Tíminn - 09.06.1973, Síða 5
Laugardagur 9, júnl 1973.
TÍMINN
5
Margt má af
kvikmyndum læra
Innbrotsþjófar tóku sér til fyrir-
myndar aðferð við innbrot, sem
þeir höfðu séð i kvikmyndinni
Rififi Chez les Homes, og beittu
þessari aðferð með góðum
árangri i Toulon i Frakklandi.
Kvikmyndina gerði Jacques
Dassin á fimmta áratugnum.
Með aðferðinni gátu þjófarnir
krækt sér i 90 þúsund punda
virði af skartgripum. Innbrotið
var framið i skartgripaverzlun,
Au Regent, sem er sú stærsta
sinnar tegundar i Toulon. Þar er
allt þakið i þjófabjöllum, þó að
loftinu undanteknu. Hafa þjófa-
bjöllurnar komið i veg fyrir
innbrot fram til þessa, en i þetta
siðasta skipti, þegar innbrotið
tókst notuðu þjófarnir aðferðina
úr kvikmyndinni það er að
koma niður i gegn um loftið.
Þeir meitluðu gat i gólfið á hæð-
inni fyrir ofan, og notuðu skaft á
regnhlif til þess að krækja i
múrhúðunarstykkin, svo þau
féllu ekki niður á gólfið. Að lok-
um var opið orðið nægilega stórt
til þess að þeir kæmust i gegn
um það, og þeim tókst einnig að
opna peningaskápinn, og ná
þaðan út verðmætunum, eins og
fyrr segir. Að þvi búnu klifruðu
þeir aftur upp kaðalstigann,
sem þeirhöfðu látið siga niður i
búðina, og komu sér i burtu án
þess að nokkur hefði eftir þeim
tekið.
Barna- og unglinga
glæpir fara vaxandi
Mikil aukning hefur verið i
barna- og unglingaglæpum i
Frakklandi siðustu sex árin.
Ilafa glæpirnir vaxið um 150%,
sem er sannarlega ekkert smá-
vegis. Þetta kemur fram I nýút-
kominni skýrslu, sem nær til
allra borga i Frakklandi, þar
sem ibúar eru yfir 10 þúsund
talsins, þó að Paris undantek-
inni. En I Paris eru Ibúar um 22
milljónir, ef úthverfin eru talin
með. Skýrslan nær til allra
glæpa, sem framdir hafa verið á
árabilinu 1964 til 1970. Þar kem-
ur fram, að um 250 unglingar
eða börn eru tekin föst daglega
fyrir glæpi, 70% fyrir þjófnaði,
10% fyrir innbrot, og 15% fyrir
árásir og 4% fyrir kynferðis-
glæpi. Þá mun vera eftir 1%,
fyrir annars konar alvarlega
glæpi unglinganna. Aðeins einn
af hverjum tiu, sem glæpina
fremja eru stúlkur. Þá kemur I
ljós, að það fer mikið i vöxt, að
unglingar hlaupist að heiman!
Arið 1964 var vitað um 9000 sem
hlupu að heiman, en árið 1972
var talan komin upp i 33 þúsund.
Áfengismagnið
samræmt
Evrópuráðið i Strasbourg
vinnur nú að þvi að koma á i
öllum Evrópulöndum þeim
lögum, að átta tiundu úr
grammi af vinanda i einum litra
blóðs skuli verða hámark leyfi-
legrar ölvunar við að aka bil. 1
sumum Evrópulöndum eru
þessi lög strangari og rýmri i
öðrum. í greinargerð ráðsins
fyrir breytingunni segir, að
enginn bilstjóri ætti að hafa rétt
til að neita að gangast undir
blóðrannsókn eða blása i blöðru.
Hins vegar skuli hann siðan fá
sýnishorn af blóði sinu, til að
nota sem sönnunargagn ef
málaferli verða. Þá hefur
Evrópuráðið ákveðið að beina
þvi til rikisstjórna margra
landa, að viðurlög við þvi að aka
ölvaður, verði hert mjög.
Eldur og ís
Verið er nú að reyna fyrir norð-
an heimsskautsbaug nýjan hita-
og kuldastyrkan bor, sem var
fundinn upp af verkfræðingum
Kaskhastan — sovétlýðveldis-
ins. Nýja boraðferðin er byggð á
þvi að nota hitablástur með allt
að 1500gráðu hita. Við tilrauna-
boranir hefur boraðferðin
reynzt mjög vel. Fjögurra
manna vinnuflokkur getur bor-
að á átta timum 40 fimm metra
djúpar borholur. Með aðferðum,
sem notaðar hafa verið til
þessa, tók sama verk um það bil
viku.
Hrífandi falleg
níræð leikkona
Danska leikkonan Clara
Pontoppidan varð niræð i fyrra
mánuði. Aldrei hefur sézt jafn
unglegt og hrifandi nirætt
„gamalmenni”. Hún er sannast
sagna ljómandi falleg! Þær,
sem litu inn hjá afmælis-
barninu, voru allar i við
hafnarmiklum kjólum eða
göngudíögtum — en sjálf var
Klara i tiglóttri dragt og
hárauðri peysu. Hún roðnaði, er
hún tók á móti öllum hamingju-
óskunum — en annars sveifhún
um, eins og léttstig álfamær úr
einhverju ævintýrinu. I
afmælishófinu lýsti Klara
Pontoppidan yfir að leikkonan
Bodil Udsen hlyti styrk úr sjóði
Klöru, sem stofnaður var til að
styrkja unga og efnilega leik-
konu. Bodil Udsen hefur leikið
mörg og vandasöm hlutverk á
sviöi Konunglega danska leik-
hússins. Þótt Bodil sé að visu
komin nokkuð til ára sinna,
bætir hún það upp með þvi
æskufjöri, sem stöðugt geislar
frá henni. Hinn hamingjusami
styrkþegi þakkaði Klöru fyrir
þennan mikla heiður, en siðan
flugu tappar úr kampavins-
flöskum og gestir skáluðu fyrir
leikkonunum tveimur. Elzti
gesturinn i samkvæminu var
leikarinn Idorn Hartvig, sem er
orðinn 85 ára. Þau Klara eru
æskuvinir, enda gengu þau
saman á ballettskóla i fyrnd-
inni. Eitter vist: Sú kona, sem á
90. afmælisdaginn sinn roðnar,
þegar gamall vinur kyssir á
hönd hennar, hlýtur að eiga
framtiðina fyrir sér...A mynd-
inni sjást þær Klara
Pontoppidan og Bodil Udsen.
Falleg hafmeyja
Þetta gæti verið litla hafmeyjan
þeirra i Kaupmannahöfn, eða
jafnvel Lorelei hin þýzka, en
það er hvorugt rétt. Þetta er
engin önnur en Raquel Welch,
sem teygir þarna úr fallegum
leggjunum og sólar sig i léttum
vindi. Hún situr um borð I skútu,
en eigandi hennar er kvik-
myndaframleiðandinn Sam
Spiegel, og hefur hann dvalizt i
vetur á frönsku Rivierunni, og
legið i leti og sleikt sólina i góö-
um félagsskap. Reyndar þurfti
Raquel að gera fleira en liggja i
sólinni. Hún var að enda við að
leika i kvikmyndinni The Last of
Sheila, en i þeirri mynd fer
James Mason með aðalkarl-
hlutverkið á móti henni. Ekki
hafa borizt neinar myndir af
Mason álika léttklæddum og
Raquel, en kannski það sé allt
eins gott, það er ekki vist, að öll-
um fyndist hann augnayndi.
★ .
Heilsuböð í
Kasakhstan
t Alma-Ata höfuðstað Kask-
hatanska sovétlýðveldisins
er nú lokið við að skipuleggja
nýjan heilsubaðstað, sem gerð-
ur verður við stóra vatnsupp-
★
★
sprettu með volgu og mjög járn-
efnariku vatni, en lækninga-
máttur þess er sagður mikill.
Fyrsti hluti heilsubaðsins verð-
ur tilbúinn þegar á þessu ári og
fullbyggð verður heilsubað-
stöðin ein af þeim stærstu i
Sovétrikjunum.
★
Fegurðardrottning
verður
dollaraprinsessa
Daliah Lavi, israelska
fegurðardrottningin, sem fyrir
nokkrum árum varð sigurveg-
ari i keppninni Miss World, hef-
ur nú orðið fræg á nýjan leik, en
sem songkona aö þessu sinni.
Hún er nú i þann veginn að gifta
sig bandariskum milljóna-
mæringi, Pieter Rittmaster, já,
og milljónir, þær eru jú kannski
ekki mikið lengur hér á landi,
enefum milljónir dollara er að
ræða, hlýtur það að vera dálag-
leg upphæð, svo þetta verður
sannkölluð dollaraprinsessa.