Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 20

Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 20
20 TÍMINN Laugardagur 9. júni 1973. Tveir fornkappar. Timamynd. Gunnar. TILBREYTI, SKÖPUN/ Maöur ef nefndur Sveinn ólafs- son. Hann leggur stund á þá ágætu iþrótt aö skera út, og reyndar er honum þaö meira en iþróttin ein, þvi aö þetta er Hka atvinna hans, sú er veitir honum og fjölskyldu hans lifsviöurværi. Hann var sóttur heim ekki alis fyrir löngu, þvi aö þaö er alltaf gaman aö sjá failega og vei geröa hluti. Fyrsta spurningin, sem fyrirSvein var lögö, var svohljóö- andi: — Hvenær byrjaðir þú aö læra starf þitt? — Ég ; byrjapi aö læra áriö 1945. Þetta er fjögurra ára nám eins og aörar iöngreinar, svo aö ég var búinn með það áriö 1949. Tæpu ári seinna tók ég sveins- próf, þaö er aö segja 1950. Siðan hef ég eingöngu unnið aö þessu, nema um tima, árin 1957 og 1958. Þá var mjög litið aö gera i þessu, og þá fór ég i byggingarvinnu að sumrinu Að þvi undanteknu hef ég eingöngu nnið að iön minni siðan ég lærði hana. — Þú hefur auövitaö lært þetta i iönskólanum hér? — Myndskurður er sjálfstæö iðngrein og lýtur sömu lögum og aðrar slikar. Nemendurnir eru skráöir hjá meistara i fjögur ár og stunda jafnframt nám i iön- skóla. En þaö er ágætt aö fá meiri kennslu, til dæmis i teikningu, og ég var tvo vetur i Myndlistarskól- anum eftir að náminu i iönskóla sleppti. Með skaröxi einni saman — Hugur þinn hefur snemma hneigzt að bessum hlutum? — Ég hef verið að tálga siðan ég man fyrst eftir. Ég lék mér með hnif og spýtur eins og flestir aðrir drengir, og sú löngun gerði siður en svo að minnka, þótt árin liðu og úr mér tognaði. — Þú átt kannski hagleiks- mann i ættinni? —Faðir minn fékkst mikið við smiðar og afi minn var lika smið- ur, bæði á tré og málm. Og ef vel er leitað, er vist auðvelt að finna hagleiksmann aftar i ættum. Eyjólfur Einarsson i Svefneyjum á Breiðafirði er forfaðir minn. Af tengdasyni hans er sú saga sögð, að hann hafi orðið að vinna það til kvonfangs sins að smiða bát, og mátti ekki fella hann með öðru en skaröxi Siðan var báturinn reyndur með þvi að flytja i honum ósekkjað korn frá Stykkisólmi til Flateyjar, en þar átti báturinn að ganga undir sitt próf sem var i þvi fólgið, að farmurinn átti allur að vera þurr, að undanteknum örfá- um kornum, sem sátu i borð- röngunum, þau máttu vera rök. Þetta stóðst, og forfaðir minn fékk að ganga að eiga heitmey sina. — Var öxin eina verkfræið, þegar báturinn var smiðaður? — Ekki held ég að það hafi ver- ið. Hér mun hafa verið átt við það, að ekki hafi mátt nota annaö verkfæri en öxi til þess að fella borðin saman, og má öllum ljóst vera, aö til þess hefur þurft ærinn hagleik og nákvæmni, ef ekki átti að leka. — Það er þá ekki óliklegt, að hagleikur fylgi afkomendunum. En er alltaf nóg að gera i þessari iön? — Já, það hefur alltaf verið nóg, að undanteknum þessum ár- um, sem ég minntist á áðan. Tizk- an hefur hér mikið aö segja eins og viðar. Um árabil þótti allt fint, sem var innflutt og glitraði nógu mikið. Þá var næstum ekkert skreytt eöa skoriö i húsgögn. Þó hefur það alltaf verið þannig, að ákveðnir hlutir, gefnir af sérstöku tilefni, hafa verið skornir út eða smiðaðir sérstaklega. Frá pappírshnífum til skrifborösstóla — Hvers konar hlutir eru það einkum, sem fólk virðist sækjast eftir nú á dögum? — Þetta er óskaplega misjafnt. Það er allt frá smáhlutum eins og pappirshnífum og borðfánastöng- um upp i skrifborðsstóla og skrif- borð, eða jafnvel eitthvað enn stærra. Að visu smiða ég ekki þessa hluti, heldur aðeins skreyti þá fyrir smiðina, sem þá hafa gert. — Er dálitið um að fólk biðji þig um skreytingar á hlutum, sem smiðaðir hafa verið af öðrum, eða jafnvel keyptir i búð? — Yfirleitt er ekki hægt að koma þvi við að skreyta hluti, sem þegar er búið að ganga frá. Þáð verður að gera ráð fyrir sliku strax og hluturinn er teiknaður og smiðaður, meðal annars með þvi að hafa viðeigandi efni, þar sem útskurðurinn á að koma. Það er ekki hægt að skreyta spónlögð húsgögn, þvi að þar er ekki fyrir hendi neitt efni sem hægt er að skera út i. Það er alltaf mjög erf- itt að breyta fullsmiðuðum hlut- um með útskurði. — Nú er efni mjög misgott til Sveinn ólafsson, myndskeri, heldur hér á prófverkefni sinu. Kennari Sveins var Karl Guðmundsson, myndskeri, sem nú er látinn, cn hann hafði numið hjá Ríkarði Jónssyni, hinum fræga snillingi. Tima- mynd. Gunnar. Listamaðurinn að störfum. Tlman vinnslu. Hvað gefur þér gefizt bezt? — Yfirleitt er allur harðviður góður, en það er lika hægt að nota mýkra timbur. tslenzka birkið er til dæmis ákaflega þægilegt efni i lampafætur, borðfána og litlar mannamyndir. Þá útvegar maö- ur sér hjá Skógræktinni stofna, mismunandi gilda, eins og gerist, þegar skógur er grisjaöur. Mest er það frá Hallormsstaðar- og Vaglaskógi. En þetta timbur þarf að þorna I tvö til þrjú ár, þangað til að óhætt er að vinna úr því. Sé maður aftur á móti að búa til stærri hæuti en þá, sem ég nefndi, notar maður innflutt efni, mahogni, teak, birki eða annað. Það er hægt að skera i flest efni, þegar þarf að smiða dálítið stóra hluti, er skynsamlegast að nota innflutt efni, þvi að islenzka birk ið er óheppilegt til þess að fletta þvi niður, stofnanir eru oftast svo mjóir. — Hefur þú ekki fengizt við hvaltönn og rostung? — Ekki neita ég þvf alveg, að ég hafi komið nálægt þeim risa- skepnum, eða tönnum þeirra, öllu heldur. Þó er það aðeins litið, sem ég hef fengizt við rostungstennur, en komið hefur það samt fyrir. En i hvaltennur hef ég oft unnið, og aðeins hef ég reynt við filabein. — Hvert þessara efna heldur þú að sé harðast? — Ég held, að búrhvalstönnin sé langhörðust, en hún er lika ákaflega falleg, þegar búið er að vinna hana og pússa. Teikningar og tæki —Teiknar þú verkefni þin áður en þú byrjar að skera eða saga? — Já, oftast gerir maður fyrst teikningu á bréf, en sé efnið sivalt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.