Tíminn - 04.08.1973, Síða 1

Tíminn - 04.08.1973, Síða 1
IGNIS FRYSTIKISTUR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 c 177. tölublað — Laugardagur 4. ágúst—57. árgangur Hálfnað erverk þá hafiðer ^ I sparnaður skapar verðmæti Samvinnubankinn Dýrmæt frímerki d uppboði ÞEKKTASTI frímerkja- kaupmaöur veraldar, Eng- lendingurinn Stanley Gibb- ons, heldur uppboö 4. októ- ber, þar sem seid veröa fri- merki fyrir sem næst sextiu milljónir króna á einum degi. Frlmerkin eru mörg úr einkasöfnum, meðal annars úr safni Lars Amundsens, ættingja landkönnuðarins Roalds Amundsens. Meðal mjög verömætra frimerkja, sem seld verða, eru frimerki frá Vestur-Indium, sem lutu Dönum fram til ársins 1917 — þar á meðal eitt frá árinu 1867, virt á tvær milljónir króna. Háspennulína úr Hvalfirði að Varmahlíð: Nær fullvfst að byggða- leiðin verður ofan á JÍMINN skýröi frá þvi snemma I júlimánuði, aö sennilega yröi horfið frá þvi aö leggja háspennu- llnu, sem tengdi saman orku- veitusvæöin noröan lands og sunnan, yfir háiendi landsins, og kæmi i hennar staö háspennulina meö byggöum fram. Hefur nú á annan mánuö veriö unnið linnu- laust aö mælingum og rannsókn- um til undirbúnings þessari linu, og er llklegt, aö hafizt veröi handa um aö reisa hana á næsta sumri. Flokkur manna frá Haf- magnsveitum rikisins velur llnu- stæöiö I stórum dráttum, en ná- kvæmar mælingar og aðrar rann- sóknir til undirbúnings eru gerö- ar á vegum Orkustofnunar. Við áttum I gær tal við Birgi Jónsson, mannvirkjajarðfræðing hjá Orkustofnun, sem starfað hef- ur að þessum rannsóknum i sumar, og leituðum hjá honum frétta. — Þegar um það var að ræða að tengja saman orkuveiturnar norðan lands og sunnan, var 1 Bleiklaxinn er heldur ólögulegur fiskur eins og myndin sýnir. 3 bleiklaxar veidd- ir í Þjórsá í sumar rauninni um fjórar leiðir aö velja, sagði Birgir: Sprengisandsleið i Báröardal, Sprengisandsleið i Eyjafjörð, Kjalveg eða linu, sem lægi um Borgarfjörð og fylgdi sem mest byggð. Til forsvaran- legs undirbúnings háspennulinu yfir hálendið hefði þurft margra ára veðurfarsathuganir, en á hinn bóginn kreppir nú rafmagns- hungur, ef svo má segja, svo að sumum landshlutum, að skamm- ur timi er til stefnu. Það er þetta, sem veldur þvi, aö nú hefur byggðaleiðin svokallaða verið könnuð, en hún hefur þann kost, að hún tengir saman mörg orku- veitusvæði og liggur um slóðir, þar sem miklu minna mun reyna á hana heldur en á hálendinu, auk þess sem hún fylgir þjóðvegum að miklu leyti, og verður þess vegna bæöi auöveldara að reisa hana og halda henni viö. — Nú virðast allar likur til þess, að málmblendiverksmiöja veröi reist I Skilmannahreppi ofan Hvalfjarðar, og er þess vegna sjálfgefið, að þangað verður lögö háspennuíina, hélt Birgir áfram, og önnur háspennulina er þegar komin frá Akureyri til Varma- hliðar i Skagafirði. Lina sú, sem bæta þarf við, er þvi i rauninni úr Hvalfiröi og noröur i Skagafjörð, um 230 kilómetra löng, og liggur um orkuveitusvæði Andakilsár- virkjunar og Laxárvirkjunar i Húnavatnssýlu, þannig aö þessi tvö orkuver verða þá samtengd orkuverunum sunnan lands og norðan. Þetta er 130 þúsund volta há- spennulina, sem á aö reisa, og er gert ráö fyrir, aö hún liggi fyrir Hafnarfjall, upp Borgarfjörð, um Þverárhlið, Grjótháls og Norður- árdal ofan verðan og siðan yfir Holtavörðuheiði og eins og leið liggur austur Húnavatnssýslur, meðfram Svinavatni og yfir Vatnsskarö. — Við höfum verið aö velja Framhald á bls. 29 AÐ UNDANFÖRNU hafa þrlr bleiklaxar (hnúðlaxar) veiðzt I net I Þjórsá frá Urriðafossi. Sá fyrsti veiddist fyrir hálfum mán- uði, annar fyrir rúmri viku og sá þriðji i gær. Lengd bleiklaxanna var frá 42 til 48 sm og þyngdin 3 til 4 pund. Bleiklaxa varð fyrst vart hér seinni hluta sumars 1960, og var þá vitað um 25 laxa,sem veidd- ust, aðallega norðan- og austan- lands. Árið eftir veiddust 2 bleik- laxar. Siðan hafa veiðzt fáeinir bleiklaxar 1964,1965,1967, og 1971 veiddust 7 bleiklaxar. Siðasta aldarfjórðung hafa Rússar reynt að koma á bleik- laxagöngum á Kolaskaga við Hvítahaf. Hafa þeir flutt milljónir bleiklaxahrogna frá Kyrrahafs- Framhald á 28. siðu. Samningar lausir 1. nóvember: Undirbúningur að kröfugerð hafinn KJARASAMNINGAR verkalýös- hreyfingarinnar eru sem kunnugt er lausir frá 1. nóvember næst- komandi. Undirbúningur fyrir gerð nýrra kjarasamninga er þegar hafinn, og veröur reynt að samræma kröfugerð verkalýðs- félaganna eins og undanfarin ár. Má búast við, að I þvl skyni verði haldin sérstök Kjaramálaráð- stefna eins og oft áður, væntan- lega fyrir eða um mánaðarmótin ágúst/september. I siöustu kjarasamningum var komið á fót sérstakri samstarfs- nefnd milli verkalýðshreyfingar- innar og atvinnurekenda, og hef- ur hún á fundum sinum rætt ýmis mál, m.a. vísitölukerfið og hugsanlegar breytingar á því. — EJ. Ilalldór Þorbjörnsson. Nýr yfir- sakadómari FORSETI Islands hefur I dag, að tillögu dómsmálaráöherra, skipaö Halldór Þorbjörnsson I embætti yfirsakadómara i Reykjavik frá 1. ágúst 1973 að telja. Sölubörn — munið söluverð" launin á þriðjudaginn „VIL SJA AVOXT AF STARFINU” — segir nýskipaður æskulýðsfulltrúi Séra Guöjón: — Ég er svona að setja mig inn I máiin. Fyrst I stað er þetta eins og að hræra I potti, maður verður að sla úr þvi, sem fyrir er. ÓV—Reykjavlk. — Séra Guðjón Guðjónsson, prestur á Stóra núpi I Árnesprófastdæmi, hefur verið skipaður æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar frá 1. ágúst sl. Séra Bernharður Guðmundsson, sem veriö hefur æskulýðsfulltrúi, starfar nú við útvarpsstöðina „Radio Voice of the Gospel” I Addis Abeba I Eþfóplu. Séra Guðjón Guöjónsson er 32 ára. Hann lauk embættisprófi i guöfræði frá Háskóla Islands 1968. Veturinn 1968-69 var hann við nám við kirkjutónlistarskól- ann I Lubeck og var siöan organ- isti þar sumarið 1969. Um haustið hélt hann til London og var við nám i orgelleik við konunglega kirkjutónlistarskólann. Haustið 1970 var hann svo vigöur prestur til Stóra-Núpsprestakalls i Ar- nesprófastsdæmi. t stuttu viðtali við fréttamann blaösins á föstudag sagöist hinn nýi ækulýðsfulltrúi hlakka til starfsins, en enn væri hann að koma sér fyrir og setja sig inn i starfssviösitt. Það er nóg aö gera, öll hjól eru I gangi og nú vil ég reyna að halda þeim gangandi, sagöi séra Guöjón. — Gangur þessa starfs er afar mikiö háöur sjálfum æskulýðsfulltrúanum, hvað hann gerir og hvernig hann tekur á málunum. Helzt langar mig til að sjá meiri ávöxt af starfinu, sagði séra Guðjón ennfremur. I prestskap er það nú þannig, aö maður sér ekki alltaf mikinn ávöxt af starfinu, þetta er meira að plægja og sá en það eru oft björt og skær ljós, sem lýsa upp tilveruna og starfið. Séra Guðjón Guðjónsson er kvæntur sænskri konu, Siv Guöjónsson, og eru þau barnlaus.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.