Fréttablaðið - 13.08.2004, Side 46
„Erum við í Kaliforníu?“ spyr
leikarinn Björgvin Franz Gíslason
þegar hann sest niður í góðviðrinu
ásamt söngkonunni Guðrúnu Ár-
nýju Karlsdóttur til að ræða við
blaðamann um söngskemmtunina
Harlem Sophisticate sem frum-
sýnd verður í Loftkastalanum í
kvöld. Guðrún Árný og Björgvin
hafa lítið orðið vör við hitabylgj-
una á undanförnum dögum því í
vikunni hafa þau verið lokuð inni í
leikhúsi á stífum æfingum hjá
leikstjóranum Seth Sharp. „Við
erum að skemmta okkur mjög vel
enda er þetta alveg yndislegur
hópur,“ segir Björgvin Franz og
Guðrún tekur undir. „Söngvararn-
ir sem koma frá Bandaríkjunum
eru truflaðir. Það er eins og það sé
einhver allt annar blær yfir rödd-
inni hjá svörtum söngvurum en
hjá okkur,“ en auk Seths Sharp
taka þrír bandarískir söngvarar
þátt í sýningunni.
„Við Íslendingar höfum allt til
alls,“ segir Björgvin, „en við get-
um ekki státað af svörtum söngv-
urum og þegar maður heyrir í
þeim líður manni eins og maður sé
kominn til útlanda. Maður spyr
sig bara: „Hvaðan koma þessar
raddir?“ og þarf sjálfur að hafa
sig allan við til að standast saman-
burðinn.“
Harlem Sophisticate er ekki
hefðbundinn söngleikur á íslensk-
an mælikvarða heldur söng-
skemmtun þar sem talaður texti
er í sögulegu lágmarki. „Þetta eru
lög úr mörgum söngleikjum en
nýr söguþráður hefur verið sam-
inn. Við Björgvin leikum
kærustupar sem kemur til
Harlem til að meika það í leikhús-
bransanum. Fyrst og fremst er
þetta góð tónlist, fíflagangur og
húmor þar sem litlu leikriti er
komið til skila innan söngskemmt-
unar.“
Björgvin Franz hefur átt
óvenju viðburðaríka viku því auk
frumsýningarinnar í kvöld var
hann með Doors tribute-tónleika á
Gauki á Stöng í gær. Í uppklapp-
inu stóð fólk upp, öskraði og vildi
heyra meira en í fyrradag mætti
söngkonan Pink á svæðið og
hlýddi á Björgvin. „Hún náði síð-
ustu þremur lögunum og kynnti
sig fyrir mér. Hún sagðist heita
Alecia Moore og ég sagðist heita
Franz til að vera ekkert að stríða
henni á íslenska framburðinum.
Ég ræddi aðeins við bassaleikar-
ann hennar en svo fór hún bara í
pool og var í góðum fíling ásamt
fimm lífvörðum.“
Guðrún Árný og Björgvin eru
spennt fyrir frumsýningunni í
kvöld en sýningar á Harlem
Sophisticate verða í kvöld og ann-
að kvöld auk föstudags- og laugar-
dagskvölds í næstu viku en eftir
það halda bandarísku listamenn-
irnir til sinna heimahaga.“ ■
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Ben Bradshaw.
Um eða yfir hundrað milljarða króna.
Guðrún Dögg Guðmundsdóttir.
Hvaðan koma þessar raddir?
„Við viljum vekja heiminn til um-
hugsunar með dansi. Málefnin sem
við tökum á eru margvísleg svo sem
jafnrétti, vímuefni, heimilisofbeldi
og kynþáttahatur,“ segir Mona
Sylvía Spencer, ein af dönsurum
hópsins.
Hópurinn er alþjóðlegur og koma
ungmenni frá níu þjóðlöndum auk
þess sem Mona rekur ættir sína til
Írans. „Sex okkar eru saman í heima-
vistarskóla í Tékklandi og þar kvikn-
aði hugmyndin að koma alla leið til
Íslands til að flytja boðskap okkar,“
segir Mona en hún hefur verið bú-
sett undanfarin fjögur ár við nám í
heimavistarskólanum í Tékklandi.
Bahá’í er yngstu heimstrúar-
brögðin og fjalla um einingu manns-
ins, guðs og trúarbragða að sögn
Monu en um 350 manns iðka þess
trú hér á landi. „Trúarbrögðin eru
ekki nema 160 ára gömul en við trú-
um því að til sé boðberi fyrir hvert
tímabil. Við trúum því á Jesú og Mú-
hameð auk þess sem við trúum á
Bahá’ullah.“
Dansarnir eru til túlkunar en
jafnframt verður hópurinn með út-
skýringar á dönsunum og málefnun-
um jafnóðum.
Hópurinn mun sýna í Hinu hús-
inu í kvöld klukkan 19.30 á Blóm-
strandi dögum í Hveragerði á morg-
un, á Menningarnótt í Reykjavík og
á Barnaspítala Hringsins. Einnig
mega Reykvíkingar búast við að sjá
hópinn í verslunarmiðstöðvum og á
götum höfuðborgarsvæðisins við
listasköpun sína. ■
38 13. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
TÓNLIST
SÖNGKONAN PINK
■ hlýddi á Björgvin Franz á Doors tribu-
te tónleikum í fyrradag en næst er það
Harlem Sophisticate.
DANSSÝNING
UNGMENNI FRÁ NÍU LÖNDUM
■ Vilja vekja heiminn til umhugsunar
með dansi sínum.
BJÖRGVIN FRANZ OG GUÐRÚN ÁRNÝ Harlem Sophisticate verður frumsýnt í Loft-
kastalanum í kvöld
í dag
ÁTVR selur brennivín
í barnafataverslun og
á hárgreiðslustofu
Gústi er íslenskur
kærasti Pink
Fróði var
stórskuldugt
fyrirtæki
„Ég fór á Pink-tónleikana,“ segir sjón-
varpskonan Elín María Björnsdóttir. „Og
mér fannst æðis-
legt. Ég hef alla tíð
fílað Pink en það
má segja að aðdá-
un mín á henni fari
vaxandi með
hverju árinu. Ég hef
ekki stúderað hana
í kjölinn en fannst
gaman að sjá hvað
hún er skemmtileg, kraftmikil og frum-
leg á sviði. Ég var náttúrlega afar hrifin af
upphitunarhljómsveitinni og fannst þeir
standa sig vel að ná upp stemningu í
salnum,“ segir Elín en maðurinn hennar
Hrafnkell hitaði upp fyrir Pink með
hljómsveitinni Í svörtum fötum. „Ég fór
ekki á 50 Cent en gerðist svo fræg að
fara til London á Lenny Kravitz í sumar.
Það var æðisleg upplifun, alveg sjúk-
legt.“
„Ég fór á bæði Pink og 50 Cent,“ segir
Ísleifur B. Þórhallsson, markaðsstjóri
Græna ljóssins. „Ég skemmti mér betur
á 50 Cent einfaldlega vegna þess að
það var svo góð stemning í húsinu. Pink
er kraftmikil söngkona en hún hlýtur að
hafa verið eitthvað fúl því hún tók ekki
einu sinni eitt aukalag. Það er alveg
ótrúlegt með 50 Cent að einn plötu-
snúður og þrír menn með míkrofón geti
náð upp jafngóðri stemningu og þeim
tókst í Laugardalshöll. 50 Cent er líka
áhugavert fyrir-
bæri. Það þekkja
allir sögu hans og
fólki finnst spenn-
andi að sjá á sviði
gangster sem hef-
ur verið skotinn
níu sinnum. 50
Cent tekur bak-
grunninn með sér
upp á svið, spilar byssuhljóð, fer úr að
ofan og hnyklar vöðvana, sem greini-
lega alveg svínvirkar. Lokaniðurstaðan
er að Dr. Dre hlýtur að vera markaðs- og
viðskiptasnillingur.“
| PINK EÐA 50 CENT? |
Tvennir stórtónleikar voru í vikunni í Laugardalshöll og var fjölmenni á þeim báðum.
Vekja Íslendinga
til umhugsunar
STEPS TO WORLD
PEACEFerðast um
heiminn og boða
frið með dansi.