmetrum á sekúndu og hafði engin áhrif á varnargarð þann sem ver framkvæmdasvæði sjálfrar Kárahnjúkastíflu. Sigurður Arnalds, upplýsinga- fulltrúi Landsvirkjunar, segir ólík- legt að um frekari flóð verði að ræða úr þessu. Samkvæmt spám mun sjatna í ánni næstu daga og öll hætta er liðin hjá. Varðandi kostnað vegna flóð- anna segir Sigurður ljóst að hann skipti tugum milljóna en ekki verð- ur unnt að taka það nákvæmlega saman fyrr en síðar. Vinna er aftur hafin við bygg- ingu Kárahnjúkastíflu eftir viku töf vegna vatnavaxta Jökulsár enda svæðið talið öruggt eftir að varnar- garðurinn var bæði hækkaður og breikkaður til muna. Talsmaður Impregilo segir að hægt eigi að vera að vinna upp töfina á skömm- um tíma. ■ Doði yfir dýrunum Doði er yfir dýrunum í Húsdýragarðinum vegna hita. Kýrnar eru sérstaklega viðkvæmar fyrir hita og því var sólarvörn borin á þær í gær. Geitungarnir taka hins vegar við sér í blíðunni og þroskast fyrr í ár, að sögn skordýrafræðings. VEÐUR Doði hefur verið yfir dýrun- um í Húsdýragarðinum í Laugar- dal vegna hitans síðustu daga. „Dýrin eru auðvitað óvön hitunum alveg eins og við,“ segir Margrét Dögg Halldórsdóttir, yfirdýra- hirðir í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum í Laugardal. Margrét Dögg segir starfs- menn garðsins fylgjast vel með dýrunum í hitanum. Þess sé gætt að nóg vatn sé hjá dýrunum og að þau geti komist í skugga undan sólinni. „Að sjálfsögðu gildir að vera meðvitaður og gæta þess að dýrunum líði ekki illa.“ Margrét segir hitann leggjast misvel í mismunandi dýrategund- ir. „Selirnir eru heppnir að hafa eigin laug og halda sig mest þar,“ segir Margrét en sírennsli er í gegnum laug selanna og vatnið því alltaf ískalt. Þá var vatni sprautað á fálka garðsins til þess að kæla hann niður í hitanum í gær. Kýrnar eiga aftur á móti í erfið- leikum með að þola hitann, að sögn Margrétar. Borin var sólarvörn á júgur þeirra til þess að verja þær sólbruna. Þá geta kýr fengið sól- sting, að sögn Margrétar. Skordýr eru aftur á móti virk- ari þegar hlýtt er í veðri, að sögn Guðmundar Halldórssonar skor- dýrafræðings. „Geitungarnir fljúga miklu meira um þegar veðrið er gott og verða því meira áberandi,“ segir Guðmundur. Að sögn Guðmundar hafa hlý- indi undanfarinna daga einnig flýtt fyrir þroska geitunganna. „Geitungagusan sem sést oft í lok sumars og á haustin er því fyrr á ferðinni í ár.“ Guðmundur telur líklegt að hlýindi sumarsins skili sér í nokkuð fleiri geitungum en sést hafa til þessa. Ingunn J. Óskarsdóttir, yfir- garðyrkjufræðingur í Grasagarð- inum í Laugardal, segir plönturn- ar vaxa mjög vel í hlýindunum. „Þær eru fljótari bæði að blómstra og mynda fræ,“ segir Ingunn. Ingunn segir vökvað í garðinum eftir þörfum og vatns- skortur standi því plöntunum ekki fyrir þrifum. ■ Veðurblíða: Góð áhrif á sálarlífið VEÐUR Gott veður hefur góð áhrif á sálarlífið, að sögn Sig- tryggs Jónssonar sálfræðings. „Það er almennt viðurkennt að gott veður hefur góð áhrif á þá sem eiga því ekki að venjast,“ segir Sigtryggur. Sigtryggur telur ástæður vellíðunar í góðu veðri hugsan- lega þá að við eigum auðveld- ara með að slaka á. „Við verð- um rólegri núna þegar hitinn er orðinn þetta mikill og nautnin kringum það segir til sín,“ segir Sigtryggur. Sigtryggur bendir á að gott veður geti þrátt fyrir það vald- ið þeim sem stríða við þung- lyndi vandkvæðum. „Á vorin geta þeir sem berjast við þunglyndi orðið ennþá þung- lyndari af því að horfa upp á aðra káta og létta án þess að finna sjálfir fyrir gleði,“ segir Sigtryggur. „Það gæti einnig átt við nú.“ ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Eiga Íslendingar að veiða meiri síld á Svalbarðasvæði en Norð- menn leyfa? Spurning dagsins í dag: Á að fella niður vinnu vegna veður- blíðunnar? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 35% 65% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is Grímsey: Skjálftahrina JARÐSKJÁLFTAR Skjálftahrina hefur verið í gangi austur af Grímsey, samkvæmt upplýsingum frá Sig- urlaugu Hjaltadóttur jarðeðlis- fræðingi á Veðurstofu Íslands. Hrinan hófst á miðvikudagsmorg- un og mældust þá 4-5 skjálftar. Síðdegis í gær voru þeir orðnir á milli 20 og 30 talsins. Sigurlaug sagði að skjálftarnir væru um 17 kílómetra austur af Grímsey. Stærsti skjálftinn, sem varð á svæðinu um kl. 14.17 í gær, reyndist vera um 2,9 á Richter- kvarða að stærð þegar búið var að fara yfir gögnin. Skjálftahrinur eru algengar á þessum slóðum, að sögn Sigur- laugar, sem sagði að svipuð hrina hefði orðið norður af Siglufirði á mánudag og þriðjudag. ■ Grá›ubogi, ver›: 59 kr. FÍ TO N / S ÍA F I0 10 23 9 Mælum me› flessum! Medcare Flaga: Enn tap á rekstrinum VIÐSKIPTI Medcare Flaga tapaði and- virði tæpra fjörutíu milljóna ís- lenskra króna. Á fyrsta ársfjórð- ungi var tapið um 70 milljónir. Stjórnendur félagsins gera ráð fyrir að reksturinn fari að skila hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Í gær var einnig tilkynnt um breytingar á stjórn félagsins. Lýð- ur og Ágúst Guðmundssynir, oft- ast kenndir við Bakkavör, gengu í stjórnina. Í tilkynningu frá félag- inu kemur fram að eftir þessar breytingar sé öll stjórnin skipuð fólki sem ekki er starfsmenn fé- lagsins, í samræmi við stefnu Medcare um stjórnarhætti. ■ Kostnaður við flóðin í Jökulsá hleypur á tugum milljóna: Vatnavextir í rénun HÆTTAN LIÐIN HJÁ Jökulsá er í rénun og skapar ekki lengur hættu fyrir starfsmenn sem vinna við Kára- hnjúkastíflu. JARÐSKJÁLFTAR Skjálftahrina hefur mælst um 17 kílómetra austur af Grímsey. HVALASKOÐUNARBÁTUR STRAND- AÐI Áttatíu ferðamönnum var bjargað um borð í nálæga báta eft- ir að hvalaskoðunarbátur strandaði úti fyrir Húsavík í gær. Hvalaskoð- unarbáturinn losnaði síðar sjálfur og var á leið til hafnar í gærkvöldi. Ekki er talið að báturinn hafi skemmst. VELTI Í HVERADALABREKKU Einn maður var fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Hveradalabrekku á Hell- isheiði laust fyrir klukkan fimm í gærdag. Maðurinn var einn í bif- reiðinni þegar hún hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að hún valt. Maðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður. Hitinn náði 27 stigum í gær: Hlýjast á Þingvöllum VEÐUR Nokkuð svalara var í veðri í gær en undanfarna daga. Hit- inn náði hæst 27 stigum á Þing- völlum auk þess sem hitinn fór í 26 stig á nokkrum stöðum í upp- sveitum Borgarfjarðar og á Hjarðarlandi í Biskupstungum. Hæsti hiti í Reykjavík í gær mældist 21 stig. „Það var hlýtt og bjart á land- inu,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Áfram var þó þoka við norðvesturströndina og talsvert svalara þar en annars staðar á landinu. ■ Framkvæmdastjóri LÍÚ: Sjálfsforræði fiskimiða er grundvallaratriði SJÁVARÚTVEGUR „Það er algjört grundvallaratriði að Íslendingar hafi sjálfsforræði yfir fiskimið- unum ef við göngum í Evrópu- sambandið,“ segir Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna. Ben Bradshaw, sjávarútvegs- ráðherra Bretlands, sagði í viðtali í Fréttablaðiðinu í gær að Íslend- ingar myndu þurfa að afsala sér stjórn á fiskveiðum, kysum við að ganga í ESB. Friðrik segir að stefna LÍÚ sé að innganga í ESB komi ekki til greina ef það þýði að Íslendingar verði að gangast undir sameigin- lega fiskveiðistefnu sambandsins og gefa eftir sjálfsákvörðunarrétt um fiskveiðar. „Öll ummæli sem hafa verið látin falla hafa verið í þessa veru og hefur Bradshaw sjálfur lýst þessu yfir áður. Rök hans sem fram koma í Fréttablaðinu eru sannfærandi og er hann mjög af- dráttarlaus í þessari skoðun sinni,“ segir Friðrik. ■ FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON Segir að stefna LÍÚ sé að innganga í ESB komi ekki til greina ef það þýði að Íslendingar verði að gangast undir sameiginlega fiskveiðistefnu sambandsins og gefa eftir sjálfs- ákvörðunarrétt um fiskveiðar. GEISPAÐ Í BLÍÐVIÐRINU Doði hefur verið yfir dýrunum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í miklum hit- um síðustu daga. GEITUNGABÚ Geitungarnir þroskast fyrr í ár í kjölfar mikilla hlýinda FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.