Tíminn - 09.06.1973, Page 2
2
TÍMINN
Laugardagur 9. júni 1973.
Eina raunhæfa leiðin
til lækkunar iðgjalda
er bætt
umferðarmenning
— segir Ásgeir AAagnússon, framkvæmda
stjóri Samvinnutrygginga í viðtali — Starfs
menn fó aðild að stjórn Samvinnutrygginga
í tilcfni af því að aðalfundir
Samvinnutrygginga og Liftrygg-
ingafélagsins ANDVÖKU er nú
lokið, átti blaðið stutt samtal við
Asgeir Magnússon, fram-
kvæmdastjóra um aðalfundinn og
tryggingamálin. Sagðist Asgeiri
frá á þessa leið, m.a.:
Hafa endurgreitt
90 milljónir
— Eins og kemur fram i frétta-
tilkynningu okkar, teljum við, að
stjórnvöld hafi farið inn á mjög
hættulega braut, hvað varðar bif-
Asgeir Magnússon, l'ram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga l'lytur ræðu á aðalfundi Sam-
vinnutrygginga.
reiðatryggingar. Þaö er okkar
skoðun, að hver tryggingaflokkur
eigi að geta staðið undir sér þann-
ig að til langframa verði ein
tryggingagrein, i þessu tilfelli bif-
reiðatryggingar ekki rekin með
halla á kostnað annarra trygg-
ingagreina.
Hvaö Samvinnutryggingar
áhrærir, þá hefur það frá upphafi
verið stefna okkar, að endur-
greiða tryggingatökum tekjuaf-
gang, eftir þvi sem tilefni hefur
gefizt við ársuppgjör. Að þessu
sinni endurgreiddu Samvinnu-
tryggingar 10.3 milljónir króna til
tryggingartakanna og frá upphafi
hafa Samvinnutryggingar endur-
greitt um kr. 90.000.000.00 til
tryggingataka sinna.
Tapið á bifreiðatryggingunum
var á siðasta ári 17.8 milljónir
króna. Ef bilatryggingarnar
hefðu staðið undir sér, þótt ekki
sé meira sagt, þá hefðum við auð-
vitað getað endurgreitt miklu
hærri fjárhæð.
Tjón ökutækja
vandamálið
Þess misskilnings hefur nokkuð
gætt, að rekstrarkostnaður hjá
bifreiðatryggingunum sé höfuð-
vandamálið, sem við er að glima.
Þetta er misskilningur. Að visu
verður ávallt mannfrekt hjá bif-
reiðatryggingum, þar sem mikið
starfslið þarf til þess að fylgjast
með skoðunum og viðgerðum á
ökutækjum, sem skemmzt hafa
og er sá kostnaður nokkurn veg-
inn i réttu hlutfalli við bifreiða-
fjölda landsmanna. Aðalvanda-
málin i ökutækjatryggingum eru
tjónin.
■yi!"
Kí
• t *
i ;f
f;> ' *
:• V •
V,
i ■
rv
vtfr,-••.**•>,«•jffít
$
Röntgendeild
Borgarspítalans
Röntgenhjúkrunarkonur eða röntgen-
tæknar.
4—6 stöður röntgenhjúkrunarkvenna
eða röntgentækna við Röntgendeild
Borgarspitalans eru lausar nú þegar,
eða 1. sept.
Laun samkvæmt kjarasamningi starísmannafélags
Reykjavikurborgar og Reykjavikurborgar
Allar nánari upplýsingar um stöður þessar veitir yfir-
hjúkrunarmaður og deildarhjúkrunarkona
Röntgendeildar Borgarspitalans.
Reykjavik, 6. júni 1973.
j'S
k
$
82?
&£
§
■<T>
• 1-V
Heilbrigðismálaráð
Reykjavikurborgar.
:>-*•
•syA'-'.;
Hljómsveitir — Skemmtikraftar
Félagsheimilið Laugarhóll, Strandasýslu,
tilkynnir: Höfum opnað til skemmtana-
halds. Góð aðstaða skapar góða
möguleika.
Þið hafið aðdrátlaraflið
Upplýsingar gefur Pálmi Sigurðsson,
Klúku, Strandasýslu.
Geymið auglýsunga.
Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins og stjórnarformaöur Samvinnutrygginga, flytur ræðu á
aðalfundinum.
Krá aðalfundi Samvinnutrygginga. Fundinn sóttu aö þessu sinni 16 kjörnir fulltrúar viðsvegar að af
landinu.
Raunhæfar leiðir til
lækkunar iðgjalda
Eina raunhæfa leiðin til þess að
iðgjöldin geti lækkað eða staðið i
stað að minnsta kosti, er að úr
tjónakostnaðinum verði dregið,
eða hann minnki verulega, en til
þess að svo megi verða, þurfa all-
ir landsmenn að taka höndum
saman. ökumenn, hinn almenni
vegfarandi, tryggngarfélögin og
stjórnvöld landsins. Allir þessir
aðilar verða að gera sitt: sem i
þeirra vtdi stendur til að draga úr
þessum kostnaði með þvi að bæta
umferðarmenninguna. Það þarf
að fá menn til að aka varlegar og
það er hægt að gera með auknum
áróðri, breyttu almenningsáliti
og ýmsu öðru.
Samþykktu aukið fé
til Umferðaráðs
Bezta árið i bifreiðatrygging-
unum siðastliðin 10 ár varð t.d.
árið 1968 er hægri umferð var tek-
in upp hér á landi, en þá var hafð-
ur i frammi mikill áróður fyrir
öryggi i umferðinni, sem ég segi
tvimælalaust aö hafi orðið til þess
að draga verulega úr tjónum,
enda óku svo til allir ökumenn
varlegar þá en áður. Það er kom-
inn timi til að hefja aðra herferð
sambærilega þeirri, sem farin
var út af hægri umferðinni. Það
verður aö auka starfsemi
Umferðarráðs, sem af hálfu hins
opinbera hefur með þessi mál að
gera. Samvinnutryggingar sam-
þykktu á aðalfundi sinum, ýmsar
merkilegar tillögur i öryggismál-
um og umferðarmálum m.a. um
ökukennslu, notkun öryggisbelta
og siðast en ekki sizt voru sam-
þykkt aukin fjarframlög til
Umferðarráðs. . Samvinnutrygg-
ingum er það ljost, að þvi fé sem
varið er til umferðarmenningar
er vel varið i alla staði.
Iðgjöldin af ábyrgðartrygging-
um bifreiða hafa nú hækkað um
15%. Þau höfðu verið óbreytt sið-
an 1. mai 1970 þar til nú, þrátt fyr-
ir gifurlegar hækkanir á vinnu og
annarri þjónustu á timabilinu,
sem verkar beint á tjónakostnað
þessarar tryggingagreinar. Að
visu hefur eigin áhætta trygg-
ingataka, sem tekin var upp árið
1972 nokkuð dregið úr þessum
kostnaði, en ekki verulega.
Starfsmenn Sam-
vinnutrygginga
i tryggingaráð.
Þá er rétt að geta þess i lokin,
að aðalfundurinn gerði nokkrar
breytingar á samþykktum félag-
anna, til samræmis við lög um
vátrvggingarstarfsemi.
Með breytingunni fá starfs-
menn Samvinnutrygginga nú að-
ild að stjórn félagsins. Aðalfund-
ur SIS kýs 21 i fulltrúaráð og 10 til
vara, en starfsmenn Samvinnu-
trygginga munu nú kjósa tvo
menn i fulltrúaráðið úr sinum
hópi og einn til vara. Aðalfundur
fulltrúaráðs kýs siðan stjórn
Samvinnutrygginga og endur
skoðendur, sagði Ásgeir Magnús
son, framkvæmdastjóri af
lokum.
Samvinnutryggingar
Töpuðu 17.8 milljónum á bifreiðatryggingum
Aðalfundur tryggingafélaga
samvinnumanna, Samvinnu-
trygginga, Liftryggingafélagsins
Andvöku og Endurtrygginga-
félags Samvinnutrygginga hf.,
var haldinn á Akureyri 25. mai. A
fundinum voru samþykktar all-
margar ályktanir um ýmis efni,-
m.a. um ýmsa þætti umferðar-
öryggismála, og fara þær hér á
eftir.
1. Aðalfundur Samvinnutrygg-
inga 1973, haldinn að Hótel KEA
25. mai, skorar eindregiö á dóms-
málaráöherra að láta nú þegar
fara fram gagngera athugun og
endurskoðun á öllu fyrirkomulagi
ökukennslu i landinu, bæði hvað
almenn bifreiðastjórapróf og
frekari réttindi til aksturs snertir,
svo og framkvæmd ökuprófa yfir-
leitt.
Aðalfundurinn litur svo á, að
fyrst beri að setja timabær
ákvæði um, að menntun ökukenn-
ara verði sambærileg við þær
kröfur, sem i dag eru gerðar til
ökukennara i Noregi. Sviþjóð og
Finnlandi.
Ennfremur er það álit fundar-
ins, að ökukennslan sé svo mikið
og grundvallandi atriði i um-
ferðaröryggismálum, að hana
verði að taka traustum tökum og
velja til hennar aðeins hina hæf-
ustu og bezt menntuðu menn.
2. Aðalfundur Samvinnutrygg-
inga, haldinn að Hótel KEA 25.
mai 1973, þakkar það kynningar-
og fræðslustarf, sem Umferðar-
ráð hefur haldið uppi um gildi
öryggisbelta i bifreiöum til slysa-
varna. Skorar fundurinn á dóms-
málaráðherra að sjá til þess, að
þegar á næsta ári verði sett i um-
ferðarlöggjöfina ákvæði, er
skyldi ökumenn og farþega i
framsæti til aö nota undan-
tekningarlaust öryggisbelti.
Notkun öryggisbelta hefur þegar
verið lögleidd i Astraliu og Nýja
Sjálandi meö frábærum árangri,
og undirbúningi aö slikri löggjöf
er nú langt á veg komið i Sviþjóð.
3. Aðalfundur Samvinnutrygg-
inga, haldinn að Hótel KEA föstu-
daginn 25. mai 1973, itrekar mjög
eindregið fyrri samþykktir sinar
um það, að hluti af ábyrgðar-
tryggingum bifreiða gangi til
Umferðarráðs. Lýsir fundurinn
fullu samþykki sinu við tilmæli
ráðsins sjálfs til dómsmálaráð-
herra um, að þessi hluti veröi 2%
endá verði tekið tillit til þessa við
ákvörðun iögjalda.
Með sliku framlagi telur
fundurinn, að Umferðarráði verði
gert kleift að ná á tiltölulega
skömmum tima svipuðum
árangri og náðist við gildistöku H-
umferðar 1968, jafnframt þvi sem
nauðsynlegt er, að rikissjóður
leggi ráðinu til nauðsynlegt fé til
þess að standa undir fasta-
kostnaði af tilveru og starfi ráðs-
ins. Fundurinn telur óhæft með
öllu, að nú, þegar 5 ár eru liöin frá
gildistöku H-umferðar og nálega
4 ár frá stofnun Umferðarráðs
haldi stjórnvöld landsins ennþá’
að sér höndum með nauðsynlegar
fjárveitingar til umferðarslysa-
varna, en einmitt þær álitur
fundurinn fortakslaust forsendu
þess, að úr umferðarslysum
dragi, mannlegu böli þeirra létti
og stórkostlegur kostnaður af
þeim minnki. Þar má ekkert til
spara, hvorki fé né fyrirhöfn, að
áliti fundarins.