Fréttablaðið - 17.08.2004, Page 32
24 17. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Við hrósum ...
... Guðmundi Hrafnkelssyni fyrir að koma til baka eftir skelfilegan fyrsta
leik á Ólympíuleikunum. Guðmundur varði aðeins 1 af 19 skotum Króata
í fyrsta leiknum og virtist dauður úr öllum æðum. En hinn fertugi
markvörður reis upp frá dauðum gegn Spáni, varði 21 skot og var
langbesti leikmaður íslenska liðsins í leiknum.
„Það er skömm að því að
þessir kóngar á KSÍ geti ekki
komið betur fram við félögin.“
Skagamaðurinn Reynir Léosson í viðtali hjá Sýn
um framkomu KSÍ gegn liðum í Evrópukeppni.sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
14 15 16 17 18 19 20
Þriðjudagur
ÁGÚST
Vissir þú að ...
... íslenska landsliðið misnotaði allar
fjórar sóknir sínar gegn Spáni þegar liðið
átti möguleika að komast yfir í leiknum. Í
öll skiptin varði markvörður Spánverja,
Jose Hombrados, frá íslensku strákunum.
■ ■ SJÓNVARP
06:55 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Bein útsending frá undan-
rásum í sundi þar sem Jakob Jó-
hann Sveinsson keppir.
10:55 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Sýnt frá keppni í badminton.
14:00 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af morgninum.
15.30 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Sýnt frá keppni í skotfimi.
16.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Úrslitakeppni í sundi.
19.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
Sýn. Beint frá leik Bandaríkjanna
og Grikklands í körfubolta karla.
21.00 Mótorsport 2004 á Sýn. Sýnt
frá Brynjarsmótinu.
21.30 Ryder Cup 2004 á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.20 Ólympíukvöld á RÚV.
22.50 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Liðakeppni í fimleikum
kvenna.
00.20 Ólympíuleikarnir í Aþenu á
RÚV. Samantekt af keppni dags-
ins.
ÓLYMPÍULEIKAR Ólympíuþorpið í
Aþenu er fyrir margra hluta sakir
merkilegur staður. Þar búa hátt í
20 þúsund manns á meðan leik-
arnir fara fram – bæði íþrótta-
menn og fararstjórar. Þorpið var
byggt sérstaklega fyrir Ólympíu-
leikana en að þeim loknum verða
íbúðirnar á svæðinu seldar til fá-
tækra heimamanna fyrir lága
upphæð.
Eitt af því sem einkennir þorp-
ið er eitthvert stærsta matartjald
sem sett hefur verið upp á svæð-
inu en í því geta matast allt að 10
þúsund manns í einu. Það er með
hreinum ólíkindum að koma inn í
þetta tjald því magnið af mat sem
er í boði er svakalegt. Fjölbreytn-
in er einnig með ólíkindum en
meðal annars er hægt að fá grísk-
an, asískan, indverskan, mexí-
kóskan og ítalskan mat á svæðinu
og svo er McDonald’s einnig með
bás á svæðinu. Hvað annað. Hér
er aðeins fátt eitt nefnt því þarna
er hægt að fá allt milli himins og
jarðar og er tjaldið opið allan sól-
arhringinn. Ástæðan fyrir þessari
fjölbreytni er sú að íþróttamenn-
irnir mega ekki fá leið á matnum
en þeir þurfa flestir að dvelja ansi
lengi í þorpinu.
Margvísleg afþreying
Íþróttamennirnir hafa líka úr
margvíslegri afþreyingu að ráða
en á svæðinu er að finna kvik-
myndahús, æfingasali, frjáls-
íþróttavöll og sundlaug. Svo er ís-
lenski hópurinn einnig með veg-
legt bókasafn frá Eddu sem
reyndar var lítið notað þegar
blaðamaður Fréttablaðsins kíkti í
heimsókn. Það á eflaust eftir að
breytast þegar líður á leikana.
Það var mjög skrítin tilfinning
að ganga um götur þorpsins og
mæta öllu þessa íþróttafólki frá
svo mörgum löndum. Stjörnurnar
ganga um göturnar án þess að
verða fyrir ónæði en blaðamönn-
um er meinað að ræða við þá og
taka myndir í sjálfu þorpinu. Ísra-
elsmenn búa nálægt íslenska
íþróttafólkinu og þar er allt girt af
og gríðarleg öryggisgæsla í kring-
um ísraelska liðið. Svo er þorpið
varið með vopnuðum vörðum og
flugskeytapöllum sem eru stað-
settir hringinn í kringum þorpið.
Flest húsin eru vel skreytt með
fánum þeirra landa sem búa í
hverju húsi og strætó gengur á 3
mínútna fresti þannig að fólkið er
fljótt að koma sér á milli staða.
Það er samt ljóst að Grikkirnar
voru á síðustu stundu með að
klára þorpið því það á eftir að
sletta málningu á einhverja veggi
og svo er ekkert gras á lóðunum,
sem gefur þorpinu mjög sérstaka
ásýnd.
Huggulegar vistarverur
Vistarverur íslenska hópsins
eru ákaflega huggulegar og vina-
legar. Fjórar íbúðir í húsi með
þrem til fjórum ágætum her-
bergjum. Síðan stofa með svölum.
Var ekki annað að sjá en það færi
ákaflega vel um alla. ÍSÍ og þjálf-
arar hafa síðan myndbandaað-
stöðu í sama húsi og Danir og þar
er einnig aðstaða fyrir sjúkra-
þjálfara og nuddara sem þurfa að
huga að íþróttafólkinu. Í raun hef-
ur okkar fólk allt til alls í þorpinu
og þeir sem blaðamaður spurði
sögðust ekki hafa yfir neinu að
kvarta.
Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, er aðalfarar-
stjóri íslenska hópsins. Hann hef-
ur farið á marga ólympíuleika og
því lá beinast við að spyrja hann
að því hvernig þessi aðstaða væri
samanborin við aðstöðuna á fyrri
leikum.
„Mér finnst þetta þorp til að
mynda ekkert síðra en í Sydney.
Þetta er mjög gott ólympíuþorp
og alveg til fyrirmyndar og nán-
ast allt hefur staðist hjá Grikkjun-
um. Við höfum rekist á smá
hnökra með rútur og annað en það
hefur allt leyst á endanum. Okkur
líður mjög vel hérna,“ sagði
Stefán og brosti í kampinn.
henry@frettabladid.is
HERBERGISFÉLAGAR Sundkonurnar Lára Hrund Bjargardóttir, Íris Edda Heimisdóttir
og Ragnheiður Ragnarsdóttir deila herbergi í ólympíuþorpinu. Fréttablaðið/Teitur
ÁNÆGÐUR Stefáni Konráðssyni finnst
Ólympíuþorpið í Aþenu ekkert síðra en
það sem var í Sydney fyrir fjórum árum.
Fréttablaðið/Teitur
ÍSLENSKA HÚSIÐ Hér sést hvar íslenska keppnisfólkið hefur aðsetur á Ólympíuleik-
unum í Aþenu. Íslenski fáninn setur skemmtilegan svip á húsið. Fréttablaðið/Teitur
Samfélag stjarnanna
Stjörnur Ólympíuleikanna búa í sátt og samlyndi við minni spámenn í Ólympíuþorpinu sem er
fyrir margra hluta sakir mjög merkilegur staður. Ekkert síðra í Aþenu en í Sydney.