Tíminn - 09.06.1973, Síða 10
10
TÍMINN
Laugardagur 9. júni 1973.
Sigurlinni Pctursson vift cina höggmynd sina: Þór lyftir kctti.
Veggmyndir sem
kennslutæki
SIGURLINNI Pétursson hefur
nýlega opnað myndlistasýningu i
Gagnfræðaskólanum i Garöa-
hreppi. Á sýningunni kennir ým-
issa grasa, þ.á.m. sýnir Sigur-
linni 36 málverk og 15 höggmynd-
ir. Að baki flestum verkunum
liggur feikileg vinna, t.d. hefur
listamaöurinn höggvið til vegg-
myndir úr náttúrulitum steinhell-
um, en 27 slikar myndir teljast
aðeins eitt verk á sýningunni.
Sigurlinni var upphaflega i
teikninámi hjá Rikarði Jónssyni,
myndhöggvara, en stundaði nám
viö myndlistaskóla i Kaup-
mannahöfn á árunum 1924 og '25.
Eftir það hefur hann tekið sér
ýmislegt fyrir hendur. Hann kom
fyrstur manna hugmyndum um
súgþurrkun heys á framfæri hér á
landi, svo og er hann brautryjö-
andi i gerð svonefndra eininga-
húsa hér á íslandi
Sigurlinni hefur unniö aö list-
sköpun sinni i tómstundum. Haf a
atburöir sem þættir úr goðafræði
orðiö honum tilefni til myndgerð-
ar. Þá má aftur nefna vegg-
myndirnar úr hellunum, sem
Sigurlinni kveöur upplagt
kennslutæki. T.d. geta börnin virt
fyrir sér eina myndina og séð út
úr henni kynjamyndir, gefið þeim
siðan lif i frásögn og jafnvel fyllt
upp i með eigin hugmyndaflugi,
segir listamaðurinn.
Sýningin er opin til 20. júni.
ET
Viðtalsvakt
heimilislækna
á kvöldum og helgidögum, sem
auglýst er í „Leiðbeiningum til
samlaganna '73" tekur til starfa
í Göngudeild Landsspítalans
næstkomandi þriðjudag
12. júní kl. 19
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR
I
Staða bæjar-
endurskoðanda
Staða bæiarendurskoðanda hjá Hafnar-
fjarðarbæ er laus til umsóknar.
Áskilin menntun er: Próf i endurskoðun,
próf frá Háskóla íslands i viðskiptafræði
eða hliðstæð menntun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna Hafnarfjarðar-
bæjar, 27. launaflokkur.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist undirrituðum eigi siðar en 15. júni n.k.
Bæjarstjóri.
Kranz á
leiði Björns
Pdlssonar
FIMMTUDAGINN 7. júni siðast-
liðinn, klukkan 11 fyrir hádegi,
var lagður kranz á leiði Björns
Pálssonar, sjúkraflugmanns, i
Fossvogskirkjugarði. Kranzinn
var frá bæjarstjórn Angmags-
salik á Grænlandi. Formaður
bæjarstjórnar Angmagssalik,
Josval Maqi, lagði kranzinn á
leiðið. Viðstaddir voru nánustu
ættingjar Björns Pálssonar
ásamt aðalræðismanni Dana á
tslandi, Ludvig Storr.
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
V/AUSTURVÖLL S 2 66«0
RAFIÐJAN
VESTURGOTU 11 S 1 92 94
Magnút E. Baldvlnsson
I«ur«>crI II - Slml 71*0«
Hrossasýningar 1973
Forskoðun kynbótahrossa vegna fjórð-
ungsmóts á Iðavöllum á Fljótsdalshéraði
28. og 29. júli verður þannig:
Suðursveit og Mýrar,
Nesjar og Höfn,
Lón, Suðurfirðir og Breiödalur,
Fáskrúðsfjörður til Noröfjarðar,
Fljótsdalshérað,
Fljótsdalshérað,
júni Fljótsdalshérað og viöar, ef óskað er.
Aðeins vel tamin kynbótahross koma til
greina og ungfolar.
Forskoöun framkvæma ráðunautarnir Sigfús Þorsteins-
son og Þorkell Bjarnason.
Tilkynnið þátttöku nú þegar til formanna hestamanna-
félaganna.
Búnaðarfélag íslands — Hrossaræktin.
Læknaritari
Staða læknaritara, hálfs dags starf, er
laust til umsóknar á lyflækningadeild
Landspitalans frá 1. júli n.k.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir, er greini frá aldri, menntun og
fyrri störfum sendist Skrifstofu rikis-
spitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 25. júni n.k.
Reykjavik 8. júni 1973.
Skrífstofa rikisspitalanna.
’VcuTctév
Þéttir gamla og nýja
steinsteypu.
SIGMA H/F
Bolholti 4,
simar 38718—86411'
Vestmanna'
eyjaferðir m/s
Herjólfs um
Þorlókshöfn
Fö. 8/6 frá Ve. kl. 14.00.
Fö. 8/6 frá Þh. kl. 18.30.
La. 9/6 frá Ve. kl. 09.00.
La. 9/6 frá Þh. kl. 13.00.
Su. 10/6 frá Ve. kl. 15.00.
Su. 10/6 frá Þh. kl. 19.00.
Má. 11/6 frá Ve. kl. 18.00.
Má 11/6 frá Þh. kl. 21.30.
og isiðustu ferðinni áfram til
Rvikur.
. . . 4 . _
SKIPAUTGCRO RÍKISINS
URVALS
HVEITI
llli.fÆST í KAUPFÉLAGINU
...iiiiillllllll
1 14444 *SL
\mmiR
25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN