Tíminn - 09.06.1973, Side 28
28
TÍMINN
Laugardagur 9. júni 1973.
I SAMRÆMI við yfirlýsingu sina um sam-
einingarmálið hefur stjórn SUF kosið sjö manna
nefnd. í nefndinni eiga sæti auk formanns SUF,
Eliasar Snælands Jónssonar, og varaformanns
SUF, Eggerts Jóhannessonar, eftirtaldir
stjórnar menn: Halldóra Sveinbjörnsdóttir,
Ólafur Ragnar Grimsson, Pétur Einarsson, Frið-
geir Björnsson og Jóhann Antonsson.
YFIRLÝSING STJÓRNAR SUF UM
SAMEININGARMÁLIÐ OG
SKIPUN KONNUNARNEFNDAR
Baráttan fyrir nánara samstarfi vinstri aflanna i landinu hefur hafa haft fjöldamörgum öðrum mikilvægum verkefnum að sinna.
mjög einkennt starfsemi Sambands ungra framsóknarmanna á
undanförnum árum. Þetta baráttumál hefur i almennu tali fengið
nafnið „sameiningarmálið” vegna þess, að yfirlýst takmark bar-
áttunnar er mótun sameiginlegs stjórnmálaafls allra þeirra, sem
aðhyllast hugsjónir jafnaðar, samvinnu og lýðræðis. Fram-
sóknarflokkurinn hét þvi á siðasta flokksþingi, i april 1971, að
vinna að mótun slíks stjórnmálaafls á þvi kjörtimabili, sem nú er
hálfnað.
Vonir vinstri manna um, að þýðingarmiklir áfangar myndu
nást i þessu máli á yfirstandandi kjörtimabili, risu mjög hátt eftir
siðustu Alþingiskosningar, enda voru sérstakar viðræður milli
vinstri flokkanna um málið ákveðnar skömmu eftir myndun nú-
verandi rikisstjórnar.
Ungt fólk i öllum vinstri flokkunum, og þá ekki hvað sizt i
Framsóknarflokknum hefur bundið miklar vonir við þessar við-
ræður. Þær vonir hafa enn ekki ræzt.
Framsóknarflokkurinn hefur á þessu tæplega tveggja ára tima-
bili átt allmarga viðræðufundi með fulltrúum annars vegar frá
Alþýðuflokknum og hins vegar frá SFV. Þær viðræður hafa ekki
leitt til neinnar niðurstöðu. Sú itarlega málefnakönnun, sem ungt
fólk vonast til að færi fram á vegum viðræðunefndanna, hefur
ekki verið framkvæmd, þótt spjallað hafi verið um einstök mál.
Aiþýðuflokkurinn og SFV náðu samkomulagi um viljayfir-
lýsingu, sem samþykkt var á flokksþingum beggja aðila haustið
1972. Ekki er kunnugt um frekari sameiginlegar niðurstöður.
Alþýðubandalagið hefur ekki enn tekið þátt i vinstri viðræð-
unum.
Hér er vissulega um rýra uppskeru tveggja ára starfs að ræða.
Ástæðan er einkum sú, að unnið hefur verið að þessum viðræðum
með hangandi hendi. Þær hafa staðið milli fáeinna manna, sem
Forystumenn i öllum flokkum eru þar i einum báti og jafnsekir.
Afleiðingin er sú hörmulega staðreynd, að sameiningarmálið
liggur litlu eða engu ljósar fyrir i dag en fyrir tæpum tveimur
árum siðan, þegar viðræðurnar hófust. Hin stjórnmálalega
þróun í landinu hefur ekki heldur skýrt málið að ráði þessi tvö ár.
Þing SUF, sem haldið var á Akureyri i september siðastliðinn
fól stjórn sambandsins að vinna ötullega að „sameiningarmálum
jafnaðar- og samvinnumanna”.
Forsenda þess, að hægt sé að meta raunverulega stöðu sam-
einingarmálsins af þekkingu og raunsæi, og tryggja þar með, að
allar aðgerðir málinu til framdráttar séu byggðar á traustum
grunni, er, að raunveruleg afstaða hinna ýmsu aðila til málsins
liggi ljósar fyrir.
Stjórn SUF telur það þvi eðlilegt næsta verkefni sitt i málinu að
afla sér sem gleggstra upplýsinga um, hvaða viðhorf eru rikjandi
meðal yngri og eldri manna i öllum hinum vinstri flokkunum bæði
til grundvallaratriða lýðræðissinnaðrar vinstri stefnu og til
mótunar sameiginlegs stjórnmálaafls allra þeirra, sem aðhyllast
hugsjónir jafnaðar, samvinnu og lýðræðis.
Stjórn SUF samþykkir þvi að fela sjö manna nefnd að fylgjast
með þróun vinstri hreyfingar á íslandi og kanna þá möguleika,
sem á hverjum tima kunna að vera i mótun sameiginlegs stjórn-
málaafls allra þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar, sam-
vinnu og lýðræðis.
Nefndin skal leitast við að afla upplýsinga um viðhorf eldri og
yngri manna i öllum hinum vinstri flokkunum til mótunar sliks
stjórnmálaafls, og til grundvallaratriða lýðræðissinnaðrar vinstri
stefnu.
Nefndin skal gefa stjórninni reglulega skýrslu um störf sin.
Þær upplýsingar, sem nefndin aflar sér skulu siðan leggjast til
grundvallar öllum frekari umræðum og ákvörðunum um hugsan-
legar aðgerðir af hálfu ungra framsóknarmanna i sameiningar-
málinu.
Sjálfstæðisf lokkurinn og malbikið
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alltaf þótt fremur leiðinlegur.
Helzt gáfu þeir Ólafur Thors
og Bjarni Benediktsson
honum einhvern lit með sér-
stæðum og stundum skemmti-
legum persónum sinum. Þeir
máttu samt ekki við
margnum. Nú er sú tið liðin
og nýir herrar komnir til
sögunnar. Augljóst virðist, að
Geir Hallgrimsson hefur orðið
ofan á i baráttunni um for-
mannssætið, og má hann
þakka það meirihluta þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins,
sem tók þá ákvörðun, að svo
skyldi vera. Hinn almenni
sjálfstæðismaður var ekki að
þessu spurður, sem bezt kom i
ljós á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins. Skyldi það vera ein-
hvers konar tilviljun, að þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins
er af svipaðri stærð og for-
sætisnefnd sovézka
Kommúnistaflokksins?
Annars hefur Geir Hall-
grimsson helzt unnið sér það
til frægðar að vera duglegur
að malbika i borgarstjórnartið
sinni. Allur dugnaður er af-
stæöur, og mun frægð Geirs i
þessum efnum að miklu leyti
stafa af þvi, hvað forveri hans
Gunnar Thor, var linur i mal-
bikinu. Enda kom á daginn, að
Geir vann Gunnar i formanns-
slagnum. Sjá má, að æfingin
skapar meistarann. Nú kvarta
margir Sjálfstæðismenn yfir
þvi, að verðandi formaður
þeirra sé ákaflega stifur mað-
ur og liðamótalaus, brosi
sjaldan á ári hverju og eigi
bágt með að skilja, þegar
menn gera að gamni sinu.
Þetta getur allt saman verið
rétt.
Góður maður var eitt sinn
sagður leggjast eins og sósa
yfir menningarlif Islendinga.
Óneitanlega læðist að manni
sá grunur, að formennska
Geirs kunni að leggjast á
Sjálfstæðisflokkinn eins og
malbik yfir götu.
Og eins og menn vita getur
malbikið orðið æði liflaust og
grátt i rigningunni.
Við velium mmtel
það borgar sig
PUldri - OFNAR H/F.
< Stðumúla 27 . Reykjavík
Símar 3*55-55 og 3-42-00
TÍMINN
ER
TROMP
IVIP ^ ^0
m*
Framkvæmir:
-J-/ Járnsmíöi - Rennismíði - Álsmíði
Vélaverkstæðið Véltak hf'
Dugguvogur21 - Sími 86605 - Reykjavík