Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 3
Laugardagur 9. júni 1973. TÍMINN 2 TÆKNISKÓLANUM var slitið i gærog voru útskrifaðjr nitján byggingartæknifræðingar og sjö raf- tæknar, og var inyndin hér aö ofan tekin við þaö tækifæri. Ilæstu einkunn i undirbúningsdeild hlaut Smári Kristinsson, 9, i raungreinadeild Sæbjörn Kristjánssn, 8,3, i raftæknadeild Jóhannes Axelsson, 8,9, i 1. hluta A Eyjólfur Valdimarsson, 8,9, 1. hluta B Guðni Frimanna Guðmundsson, 8,(> 2. hluta B. Jóhannes Pétursson, 8,6, 3. hluta B Jóhannes Hafn Kristjánsson, 8,4 og meintæknadeild Anna Skúla- dóttir, 9,3. UTANRÍKISRÁÐ- HERRA MÓTMÆLTI ÁSIGLINGUNNI EINAH Agústsson, utanrikis- ráðherra, kallaði i fyrradag, bre/.ka sendiráðsritarann i Heykjavik á sinn fund og mót- mælti harðlega a'siglingu freigátunnar Seyliu á Ægi þá um morguninn. Háðherrann tók skýrt fram. að herskipið heföi brotið alþjóðlegar siglingareglur og gert grófa tilraun til að valda skemmdum á varðskipinu. Sendi- ráðsritarinn kvaðst mundu koina mótma'lunum á framfæri við bre/.ku stjórnina. John McKenzie, sendiherra Breta i Reykjavik, var væntan- legur til landsins i gær, en hann fór til London fyrr i vikunni og ræddi m.a. við Douglas-Home utanrikisráðherra um fisk- veiðideiluna. Utanrikismálanefnd Alþingis hélt fund i gærmorgun. Þar voru nýjustu atburðir fiskveiði- deilunnar ræddir og -þær ráð- stafanir, sem rikisstjórnin hefur gert á alþjóðavettvangi, þ.e. krafan um.að Natoráðið beiti sér fyrir,að Bretar verði á brott með herskip sin úr fiskveiðilögsögunni og orðsendingin til öryggisráðs SÞ. Lýstu allir nefndarmenn sig samþykka gjörðum rikisstjórnar- innar. Viðræður við V.-Þjóð verja hefjast brótt Það borgar si< að vera áskrifand Veggfóður Fjölbreyttasta veggfóður sem völ er á. Vymura og Decorene ásamt fjölda annarra gerða. UTAVER Lunskrafinnum skjótar aðgerðir Heimir Hannesson. EFTIR þau nýju viðhorf i land- helgisdeilunni sem sköpuðust við flotainnrás Breta i islenzka fisk- veiðilögsögu og kröfu islenzkra stjórnvalda um afskipti Norður- Atlandshafsbandalagsins. ákvað stjórn Samtaka um vestræna samvinnu að vekja athygli aðal- framkvæmdastjóra bandalagsins á malinu og þeirri almennu kröfu þjóðarinnar, að brezki fiotinn yrði kallaður á bott án tafar. Ritaði stjórn félagsins Jósef Luns, aðal- framkvæmdastjóra NATO, bre'f, þar sem þvi var lýst, hversu al- varlegum augum væri litið á flotaaðgerðir Breta og sérstök áherzla á það lögð.að bandalagið beitti sér fyrir skjótum aðgeröum i málinu. Um leið var vakin athygli framkvæmdastjórans á þeirri hættu, að harðnandi átök i land helgisdeilunni stenfdu i hættu eðlilegum samskiptum tslands við núverandi bandalagsþjóðir i Atlantshafsbandalaginu. Til að árétta sérstaklega þessa skoðun, var ákveðið, að höfðu samráði við utanrikisráðuneytið, að óska eftir sérstökum fundi með Jósef Luns til að ræða þessi' mál. Heimir Hannesson, lög- fræðingur, einn stjórnarmanna samtakanna, fór i bikunni til Briissel i þessum erindum, og átti fund með Jósef Luns s.l. mið- vikudag. Tómas Tómasson, am- bassador tslands hjá NATO, var viðstaddur fund þennan. EINS og skýrt hefur verið frá mun Einar Agústsson sitja utan- rikisráðherrafund NATO, sem haldinn verður i Kaupmannahöfn 14. og 15. júni n.k. Auk ráðherrans verða i sendinefndinni Ingvi Ingvason, skrifstofustjóri utan- rikisráðuneytisins, og Hans G. Andersen, þjóðréttarfræðingur. Einnig mun Sigurður Bjarnason, sendiherra i Kaupmannahöfn, taka þátt i störfum fundarins. ts- lenzka sendinefndin fer utan n.k. miðvikudag. Skömmu eftir að utanrikisráð- herra kemur til landsins aftur munu hefjast viðræður við Vestur-Þjóðverja um réttindi þýzkra togara til að veiða innan islenzku fiskveiðilögsögunnar, Ekki er búið að timasetja þann fund, en að öllum likindum hefj- ast viðra?ð!ur 17. til 20. júni. Af tslendinga hálfu munu ráðherrar taka þátt i viðræðunum, en Vestur-Þjóðverjar hafa enn ekki sent nöfn samningamanna sinna, en fastlega er búizl við að ráð- herra verði meðal þeirra. t stórum dráttum er islenzka tilboðið til Vestur-Þjóðverja þannig, að þeim verður gefinn kostur á að veiða allt inn að 30 milna mörkum i 18 til 24 mánuði. Sjálfsagt verður fjölda skipa og stærð einhver takmörk sett. 00. Hlíðarskokkið á Akureyri 1 FYRRA sumar var á Akureyri stofnað til trimmkeppni fyrir fólk á öllum aldri. Tilgangur keppn- innar var að hvetja bæjarbúa til útiveru og gönguferöa. Hliðar- skokkinu er ætlað að veita öldnum, sem ungum tækifæri til að hreyfa sig i formi létts leikjar úti i náttúrunni. Hliðarskokkið hefst við Lóns- brúna, laugardaginn 9. júni kl. 2.00 e.h. Vegalengdin, sem farin er, er um þaö bil 10 kilómetrar. Þátttakendur ganga, skokka eða hlaupa upp Hliöina, suður að Lög- mannshliðarkirkju. Þar er haldið niður á við og siðan beygt til norðurs og endað að lokum skammt sunnan þess staöar, sem lagt var af stað frá. Vegalengdin, sem farin er, er sem fyrr segir um það bil 10 km. Fljótustu keppendurnir i fyrra voru: Þórir Snorrason og Benedikt Björgvinsson. Timi þeirra i keppninni var 47 min. og 20 sek. Þeir sem rólegast fóru voru um 1 1/2 tima á leiðinni. Þátttökutil- kynningar berist til Hreiðars Jónssonar, Iþróttavellinum, simi 21588, eða Einars Helgasonar, skrifstofu IBA, Glerárgötu 20, simi 21202. iþróttabandalag Akureyrar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.