Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 14

Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Laugardagur 9. júni 1973. A rundinum mcft urlendu fréUamönnunum, séjn blaöamaöur Timans sat.útskýrfti llannes m.a. siðasta tilboö islendinga til Breta frá 5. mai, en Bretar sögöust mundu gefa rikisstjórn sinni skýrslu um tilboðift og koma aftur til frekari viftræftna. En þess i staft sendu þeir herskip inn i islenzka landhelgi. ,,l>etta er mesta ódrengskaparbragft.scm cg man eflir úr nútimasögu milliríkjasamskipta,” sagöi Hannes, og erlendu fréllamennirnir skrifuftu af kappi i minnishækur sinar. geröir eru nú orðnar sex taisins Ég tel þá 4,merkasta þeirra, en það er ensk þýðing á ræöu forsæt- isráðherra, sem hann flutti á Al- þingi 9. nóvember 1971. Sömuleið- is tel ég þá nýjustu, sem er sú 6.i röðinni, mjög merka, en hún er eftir Jakob Jakobsson, fiskifræð- ing. Hinar fjórar hef ég tekið saman. Auk þessa hef ég séð um útgáfu á prentuðum upplýsingaritum. Ég samdi og gaf út ritið „Iceland and the Law of the Sea”, sem gef- ið var út i 12000 eintökum i febrúar 1972. Sömuleiðis „Ice- land’s 50 miles and the reasons why”, sem fyrst var gefið út i 15000 eintökum i febrúar 1973. Það rit hefur nú komið út i 2. út- gáfu i 7000 eintökum og verið er að ganga frá norskri útgáfu á þvi i 20.000 eintökum til dreifingar á Norðurlöndum. — Hvernig er ritum þessum dreift? — Ég hef komið mér upp út- sendingalista, sem á eru allt að 1000 erlendir fréttamenn og er- lend blöð, timarit, útvarps- og sjónvarpsstöðvar og alþjóðlegar fréttastofur i um 130 rikjum heims. Allt, sem gefið er út um landhelgismálið, er sent þessum aðilum. Þessi upplýsingagögn hafa og verið lögð fram á frétta- fundum og þeim hefur verið dreift af sendiráðum Islands erlendis. Fulltrúar Islands á alþjóðaráð- stefnum hafa tekið þau með sér, ýmist til dreifingar eða annarra nota, og loks hafa mörg islenzk félög og félagasamtök dreift bæklingunum til viðskiptavina, t.d. SIS, Eimskipafélagiö, Loft- leiðir o.fl. — Nú var gerð kynningarkvik- mynd um landhelgismálið, er ekki svo? VIÐ ERUAA I ALLSHERJARSOKN TIL SIGURS í LANDHELGISMÁLINU Samverkandi upplýsingastarfsemi á öllum sviðum stefnir að w einu marki: Urslitasigri á hafréttarróðstefnunni í Chile 1974, segir Hannes Jónsson í viðtali við Tímann Al) UNDANKOIINU befur llanii- es Jónsson, blaftafulltrúi rikis- stjórnarinnar, baldift daglega fundi meft erlendum fréUainönn- um, sein staddir eru liér á landi. Fundir þessir hefjast ávallt kl. I(>. en slanda misjafnlega lengi. Blaftamaftur Timans brá sér ný- lega á einn fundanna og ræddi siftan vift llannes Jónsson um starf hans sem blaftafulltrúa. — Er langt siðan sá háttur var tekinn upp að halda fasta fundi með erlendum blaðamönnum, llannes? — A undanförnum 5—6 vikum má segja, að fundir þessir hafi verið daglega. Allt frá þvi ég tók við embætti hefur aö sjálfsögðu mikill hluti starfstimans farið i að ræða við erlenda fréttamenn. Frá þvi þeir fóru að vera svo margir hér i einu, hef ég komið viðræðum i það fasta form, að hala upplýs- ingafundi á hverjum degi. — Og hvað er það, sem frétta- mennirnir spyrja helzt um? — Landhelgismálið erætiðofar- lega á baugi, svo og atburðir, tengdir þvi. Einnig er mikið spurt um varnarliðið i Keflavik og stefnu rikisstjornarinnar i varnarmálum. 1 seinni tiö hefur mér lika borizt fjöldi fyrirspurna um afstöðu lslands til NATO, i ljósi flotainnrásar Breta. Að sjálfsögðu er svo spurt um marg- visleg önnur islenzk málefni. Þrir fyrrnefndir málaflokkar eru þó á- vallt mest áberandi. — Hvaðan koma þessir frétta- menn? — Þeir koma hvaðanæva að. Bretarnir eru fjölmennir, enn- fremur Norðurlandabúar, Bandarikjamenn, Kanadamenn, Frakkar, Hollendingar, Þjóðverj- ar og þannig mætti áfram telja. Fréttamennirnir hafa yfirleitt stutta viðdvöl hér á landi. Það virðist þó ekki hafa mikil áhrif á aðsóknina að fréttamannafund- unum, þvi einn kemur þá annar fer. — Skýra þessir menn svo frá islenzkum málefnum? — Já. Mér eróhætt að segja, að athygli almennings viða um heim beinist æ meira að Islandi og is- lenzkum málefnum. Blaðaúr- klippubunkinn, sem ég fæ sendan vikulega frá sendiráöum og ræðismönnum Islands erlendis, stækkar stöðugt. Hitt er þó meira um vert, að fjöldi greina, sem eru vinsamlegar málstað okkar, vex stöðugt. — Þú hefur séð um útgáfu ým- issa upplýsingarita um landhelg- ismálið, er ekki svo? — Jú. Um leið og ég tók við embætti i ágúst 1971 var hafizt handa um útgáfu fyrstu upplýs- ingagreinargerðarinnar, þvi Við- reisnarstjórnin hafði ekki gefið út eitt einasta upplýsingarit um málið alla sina tið, svo ekkert var til i Stjórnarráðinu af upplýsinga- ritum um málið. Þessar greinar- — Jú. Mér var falið að hafa með höndum framkvæmd á gerð stuttrar kvikmyndar um land- helgismálið. Þeir Eiður Guðna- son og Sigurður Sverrir Pálsson voru svo ráðnir til að vinna það verk. Kvikmyndin hefur verið sýnd mjög viða. Það er m.a.s. enn ver- ið að sýna hana, eða kafla úr henni. Þannig dreifði alþjóðlegi sjónvarpshringurinn UPITN i London 4 fyrstu minútum myndarinnar til meira en 100 sjónvarpsstöðva, viðs vegar um heim. 36 stöðvar fengu myndina svo senda beint frá okkur. — Er útgáfa nýs kynningarrits á döfinni núna? — Já, ekki get ég neitað þvi. Hins vegar hef ég litið getað sinnt þvi verkefni að undanförnu vegna mikils erils, t.d. i sambandi við fund þeirra Nixons og Pompidous hér I Reykjavik. — Gafst tækifæri til að kynna málstað tslands i sambandi við þann fund? — Já, að sjálfsögðu notuðum við tækifærið til hins ýtrasta. Embætti mitt kom upp sérstakri upplýsingaskrifstofu i frétta- manna- og fjarskiptastöðinni. Þar lágu frammi margvisleg upplýsingarit um Island og is- lenzk málefni, sérstaklega land- helgismálið. Auk þess gafst mér færi á að hafa fund með erlendu fréttamönnunum og ræða við þá um sjónarmið okkar i landhelgis- málinu, stefnuna i varnarmálun- um og litillega um viðhorf okkar til NATO. Þá svaraði ég nokkrum fyrirspurnum og skýrði frá ásigl- ingartilraunum Breta á Arvakur sama morgun og sá atburður átti sér stað. — Nú hefur komið fram, að blaðið Expressen hefur rangtúlk- að mál þitt á fundinum. Er slikur fréttaflutningur algengur? — Þaðheld ég ekki. Það kemur samt alltaf fyrir, að einn og einn æsifréttamaður slæðist með og segir meira en sagt hefur verið. Hitt er furðuleg árátta hjá ein- staka islenzku blaði að leggja sig fram um að prenta upp vitleysur úr erlendum blöðum, en minnast ekki á það, sem satt er og rétt. T.d. var frétt úr sænska æsi- fréttablaðinu Expressen um Rikisstjórnin sendi Steingrim Hermannsson og Hannes Jónsson á fund visindaráfts Einingarsamtaka Afrikurikja í Ibadan, i nóvember 1972, en mýndin er af nokkrum þátttakendum ásamt rikisstjóra Vesturríkis Nigeriu. Þar fluttu þeir báftir ræftur og upplýsingagreinargerft nr. 3 var dreift til fundarmanna sem opinberu skjali ráftstefnunnar. Undirbúningsnefnd ráðstefnunnar var mcft drög aft tillögu um aft mæla meft 12+12 milna landhelgi, en eftir aft hafa hlustaft á mál Steingrims og Hannesar mæltu þeir meft 12 milna landhelgi og 200 niilna efnahagslög- sögu. Hugmynd þessa kynnti Hannes i ræðu sinni á ráðstefnunni. Hún var siftan tekin upp i kynningarritið „Iceland and the Law of the Sea” I fcbrúar 1972 og I ágúst sama ár flutti Kenya tillögu á fundi hafsbotnsnefndar S.þ., sem var efnislega samhljóða þessari hugmynd. Þannig skilar samverkandi kynningarstarfsemi árangri I starfi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.