Tíminn - 09.06.1973, Qupperneq 13
Laugardagur 9. júni 1973.
TÍMINN
13
ÞAÐ
MEÐ
GETUR BRUGÐIÐ TIL BEGGJA VONA
RÉTTVÍSINA
Skipulag lögfræðilegrar aðstoðar verkar ekki, þar sem
fólk þarfnast þess mest
Þetta kom i ljós, þegar lög-
fræðingar tveir i Noregi könnuðu
árið 1971 og ’72 þörf fólks fyrir
lögfræðilega aðstoð til að greiða
úr vandamálum sinum.
Forsendan fyrir þessari athug-
un var sú, að fyrirkomulagið á
ókeypis lögfræðilegri aðstoð er
ekki fullnægjandi.
Lögfræðingarnir reyndu fyrst
að komast að þvi, hvers konar
vandamál fólk á i raun og veru
við að glima, og völdu út þrjú stig
þessara mála i gömlum bæjar-
hluta i Osló. í þessum húsasam-
stæðum hjó samtals 91 fjölskylda.
Siðan reyndu þeir að finna út, að
hve miklu leyti málin leystust
með sérfræðilegri aðstoð. Þeir
tóku til meðferðar öll málin, sem
þeir fundu. —
t meira en átta tilvikum voru
mál, sem lögfræðingarnir tóku
upp, leyst á viðunandi hátt. Flest
þessara mála myndu ekki hafa
hlotið svona afgreiðslu, ef frum-
kvæði lögfræðinganna hefði ekki
komið til.
Ekki er öll sagan sögð með
þessu, þvi að þriðjungur fjöl-
skyldnanna, sem lögfræðingarnir
sneru sér til, vildu ekki leggja
vandkvæði sin fram fyrir þá.
Margt af þessu fólki var við aldur
og mjög svo erfitt við að eiga, svo
að ætla má, að það hafi verið
hrætt við að „komast i klandur”.
Þegar lögfræðingarnir fóru að
fást við málin, kom i ljós, að tiu
fjölskyldnanna fengu aftur 10.901
krónur (norskar), sem þær höfðu
áður borgað of mikið i skatt, 3118
krónur, sem þær höfðu ofgreitt
árið 1970 og auk þess fengu þær
viðurkenndan fra'drátt að upphæð
18 .484 krónur, sem þær höfðu
ekki vitað um.
— Það er hugsanlegt, að skatt-
yfirvöld hefðu tekið eitthvað af
málunum fyrir á eigin spýtur, en
ætlað er, að þau hefðu orðið fá.
Fjölskyldurnar tiu, sem hér um
ræðir, tilheyrðu allar hópinum
með lægstu tekjurnar, þar sem
hver króna skiptir máli.
Ýmislegt fleira kom i ljós i
þessu máli, en niðurstaðan er sú,
að peningarnir, sem unnust á
þennan hátt, eru fé, sem fólk á
kröfu á, en fær einfaldlega ekki,
vegna þess að þvi er ekki gert við-
vart af hálfu hins opinbera eða
öðrum.
Sá
mest
seldi
ár
eftir
ár
Pólar h.f.
Einholti 6.
Til
tœkifœris
gMa
Demantshringar
Steinhringar
GULL OG SILFUR
fyrir dömur og herraS^S
Gullarmbönd
Hnappar ^
Hálsmen o. fl. n5>
Sent í póstkröfu
GUÐMUNDUR /§
<vs. ÞORSTEINSSON >3
gullsmiður
^ Bankastræti 12
^ Sími 1-40-07 ^
Þessi vörubifreið með 212 (DIN) hestafla vél, þrem
drifhásingum með læstu mismunadrif,
fimmtán tonna burðarþoli, kostar aðeins kr. 2,760.000
að fullu tilbúin til notkunar, með stálpalli, hliðar- og
endasturtum, sé pöntun gerð fyrir30. júnin.k. 10%
verðhækkun eftir 30. júní.
Ennfremur fáanleg meö grjótpalli eða
á grind í mörgum mismunandi gerðum.
TEKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-46 SlMI 42600
KÓPAVOGI