Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 24

Tíminn - 09.06.1973, Blaðsíða 24
24 TÍMINN Laugardagur 9. júni 1973. Hans Fallada: Hvaðnú,ungimaður? Þýoing Magnúsar Asgeirssonar 1 Forleikur í ógáti Pinneberg fær nýjar upplýsingar um Pússer og tekur mikiivæga ákvörfmn. Klukkan er fimm minútur yfir fjögur. Pinneberg er alveg ný- búinn aö lita á úrið sitt. Hann er snotur ungur maður, ljós yfir- litum og hann stendur fyrir framan húsið i Rothenbaumstræti 24 og biður. Hún var þá orðin fimm minútur yfir fjögur og þau, Pússer og hann, höföu mælt sér mót þrjú kortér i fjögur. Pinne- berg hefir stungið úrinu i vasann i tuttugasta skiptið og horfir alvar- legur i bragði á spjald, sem fest er upp hjá útidyrunum. Hann les: I)R. SESAM Kvensjúkdómar og fæöingarhjálp. Viðtalstimi 9-12 og 4-<i. Já, stendur heima! Og nú er hún þó orðin fimm minútur yfir. Ég gæti nú fengið mér sigarettu, en geri ég það, kemur Pússer auðvitað i sömu svifum fyrir hornið. Það er vist bezt að sleppa þvi. Þetta verður nógu dýr dagur án þess. Hann hættir að horfa á spjaldið. Við Torhenbaumstræti er ekki nema ein húsaröð. Bak við streymir fljótið Strela, breitt og voldugt, þegar hingað er komið, i þann veginn að falla út i Eystra- salt. Vindi gustar utan af vatninu. Trén smápiskra, þar sem þau standa. Svona húsakynni ætti maður að hafa, hugsar Pinne- berg. Ég er viss um að þessi dr. Sesam hefir að minnsta kosti sjö herbergja ibúð. Það hlýtur að kosta ódæma kynstur af peningum. — Nú, þá er hún tiu minútur yfir. Pinneberg stingur hendinni i brjóstvasann, dregur upp veski og kveikir sér i vindlingi. Fyrir hornið kemur Pússer flögrandi, i hvitu, felldu pilsi og treyju úr hrásilki. Hún er hatt- laus. Glóbjart hárið stendur i þyrli um höfuðið. ,,Hæ! Ég gat bara ekki komið fyrr en þetta! Ertu reiður?” spyr hún móð og másandi. „Ekki hótið. En nú verðum við bara að gera okkur að góðu að sitja og biða. Það hafa að minnsta kosti þrjátiu farið inn, meðan ég hefi staðið hérna”. „Þau þurfa nú ekki öll að ætla II til læknisins, og svo höfum við gert boð á undan okkur”. Já, þarna sérðu. Það var gott að ég hringdi”. „Þú ert allt af réttu megin, drengur”. Og þegar þau eru komin upp á þrepin, tekur hún höfuöið á honum milli handanna og kyssir hann af lifs og sálar kröftum: „Guð minn góður, hvað það er yndislegt að vera aftur hjá þér, drengur! Hugsaðu þér, að við höfum ekki sézt i nærri hálfan mánuð!” Já, Pússer” segir hann, „og ég er heldur ekki vitund vondur yfir þvi, þótt ég yrði að biða”. Dyrnar opnast, og i hálfdimmri forstofunni stendur it vera og segir i skipunarrómi: „Samlags- skirteini!” Við skulum nú fyrst koma okkur inn”, segir Pinneberg og ýtirPússer á undan sér. „Annars erumvið utansamlagsfólk. Ég hefi hringt. Ég heiti Pinneberg”. Orðið „utansamlagsfólk” veldur bráðri breytingu. Veran kveikir á rafmagninu og segir i Ismeygilegum alúðarrómi: „Læknirinn kemur strax. Gerið svo vel að ganga inn”. Þau ganga eftir mjóum göngum og fram hjá dyrum, sem standa i hálfa gátt. Þetta er hin venjulega biöstofa, og öll þessi þrjátiu virðast biða þar. Þau blina öll sem einn maður á þessi tvö, sem fá að ganga fyrir, og allt i einu láta þau dæluna ganga hvert I kapp við annað: „Nei, þetta er fullmikið af þvi góða!” „Við höfum beðið hér timunum saman!” „Það væri gaman að vita, til hvers við erum látin borga i sjúkrasjóðinn, úr þvi að allt af er farið svona með okkur!” „Þessu fina dóti er ekki vandara um en okkur hinum!” Hjúkrunarkonan staðnæmist i dyrunum. „Svona nú, verið bara róleg. Þið truflið lækninn, og auk þess er þetta misskilningur hjá ykkur. Þetta eru dóttir læknisins og tengdasonur. Er ekki svo?” Pinneberg gengst upp við þetta. Pússer er komin á undan. Allt verður kyrrt i einni svipan. „Svona, hverfið nú bara”, hvislar hjúkrunarkona og ýtir Pinneberg á undan sér. „Samlagssjúklingar eru alltaf svo frekir. Guð má vita, hvað þetta fólk heldur að það sé. Þegar litið er á þessa óveru, sem sjúkrasjóðurinn borgar — .” Hann og Pússer ná að lokum höfn i herbergi með rauðum, flos- klæddum húsgögnum, hvar sem á er litið. „Þetta er vist dagstofan hans sjálfs”, segir Pinneberg. „Skelfing er allt hér fornfálegt, sýnist mér”. „Það er andstyggilegt þetta, þarna frammi”, segir Pússer. „Viö erum lika samlagsjúklingar bæöi: þarna heyrir maður, hvernig það talar um mann”. Það tekur þvi nú ekki, að láta þaö á sig fá. Þú veizt vel, að smælingjarnir verða nú einu sinni að gera sér allt að góðu”. „Viðbjóður er það þó,” segir Pússer, þegar dyrnar opnast aftur og önnur hjúkrunarkona kemur inn. „Gerið svo vel herra og frú Pinneberg. Læknirinn kemur strax. Þér viljið máske gefa mér nokkrar persónulegar upplýsingar á meðan?” „Með ánægju”, segir Pinne- berg, og verður þegar að svara fyrstu spurningunni: Aldur? „Tuggugu og þriggja”. Skirnar- nafn? „Jóhannes”. Staða? Með dálitlum semingi: „Bókari”. En siöan svarar hann fljótt og hiklaust öllum spurningunum, sem á eftir koma. „Ég hefi alltaf verið heilsugóður. Þessir vana- legu barnasjúkdómar, annars ekkert. Eftir þvi sem ég bezt veit, hefir aldrei neitt gengið að foreldrum minum. Faðir minn er dáinn. Nei, ég veit ekki úr hverju SS hann dó!” Og siöan kemur aftur KS dálitið hik á hann: „Já — — xX móðir min er á lifi, en-”. SK Hjúrkunarkonan hefir nú snúiö sér að Pússer. „Tuttugu og Sfc tveggja ára. Emma”. Nú er það SS; hún.sem vefst tunga um tönn: ,,— — Fædd Mörschel. Aldrei orðið to misdægurt. Foreldrar minir eru bæði á lifi. Hafa aldrei verið v veik”. Blýantur hjúkrunarkonunnar SSJ skeiðar yfir súklingaskrána. Svo SSJ brosir hún kurteislega: „Sem w sagt, bara augnablik. Læknirinn NS er alveg til”. „Gaman væri að vita, hvað þetta allt á að þýða”, tautaði XS hann fyrir munni sér, SS þegar hurðin hafði fallið að SS stöfum á eftir hvita kjólnum. SX Þér gekk ekki sem greiðlegast SJs að segja bókari,” hvislar Pússer. SS Það þvældist nú lika fyrir þér SS[ að segja fædd Mörschel! Emma ÍS} Pinneberg, kölluð Pússer, fædd W Mörschel: það er ekki svo frá leitt!” Hann hlær ertnislega. „Æ, þegiðu! Þetta er voðalegt, skal ég segja þér, en ég verð W bara! Ég get ekki haldið i mér. to Bara að ég vissi, hvar það er hérna. Þarna ertu komin! Það er allt !» af sama sagan, undir eins og þú SS verður hrædd. Af hverju hugsaðir SS þú ekki fyrir þessu áðan?” Sx Ég gerði það, drengur! A Ráð- Sx hústorginu: fyrir heila tiu aura! SS[ En það er svona strax og óstyrkur W kemur á taugarnar”. W Pússer! Settu nú hörku i þig: úr sSs þvi að þú ert alveg nýbúin að vera 5» þar, hlýtur þetta bara að vera SS Imyndun”. §§ IIS ilHWNl n 1420 Lárétt 1) Viss.- 6) Fáleikar.- 7) Tal,- 9) Ilát,- 11) Eins,- 12) Utan,- 13) Frostbit.- 15) Fæða.- 16) Fljótið.- 18) Vog.- Lóðrétt 1) Farkostur.- 2) Kraftur,- 3) Svik.- 4) Skel.- 5) Saknaði.- 8) Kona,- 10) Andi,- 14) Happ,- 15) Æða,- 17) 499 Ráðning á gátu Nr. 1419 Lárétt 1) Dagatal.- 6) Æki,- 7) Alf.- 9) Fæö.- 11) Te,- 12) So,- 13) Til,- 15) Mar,- 16) Old,- 18) Ratviss.- Lóðrétt 1) Dráttur,- 2) Gær.- 3) Ak,- 4) Tif.- 5) Liðorms.- 8) Lei.- 10) Æsa,- 14) Löt,- 15) MDI.- 17) LV,- ■ ! /0 r _ b /Mannlegt auga ^A/^Þegar radar1 getur ekki stjórnað inn sér smá Sokkur gegnum smá- 'stirni fram A stjörnubeltið. undan tekur ---^talva viðskila ^Sboðum og stýrir i okkur framh I ! LAUGARDAGUR 9. juni 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl*. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Kristin Sveinbjörns- dóttir heldur áfram sögunni um „Kötu og Pétur” eftir Thomas Michael (4). Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Tónleikar kl. 10.25. Morgunkaffið kl. 10.50: Þorsteinn Hannesson og gestir hans ræöa um út- varpsdagskrána. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. 13.00 óskalög sjúklinga Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.30 A iþróttavellinum Jón Asgeirsson segir frá keppni um helgina. 15.00 Varnarkerfi Bandarikj- anna og hlutverk Kefla- vikurstöðvarinnar Gunnar Eyþórsson fréttamaður flytur erindi. 15.30 Stanz Arni Þór Ey- mundsson og Pétur Svein- bjarnarson sjá um þáttinn. 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir Tíu á toppnum Orn Petersen sér um dægurlagaþátt. 17.20 Siðdegistónleikar a. Martti 'Talvela syngur lög eftir Yrjö Kilpinen, Irwin Gage leikur á pianó. b. John Lill leikur á pianó Tilbrigði op. 53 eftir Brahms um stef eftir Paganini. 18.00 Eyjapistill. Bænarorð. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Viðtalsþáttur i umsjá Stefáns Jónssonar. 20.00 Gömlu dansarnir Harmonikuklúbburinn á Sundsvall leikur. 20.20 „Varnarræða”, smásaga eftir Böðvar Guðmundsson Höfundur les. 21.05 Hljómplöturabb. Guð- mundur Jónsson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Danslög 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Sunnudagur 10. júní Hvítasunnudagur 9.00 Morguntónleikar (10.10 Veðurfregnir) a. Gömul kirkjutónlist. Hornakórinn i Munchen leikur. b. Brandenborgarkonsert nr. 5 i D-dúr eftir Bach. Filharmóniusveitin i Berlín leikur: Herbert von Karajan stj. c. Konsert I C- dúr fyrir fiðlu, selló, pianó og hljómsveit op. 56 eftir Beethoven. Davið Oistrakh, Mstislav Rostropovitsj, Sviatoslav Rikhter og Fil- harmóniusveit Berlinar leika: Herbert von Karajan stj. d. „Þýzk messa” eftir Schubert. Flytjendur: Kór Heiðveigarkirkjunnar i Berlin og Sinfóniuhljóm- sveit Berlinar undir stjórn Karls Fosters. Wolfgang Meyer leikur á orgel. 11.00 Messa i Kópavogskirkju Prestur: Séra Þorbergur Kristjánsson. Organleikari: Guðmundur Gilsson. 14.00 Könnun á heilbrigðis- þjónustunni: siðari þáttur Þátttakendur: Magnús Kjartansson heilbrigðisráö- herra, dr. med. Jón Sigurðs- son borgarlæknir, Tómas Helgason prófessor, Jón Þorsteinsson formaður læknaráðs Landspitalans, Arinbjörn Kolbeinsson for- maður Samtaka heilbrigðis- stéttanna, Jóhann Axelsson prófessor, Nanna Jónas- dóttir varaformaður Hjúkrunarfélags Islands og Ólafur Ólafsson landlæknir. — Páll Heiðar Jónsson stjórnar þættinum. 15.00 Óperukynning: I Pagliacci eftir Ruggiero Leoncavallo

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.