Tíminn - 09.06.1973, Page 4
4
TÍMINN
Laugardagur 9. júnl 1973.
Hvers óska
þau sér?
Blöð eru sífellt að spyrja fólk að
einhverju og það er með ólikind-
um, hvað hægt er að láta sér
detta i hug að forvitnast um.
Nýlega voru nokkrar þekktar
manneskjur i Danmörku
spurðar, hvers þær óskuðu sér
næst. Leikkonan Birte Tove,
sem við þekkjum úr „rúm-
stokksmyndunum” sagðist óska
sér þvottavélar. Hún varð nefni-
lega að skilja sina eftir, þegar
hún flutti. Einn galli er þó á
þessu, þvi að enn hefur Birte
ekki rafmagn heima hjá sér
nema til ljósa, en það stendur til
bóta. tslendingurinn Otto Sig-
valdi, sem arkar um „Strikið”
og selur furðulegustu hluti,
sagðist ekki vilja eignast neitt,
það væri svo skelfing erfitt að
eiga eitthvað. Hins vegar kvaðst
hann hafa fullan hug á að leigja
sér flutningabil, hlaða öllu
draslinu sinu á hann og aka út i
bláinn, þar til hann hitti fólk,
sem vildi kannski eiga allt
saman. Söngkonan Ulla Pia,
sem eitt sinn skemmti gestum
Loftleiðahótelsins, sagðist endi-
lega þurfa að fá sér nýja kápu
og bjóst við að gera það innan
tiðar. Hún var næstum viss um,
hvernig kápan ætti að vera, úr
einhverju skinni, sem liktist
rúskinni
Líkar ekki
rigningin
Flestir halda, að öndum falli
einstaklega vel við rigningu, en
svo mun ekki vera. Þær þola
hana alls ekki. Regnið er þess
valdandi, að þær eiga i erfið-
leikum með að hefja sig til
flugs, og þær geta orðið gegn-
blautar. Þetta kom i ljós,.þegar
fuglaskoðari hafði fylgzt með
öndum á tjörn i nokkurn tima.
Þá varð honum allt i einu ljóst,
að þegar rigndi héldu endurnar
sig alls ekki úti á miðri tjörninni
heldur nærri bökkunum, i skjóli.
★
Dalur hins
eilífa lífs
Svo virðist, sem ibúar i dal
nokkrum i Ekvador hafi fundið
lykilinn að langlífi. Þarna búa
um 4000 manns i þorpi, sem
nefnist Vilcabamba. Fólkið lifir
á mat, sem að mestu er búinn til
úr ávöxtum og grænmeti, og það
borðar mjög litið kjöt. Það
drekkur jurtate og auk þess
fjögur til sex glös af heimatil-
búnu rommi daglega. Frá þessu
skýrir brezkur mannfræðingur,
sem kynnt hefur sér lifnaðar-
háttu þessa fólks. íbúarnir
★
reykja um 50 sigarettur á dag,
og eru þær búnar til úr heima-
ræktuðu tóbaki. Tveir elztu ibú-
ar þorpsins eru Miguel Carpio,
sem fullyrðir, að hann sé 123
ára og svo Jose David, sem talið
er, að sé 142 ára gamall. Báðir
þessir menn geta fært sönnur á
aldur sinn með skirnarvottorð-
um, sem þeir hafa i fórum sin-
um, en visindamaðurinn telur
þó, að til greina geti komið að
þetta séu skirnarvottorð ein-
hverra ættingja þeirra, sem séu
löngu látnir, en hafi borið sama
nafn og þeir gera. Mann-
fræðingurinn, dr. David Davies
frá University College i London
fór nýlega til Vilcabamba. Hann
segir: Ég komst að þvi, að 7%
fólksins, sem þarna býr er 80
ára eða eldra, og engum þykir
merkilegt, þótt fólk sé orðið eitt
hundrað ára. Læknar i Ekvador
halda, að fólkið i Vilcabamba
megi þakka langlifi sitt rónni,
sem þarna rikir á öllum sviðum.
Þarna er varla hægt að segja,
að streita þekkist og heldur ekki
hjartasjúkdómar. Dr. Davies
segir, að flestir deyi af slysför-
um. Fólk hrapi i fjöllum og
verði fyrir öðrum álika slysum.
Svo er influensa alltið dánaror-
sök, en flensan berst venjulega
með utanaðkomandi fólki. Fólk-
ið i Vilcabamba hefur allt
óblandað spænskt blóð i æðum
sinum, segir læknirinn enn-
fremur.
★
— Reyndu nú að lita á björtu
-Ja.heppinnertuaðþurfaekki hliðarnar - eftir 16 tima
að fara út I annað eins veður. verðurðu kominn i rúmið aftur.
DENNI
DÆMALAUSI
— Af þvi að það er ekkert
GAMAN að henda snjóboltum i
Guggu, hún bar HLÆR!