Tíminn - 09.06.1973, Page 12
12
TÍMINN
Laugardagur 9. júni 1973.
EBE-húsið “ŒT
ÞEGAR flogift er lágt yfir Hruss-
el, kemur inaftur strax auga á þaft
— risavaxinn skinandi, fjögurra
arma kross, eilitiö skakkan. Allt i
kring eru tekin af» risa háhýsi og
gömlu, rauftu múrsteinshúsin eru
nánast eins og aöskotadýr i þess-
ari stál- og glerveröld. Bráölega
munu þau verfta aft vikja fyrir
stærstu stjórnstöð, sem enn hefur
verift reist i heiminum.
Hin krosslaga, 13 hæða Berlay-
mont-bygging, sem með fylgi-
tunglum sinum er, ekki aö
ástæðulausu, kölluð „háborg
Evrókratanna". Hún hýsir
nefnilega mestan hluta þeirra
8000 föstu starfsmanna og alþjóð-
legra embættismanna, sem sjá
um daglega starfsemi innan
EBE, Efnahagsbandalags
Evrópu.
1 bjartsýni voru á s.l. hausti
reistar fjórar nýjar fánastengur
framan við Berlaymont, til við-
bótar þeim sex, sem fyrir voru. A
þessum fjórum áttu danski,
norski, irski og brezki fáninn að
vera, við hlið hins italska,
belgiska, franska, hollenzka,
þýzka og Lúxemburgarfánanum,
þegar sex yrðu að tiu um s.l. ára-
mót.
En sex urðu aldrei nema að niu
og norska fánastöngin var tekin
niður og bráðabirgðaskrifstofum
Noregs var lokað. Hvað sem ann-
ars er um stjórnmálahlið málsins
að segja, er vist, að ýmsir starfs-
menn söknuðu norsku stulkn-
anna, sem túlkuðu þarna, þvi að
þær voru taldar hinar fegurstu i
þessari mauraþúfu.
EBE-hUsið i Brussel er eins
konar Babelsturn, sem fengið
hefur á sig mörg nöfn: Kross
EvrópubUa, stærsti embættis-
mannageymir Evrópu, risabað-
stofa, háborg Evrókratanna og
mörg fleiri.
Sjö tungumál
Evrópski Babelsturninn er ef 'til
vill merkilegasta nafngiftin, sem
hUsið hefur hlotið, þvi ringulreið-
in i tungumálunum er næstum
fullkomin. Þar eru sjö tungumál
og hvert einasta skjal verður að
vera á þeim öllum. Það eru
franska, þýzka, italska, enska,
hollenzka, danska og keltneska.
Hvað þvi siðasta viðkemur, hafa
trar sætzt á, að aðeins einstök
hinna allra mikilvægustu skjala
séu þýdd á það mál, en önnur lesa
þeir á ensku.
Annars er reynt að blanda öllu
sem mest, þannig að allar skrif-
stofur séu evrópskar, en beri ekki
svip neinnar sérstakrar þjóðar,
eða máls hennar. Allar tilkynn-
ingar og skilti i hUsinu og vegvis-
ar, til nágrannahUsanna eru á sex
málum.
Aðstaðan við að starfa þarna á
einu tungumáli hefur i för með
sér geysilega aukavinnu og gerir
allt starf óþarflega þungt i vöfum.
Það er nægilega erfitt, þegar hver
höndin er upp á móti annarri og
skoðanir skiptar, þó að ekki sé
það gert verra með öllum umræð-
um um tUlkunartæki.
Setið er i hópum og allir eru
hlekkjaðir við eyrnatappa sina,
sem i mörgum tilfellum eru
þarna bara af þjóðarstolti, þvi
auðvitað skilja margir tungu
hinna.
t daglegu starfi i Berleymont
hafa franska og þýzka verið ráð-
andi mál, en siðan Bretar bættust
við, hefur enskan að mestu tekið
ráðin og er nU að verða aðalmál
EBE.
550 milljónir
i húsaleigu
Berleymont fékk nafn sitt af
gömlum rUstum, sem fyrir voru
þegar jarðýtur hófu, árið 1962, að
moka 20 þUsund bilhlössum af
mold og sandi upp Ur þeirri
stærstu holu, sem nokkurn tima
hefur verið grafin i höfuðborg
Belgiu. Upphaflega hafði annarri
byggingu verið ætlaður þarna
staður, en áætlanir breyttust og
EBE er til hUsa i Berleymont, þó
aö fyrri eigandi sé ennþá opinber
eigandi, sem tekur 550 milljónir
isl. króna i hUsaleigu árlega.
HUsið er að mestu byggt Ur stáli
og gleri og vilja sögur segja svo,
aö þetta hafi verið gert, þegar
verð á stáli var að falla.
Grunnur hússins er að lögun
eins og kross og byrjað var að
byggja ofanfrá: Fyrst stálgrind,
siðan þakið, og siðan voru ein-
stakar hæðir hengdar upp undir
það. Þessi aðferð orsakar það, að
taka verður visst tillit til þunga
hUssins. Enginn starfsmaður má
hafa nema helming skjala. sinna
inni hjá sér á skrifstofunni, af-
ganginn verður að geyma niðri i
kjallara. Með þessu íagi er einnig
gert ráð fyrir að hægt sé að vinna
á einhvern hátt gegn „pappirs-
mylluþróuninni" sem er gifurleg
þarna, ekki sizt vegna vandans af
tungumálaringulreiðinni.
Þrátt fyrir stærðina, er eitthvað
létt og fagurt við Berleymont.
Þar sem hUsið hvilir á súlum sin-
um, með stórar, bogadregnar
framhliðar og sólina speglandi i
hinu mikla gleri, er það i senn
hrikalegt og fingert.
Óánægja með
vinnustaðinn
A þakinu er kringlóttur þyrlu-
flugvöllur, sem enn hefur ekki
verið tekinn i notkun, þegar þetta
er skrifað. Borgarstjórinn i
Brussel er ekki sérlega hrifinn af
þeirri tilhugsun, að þyrla ferðist i
miðri borginni og heldur ekki af
menguninni, sem stöðug þyrlu-
umferð kynni að valda. Það er
vist nóg af bensinstybbu i Brussel
fyrir. — Bærinn hefur eitt það
verst skipulagða umferðarkerfi,
sem um getur i Evrópu og gestir i
borginni eru dauðhræddir um lif
sitt i umferðinni.
Að innanverðu er Berlaymont
ekki það snilldarverk i
arkitektUr, sem bUizt var við.
HUsið er sem sagt alls ekki eins
og æltazt var til, að sögn. Aðeins á
efstu hæðinni, hjá þeim hæst
settu, er hægt að opna gluggana,
en á hinum hæðunum verða menn
að treysta á loftræstinguna, sem
hefur þann einstaka eiginleika að
bila, þegar verst stendur á eða
framleiða aðeins-það lágmark af
fersku lofti, sem menn þurfa til að
lifa.
Loftræstingin neðst i hUsinu er
svo slæm, að ekki er hægt að nýta
hina stóru fundarsali þar til fulls.
Þetta er falleg, en ófullkomin
bygging, heyrist Ur öllum áttum.
Gangarnir, kilómetri að lengd,
eru gráir og drungalegir og það
Framhald á bls. 39.
í miðri höfuðborg
geysistóra,
nýja Evrópa mynda
gerðar áætlanir
framkvæmdar að nokkru leyti.
Innan veggja Berlaymont komast
niu þjóðir að samkomulagi, þrátt
fyrir ringlureið sjö tungumála og
skiptar skoðanir.