Fréttablaðið - 13.08.2004, Síða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Hvað veit
maður?
Í Landmannalaugum í fyrradagsátu Ítalir í lauginni um miðja nótt
og störðu upp í loftið. Mér fannst lík-
legt, af einbeittum svip þeirra að
dæma, að þeir hefðu setið þarna og
beðið í nokkuð langan tíma. Þegar
einn þeirra spurði mig hvort ég og
félagi minn værum líka að bíða eftir
norðurljósunum, þarna sem við sát-
um í lauginni, varð ég því miður að
tilkynna þeim það – og hér taldi ég
mig tala af vissu þess innfædda – að
norðurljósin sæust aðeins á veturna.
Ítalinn brást önugur við þessu svari
mínu og við töluðum ekki meira sam-
an. Ég og félagi minn fórum upp úr
lauginni en Ítalirnir héldu áfram að
stara upp í loftið.
VIÐ GEYSI í Haukadal stóð Aust-
urríkismaður við hliðið inn á hvera-
svæðið og sagði samlöndum sínum
að það væri alls ekki ráðlegt að fara
mikið lengra inn á svæðið, jafnvel
þótt það væri göngustígur og allt
það. Hverirnir væru jú hættulegir
og það væri bara ágætt að taka
myndir af þeim þarna frá þjóðvegin-
um. Hann var alveg viss um þetta.
Samlandar hans fóru að vísu lengra
og gengu göngustíginn í átt að
Strokki, en besservisserinn stóð eft-
ir og tók myndir að handan.
MÉR FANNST þetta bæði fyndið.
Ítalirnir að bíða eftir norðurljósun-
um í ágúst og Austurríkismaðurinn
sem vildi ekki ganga að Strokki. En
svo fór ég að spá. Hvað veit maður?
Í Landmannalaugum að sumarlagi
er maður nánast eini Íslendingurinn
á svæðinu, fyrir utan starfsmenn.
Útlendingarnir trúa bara því sem
þeir vilja. Þetta er þeirra land á
þessum tíma. Maður á ekkert erindi.
Þeirra ferðalag. Maður er bara leið-
indapúki að vera eitthvað að benda
þeim á það að norðurljósin sjáist
bara á veturna.
OG SVO er líka annað í þessu. Var
ekki snákur að skríða um í Grinda-
vík í fyrradag? Bráðnaði ekki mal-
bik í Reykjavík í vikunni út af sól?
Var ekki gefið frí hjá Ríkisskatt-
stjóra vegna veðurs? Þarna sjáiði.
Maður skyldi aldrei vera alltof viss
um hluti. Það getur allt gerst. En
ég skal nú samt éta hatt minn ef
Ítalirnir sjá norðurljósin í Land-
mannalaugum í ágúst. Og það
kæmi mér ekki á óvart að þeir
sætu þar enn. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
25
21
8
0
8/
20
04
Einn launareikningur - allt innifalið!
Launavernd Landsbankans er launareikningur með
lífeyrissparnaði sem tryggir áframhaldandi laun komi
til tekjumissis vegna fráfalls, sjúkdóma eða starfsloka
vegna aldurs.
Fáðu meira fyrir launin þín
• Ef þú fellur frá eru erfingjum
tryggð 70% launa í 7 ár.
• Þér eru tryggð 70% launa í 2 ár ef
þú færð alvarlegan sjúkdóm.
• Auknar ráðstöfunartekjur við
starfslok með 4% viðbótarlífeyris-
sparnaði.
• Eingreiðsla vegna alvarlegra
veikinda barna.
70% laun í 7 ár við fráfall
70% laun í 2 ár ef þú veikist alvarlega
Fáðu meira
fyrir launin
þín!
Launavernd