Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 18

Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Laugardagur 9. júni 1973. Menn og málofni Endurskoðun varnar- samningsins I málefnasamningi núv. rikis- stjórnar segir m.a. á þessa leið i kafla þeim, sem fjallar um utan- rikismál: „Varnarsamningurinn við Bandarikin skal tekinn til endur- skoðunar eða uppsagnar i þvi skyni, að varnarliðið hverfi frá Islandi i áföngum. Skal að þvi stefnt, að brottför liðsins eigi sér stað á kjörtimabilinu.” I samræmi við þetta hefur Ein- ar Agústsson utanrikisráðherra látið gera ýmsar kannanir á þess- um málum, Sú könnun hefur gengið nokkuð hægar en ætlað var sökum þess, að landhelgismálið hefurhaft algeran forgang. Utan- rikisráðherra hefur nú ákveðið að fylgja þessari könnun eftir með formlegri beiðni um endurskoðun á varnarsamningnum samkvæmt 7. grein hans. Þetta er i samræmi við ályktun, sem gerð var á sfð- asta aðalfundi miöstjórnar Framsóknarflokksins. Tilgang- urinn með endurskoðuninni er að ná samkomulagi um brottför hersins. Náist slikt samkomulag ekki innan sex mánaða frá þvi, að formleg endurskoðun hófst, er samningurinn uppsegjanlegur með eins árs fyrirvara. Að þvi verður stefnt að ná samkomulagi um brottflutning hersins, án þess að til uppsagnar samningsins þurfi að koma. Stefnumótunin 1946 t tilefni af þeirri formlegu end- urskoðun varnarsamningsins, sem nú er framundan, þykir ekki úr vegi að rifja upp afstöðu Framsóknarflokksins til varnar- málanna frá upphafi og verður þar að verulegu leyti stuðzt við ræöu, sem undirritaður flutti á Varðbergsfundi haustið 1971. Með réttu lagi má segja, að sú stefna, sem Framsóknarflokkurinn hefur fylgt i varnarmálum, hafi verið mófuð i höfuðdráttum á aðalfundi miðstjórnar flokksins i aprilmán- uðiil946. Þá stóðu kosningar fyrir dyrum. Varnarmálin voru þá mjög á dagskrá, en Bandarikja- menn höfðu þá enn herlið hér og töldu sig geta háft hér herlið sam- kvæmt varnarsamnignum frá 1941 unz friður hefði verið saminn við Þjóðverja. tslendingar túlk- uðu ákvæði samningsins hinsveg-' ar þannig, að herinn ætti að fara strax og vopnaviðskiptum væri lokíð. Þessu til viðbótar höfðu Bandarikin farið fram á her- stöðvar i Reykjavik.i Keflavik og i Hvalfirði til 99 ára. Rikisstjórn- in, sem þá var skipuð Sjálfstæðis- mönnum, Alþýðuflokksmönnum og Kommúnistum, hafði ekkert birt opinberlega um þetta og stefndi hún að þvi, að málið yrði sem minnst rætt i kosnipgabar- áttunni sökum ágreinings um það innan hennár. , Aðurnefndur aðalfundur mið- stjórnar Framsóknarflokksins samþykkti itarlega tillögu um ut- anrikismál og var i niðurlagi hennar vikið að öryggismálum á þessa leið: „Jafnframt lýsir fundurinn yfir þeirri skoðun, að áherzlu beri að leggja á nána samvinnu við þjóðir Engilsaxa og Norðurlandaþjóð- irnar, og sérstakt samstarf við engilsaxnesku þjóðirnar um öryggismál landsins, án þess að erlendur her dvelji i landinu.” Alyktun þessi er að þvi leyti söguleg, að hér mun islenzkur flokkur i fyrsta sinn hafa látið það i ljós, að eðlilegt gæti verið að hafa samráð við nágrannarikin um varnarmál á friðartimum, en þó ófrávikjanlega á þeim grund- velli, að ekki væri erlendur her i landinu. Hinir stjórnmálaflokk- arnir ályktuðu fyrir kosningar 1946 á þann veg eingöngu, að þeir væru mótfallnir erlendri hersetu. Bjarni Benediktsson Ekki herstöð Eftir kosningarnar 1946, voru haldin tvö aukaþing á árinu. Hið fyrra fjallaði um aöild tslands að Sameinuðu þjóðunum. Sam- kvæmt 43. grein sáttmála Sam- einuðu þjóðanna, hefur öryggis- ráöið m.a. vald til að fyrirskipa þátttökurikjunum að hafa her- stöðvar. t utanrikisnefnd Alþingis var algert samkomulag um að leggja þann skilning i ákvæði 43. greinarinnar, að engar kvaðir um herstöðvar væri hægt að leggja á Islenzka rikið, nema að fengnu samþykki þess sjálfs. „Islending- ar eru eindregið andvigir her- stöðvum i landi sinu og munu beita sér gegn þvi að þær verði veittar,” segir i nefndarálitinu. Siðara aukaþingið 1946 fjallaði um Keflavikursamninginn svo- nefndan, en hann hét raunar samningur „um brottfellingu herverndarsamningsins frá 1941 o.fl.” Samkvæmt honum, hétu Bandarikjamenn þvi að flytja all- an her sinn i burtu, en fengu i staðinn að hafa sérstaka bækistöð á Keflavikurvelli, vegna flugs þeirra i sambandi við ameriska herinn i Þýzkalandi. Bandarikja- stjórn taldi sig þurfa að hafa um 600 manns á Keflavikurflugvelli vegna þessarar starfsemi. Samn- ingurinn var uppsegjanlegur eftir 5 ár með 1 1/2 árs fyrirvara. Framsóknarmenn lögðu til, að sú breyting yrði gerð á samningri- um, að Keflavikurvöllur yrði strax alveg undir islenzkri stjórn, þótt umrædd aðstaða yrði veitt flugher Bandarikjanna. Sú var lika afstaða þeirra, sem þá köll- uðu sig þjóðvarnarmenn. Forsvarsmenn samningsins, lögðu mikla áherzlu á, að þannig væri gengið frá þessu máli, að hér væri ekki um herstöð að ræða. ,,Of dýru verði keypt" A árunum 1947 og 1948 myndað- ist alvarlegt ástand i alþjóðamál- um, sökum yfirgangs Rússa i Austur-Evróþu. UiViræður hófust þvi um stofnun Atlantshafs- bandalagsins. Hinn 5. jan. 1949, kvaddi ameriski sendiherrann i Reykjavik Bjarna Benediktsson, sem þá var utanrikisráðherra, á fund sinn til að kynna honum þessar fyrirætlanir. Bjarni sagði siðar frá þvi á Alþingi, að hann hafi fyrst spurzt fyrir um tvennt, eða það, hvort tsland þyrfti að hervæðast og hvort tslendingar þyrftu að hafa islenzkan her á friðartimum. Þetta tvennt fannst Bjarna mestu máli skipta. Hinn 12. febrúar 1949 skýrði Bjarni sendiherranum frá þvi að „sú skoðun væri ákaflega rik, bæði hjá fylgismönnum rikis- stjórnarinnar og stjórninni sjálfri, að það væri of dýru verði keypt að láta hermenn dvelja hér á friðartimum fyrir það öryggi, sem við slikt fengist.” Skilyrðið I framhaldi af þessu, hófust svo umræður um hugsanlega aðild ts- lands að Atlantshafsbandalaginu. Kysteinn Jónsson A aðalfundi Framsóknarflokks- ins, sem var haldinn i febrúar 1949, var samþykkt svohljóðandi ályktun um málið: „Framsóknarflokkurinn telur, að tslandi beri að kappkosta góða samvinnu við allar þjóðir, er þeir eiga skipti við( og þó einkum nor- rænar þjóðir og engilsaxneskar vegna nábýiis, menningartengsla og likra stjórnarhátta. Flokkurinn telur, að Islending- um beri að sýna fullan samhug sérhverjum samtökum þjóða, er stuðla að verndun friðar og efl- ingu lýðræðis, en vinna gegn yfir- gangi og ofbeldi. Hinsvegar ályktar flokkurinn að lýsa yfir þvi, að hann telur Is- lendinga af augljósum ástæðum eigi geta bundizt i slik samtök, nema tryggt sé, að þeir þurfi ekki að hafa hér her né leyfa neinskon- ar hernaðarlegar bækistöðvar er- lendra þjóða i landi sinu né land- helgi, nema ráðizt hafi verið á landið eða árás á það yfirvofandi. A þessum grundvelli og að þessu tilskildu telur flokkurinn eðlilegt, að Islendingar hafi sam- vinnu við önnur lýðræðisríki um sameiginleg öryggismál.” Vesturförin 1949 Það var eitt næsta spór i málinu að þrir ráðherrar eða þeir Bjarni Benediktsson, Emil Jónsson og Eysteinn Jónsson fóru i marz- mánúði 1949 til Washington og ræddu þar við Dean Acheson, ut- anrikisráðherra Bandarikjanna. 1 lok viðræðnanna var þvi lýst yfir af hálfu Bandarikjanna: „1. Að ef til ófriðar kæmi, mundu bandalagsþjóðirnar óska svipaðrar afstöðu á tslandi og var i siðasta striði og að það mundi algerlega vera á valdi .tslands sjálfs, hvenær sú afstaða yrði lát- in i té. 2. Að allir aðrir samningsaðilar hefðu fullan skilning á sérstöðu tslands. 3. Að viðurkennt væri, að tsland hefði engán herög‘ætlaði ekki að stofna her. 4. Að ekki kæmi til mála, að er- lendur her eða herstöðvar yrðu á tslandi á friðartimum.” Ummæli Ólafs Thors Það var fyrst eftir þetta, að rik- isstjórnin, sem var skipuð Fram- sóknarflokknum, Sjálfstæðis- flokknum og Alþýðuflokknum, ákvað að beita sér fyrir aðild ts- lands að Atlantshafsbandalaginu. I umræðum á Alþingi, lögðu tals- menn þessara flokka sérstaka áherzlu á, að engin kvöð um her- setu fylgdi þátttökunni i Nato. Ólafur Thors orðaði þetta einna ákveðnast, þegar hann sagði: „Hann (þ.e. Atlantshafssátt- málinn) er sáttmáli um það, að engin þjóð skuli nokkru sinni hafa her á tslandi á friðartimum. Hann er sáttmáli um það, að aldrei skuli herstöðvar vera á ts- landi á friðartímum.” Emil Jónsson Varnarsamn- ingurinn 1951 Eftir að Kóreustyrjöldin hófst 1950, versnuðu mjög allar horfur i alþjóðamálum og margir óttuðust heimsstyrjöld þá og þegar. 1 skugga þessarar ófriðarhættu var varnarsamningurinn við Banda- rlkin gerður sumarið 1951. En strax var lögð áherzla á, að her- setan væri ekki ætluð til frambúð- ar. Til að árétta það var það ákvæði sett i samninginn, að hann væri uppsegjanlegur hvenær sem væri með 1 1/2 mánaðar fyrir- vara. Af hálfu þeirra þriggja flokka, sem að samningnum stóðu, hefur jafnan verið lögð áherzla á tvennt: I fyrsta lagi væri aðild- inni að Nato og varnarsamning- urinn tvö aðskilini mál. I öðru lagi væri það á valdi tslendinga einna að ákveða, hve lengi dveldi hér varnarlið samkv. samningn- um. Fáir munu hafa áréttað þetta oftar en Bjarni Benediktsson. T.d. fórust honum svo orð um síð- ara atriðið, i ræðu, sem hann flutti á ráðherrafundi Atlants- hafsbandalagsins, sem haldinn var i Reykjavik i júni 1948: „Varðandi land mitt er það að visu svo, að við höfum sérstakan varnarsamning innan Atlants- hafsbandalagsins við Bandarfkin, en það fer alveg eftir máti okkar sjálfra á heimsástandinu, þegar þar að kemur, hversu lengi bandariskt lið dvelur á tslandi” (Mbl. 25. júni 1968). íslenzk gæzla Fljótlega eftir að varnarsamn- ingurinn var gerður 1951, kom sú stefna til sögunnar, að tslending- ar ættu sjálfir að annast gæzlu varnarstöðvanna, meðan þeirra væri talin þörf, svo að hægt væri að losna við hina erlendu hersetu að mestu eða öllu. Þannig fluttu þingmenn úr öllum flokkum til- lögur um það á þingunum 1953 og 1954, að Islendingar tækju við gæzlu radarstöðvanna, t.d. Sig- íúrður Bjarnason, Magnús Jóns- son, Jón' Kjártansson sýslumað- ur, Gylfi Þ. Gislason, Hannibal Valdimarsson, Páll Þorsteinsson og Gisli Guðmundsson. A þirigun- um 1953-55 flutti Alþýðuflokkur- inn tillögu, þar sem lagt var til, að þegar skyldi hafinn undirbúning- ur þess, að íslendingar tækju i sinar hendur rekstur, viðhald og gæzlu þeirra mannvirkja, sem byggð hefðu verið eða óbyggð væru, á grundvelli varnarsamn- ingsins og að Alþingi geti ákveðið brottflutning herliðsins með 3ja mánaða fyrirvara, þegar ts- lendingar væru reiðubúnir til þess að taka fyrrgreind störf i eigin hendur. Þá sagði i tillögu Alþýðufl. að næðist ekki samkomulag á þess- um grundvelli, skyldi varnar- samningnum sagt upp. Ályktunin frá 28. marz 1956 Tillagan, sem Alþýðuflokkur- inn flutti á þinginu 1955, kom til meðferðar i utanrikismálanefnd i marz 1956. Þar náðist samkomu- lag um það milli fulltrúa Fram„- sóknarflokksins og Alþýðuflokks- ins að tillagan skyldi orðast á þessa leið: „Stefna tslands i utanrikismál- um verði hér eftir sem hingað til við það miðuð að tryggja sjálf- stæði og öryggi landsíns, að höfð sé vinsamleg sambúð við allar þjóðir og að tslendingar eigi sam- stöðu um öryggismál við ná- grannaþjóðir sinar, m.a. með samstarfi i Atlantshafsbandalag- inu. Með hliðsjón af breyttum við- horfum siðan varnarsamningur- inn frá 1951 var gerður og með til- liti til yfirlýsinga um, að eigi skuli vera erlendur her á Islandi á frið- artimum, verði þegar hafin end- urskoðun á þeirri skipan, sem þá var tekin upp með það fyrir aug- um, að Islendingar annist sjálfir gæzlu og viðhald varnarmann- virkja — þó ekki hernaðarstörf — og að herinn hverfi úr landi. Fáist ekki samkomulag um þessa breytingu „verði málinu fylgt eft- ir með uppsögn samkv. 7. grein samningsins.” Þessi tillaga var samþykkt hinn 28. marz 1956 með atkvæðum Framsóknarmanna, Alþýðu- flokksmanna, Þjóðvarnarmanna og Kommúnista. Hafinn sé undir- búningur . Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins i utanrikisnefnd lögðu til, að fram- angreindri tillögu yrði visað frá með rökstuddri dagskrá, sem hófst á þessa leið: „Svo sem fram kemur i sjálfum varnarsamningnum hefur það ætlð verið tilætlun Alþingis og rikisstjórnar, að erlent varnarlið dveldi ekki lengur hér á landi en nauðsynlegt væri vegna öryggis landsins, og þar með friðsamra nágranna þess, að endanlegu mati islenzkra stjórnvalda. Al- þingi áréttar þennan vilja sinn og lýsir yfir þvi, að það telur rétt, að hafinn sé nauðsynlegur undirbún- ingur þess að svo megi verða. Að- ur en ákvörðun um brottflutning hersins er tekin, þarf hins vegar að athuga rækilega hvort tveggja, ástand og horfur i alþjóðamálum og hvernig fyrir skuli koma margháttuðum úrlausjíarefnum, er hér skapast af þessum sök- um.” Siðan kom langur sfiurninga- listi, þar sem talið var upp það, sem athuga bæri, eins og t.d. við- horf i alþjóðamálum, hvernig gæzlu tslendinga á varnarmann- virkjum yrði bezt háttað, hver greiddi kostnaðinn o.s.frv. Þessi afstaða Sjálfstæðisflokks- ins sýnir, að raunverulega voru allir flokkar sammála um þá meginstefnu á þingi 1956, að und- irbúningur yrði hafinn að þvi að varnarliðið færi úr landinu, en hins vegar var ósamkomulag um málsmeðferð. Yfirlýsing Émils Niöurstaðan varð sú, eins og kunnugter, að framkyæmd tillög- unnar frá 28. marz var frestað um haustið 1956, og uppsögn varnar- samningsins dregin til baka. Það hefur hins vegar verið margsinn- is áréttað af þeim þremur flokk- um, sem að varnarsamningnum stóðu, að þetta þýddi ekki það, að hersetan ætti að vera varanleg. Þvert á móti hafa þeir haldið áfram að lýsa yfir þvi gagnstæða. Flokksþing Framsóknarflokksins 1967 og 1971 hafa samþykkt, að timabært væri orðið að hefjast handa um brottflutning hersins. í skýrslu um utanrikismál, sem Emil Jónsson flutti á þingi 1969, fórust honum svo orð I nafni rikis- stjórnarinnar: „Þó við höfum mjög góða reynslu af samskiptum við varn- arliðið, þá er okkur óef^ið hollast að hafa ekki erlent herlið hér á landi til langdvalar. Þess vegna þurfum við stöðugt að endurmeta Framhald á bls. 30.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.