Tíminn - 04.08.1973, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. ágúst 1973.
TÍMINN
13
—uppfræðsla — sá óvenjulegasti
og um leið sá áhugaverðasti i
augum nemendanna. Þeir
fræðast um flest, sem lýtur að
heilsu þeirra og heilbrigði, t.d.
nefnist ein undirgreinin vinnu-
tækni, þar sem kenndar eru rétt-
ar vinnuaðferðir við ýmis störf.
Að lokinni bóklegri fræðslu i
skólastofunni, fer kennarinn með
nemendurna út i næsta almenn-
ingsgarð, þar sem þeir hlaupa
eða skokka eftir þriggja kiló-
metra langri hlaupabraut.
Þrekþjálfunin fer fram i leik-
fimisalnum, þar sem alls kyns
tæki til þjálfunar er að finna. M.a.
áhald sem nefnist „Bendex-tæki”
— áttstrent vöðvaþjálfunartæki
—, sem átta nemendur geta
spreytt sig á i einu. Tæki þetta
kostar tæpa hálfa milljón is-
lenzkra króna, en er sagt einstakt
i sinni röð.
Þrekiö hefur aukizt
um 150% á einu ári
— Það er enginn vafi á, að bætt
tækni dregur úr þreki mannsins.
Þess vegna verður hinn einstaki
nemandi að bæta sér það upp með
ýmiss konar kraftþjálfun, heldur
Henning Enoksen áfram. —
Sænskar, bandariskar og
japanskar rannsóknir hafa leitt i
ljós, að likamsæfingar barna gefa
beztan árangur, rétt áður en þau
verða kynþroska. A þeim tima
má auka þrek barns um allt að
150% á einu skólaári. Á sama hátt
eykst þrek fullorðinna aðeins um
10-15% með eins árs þjálfun og
áhrif hennar vara mikið skemur.
í Tönder er ágæt aðstaða til að
iðka allar þær tólf greinar iþrótta,
sem nemendur geta valið. 1 bæn-
um er nýr iþróttavöllur með
æfingabrautum, tvær iþróttahall-
ir, útisundlaug, almennings-
garðar með hlaupabrautum,
tennisvellir o.s.frv. Sömuleiðis er
ágæt aðstaða til að æfa skotíimi,
enda til athugunar, að skotfimi
verði bætt við sem þrettánda val-
kostinum, einkum til að venja
nemendurna við notkun skot-
vopna i friðsamlegum tilgangi.
Þessi iþróttamiðstöð er bæði
kostuð af sveitarfélaginu og eins
af einkaaðilum. Hún hefur verið i
byggingu siðasta áratug og er
ekki enn að fullu lokið, þvi að
fyrirhugað er að byggja á næst-
unni sundhöll með fimmtiu metra
langri laug. Þá kemur og til
greina, að byggð verði tóm-
stundahöll i nágrenni iþróttamið-
stöðvarinnar.
Nemendurnir verða
að kennurum
1 lok skólanámsins fá
nemendurnir tilsögn i ýmsum
greinum kennslufræða, svo að
þeir geti tekizt á hendur iþrótta-
kennslu, þótt i smáum stil sé.
Þannig eru eldri nemendur að-
stoðarkennarar við kennslu
þeirra yngri.
Eins og áður kemur fram, velja
flestir nemendurnir eina iþrótta-
grein, sem þeir leggja eingöngu
rækt við, meðan þeir stunda nám
i barna- og gagnfræðaskólum.
Aftur á móti er ein af þeim tólf
greinum, sem áður eru nefndar,
tekin fyrir og nemendunum veitt
leiðsögn i henni, til að þeir geti
leiðbeint öðrum. Hugsunin, sem
býr að baki þessu, er sú, að
nemendurnir geti siðar meir —
þegar þeir hafa lokið námi —
stofnað sin eigin félög og haldið
áfram æfingum innan vébanda
þeirra.
'Þetta hefur gefið góða raun. 1
fyrravetur var t.d. borðtennis
tekinn fyrir og stuttu siðar var
myndað borðtennisfélag i Tönder.
félagið telur yfir eitt hundrað
félaga og starfsemi þess er mjög
blómleg. 1 ár varð svo körfu-
knattleikur fyrir valinu, svo að
liklega sér körfuknattleiksfélag
dagsins ljós i Tönder innan
skamms.
Áðurnefndar breytingar gera
að sjálfsögðu miklar kröfur til
iþróttakennara, enda hefur námi
þeirra i Danmörku verið breytt i
þessu skyni. Nú er að biða og sjá,
hvort þessi nýskipan leikfimi-
kennslu verður komið á hér á
landi eða . . .
(ET þýddi og staðfærði))
21190 21188
Varahlutir
Fyrstir á
morgnana
Cortina, Volvo, Willys, Austin
Gipsy, Land/Rover, Opel,
Austin Mini, Rambler,
Chevrolet, Benz, Skoda,
Trabant, Moskvitch.
Höfum notaða varahluti i
þessar og flest allar eldri
gerðir bila, meðal annars:
Vélar, hásingar, og girkassa
ÞRJÚ INNBROT OG BÍLSTULDIR
I-kfcnur
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - X - 270 sm
Aðrar stærðir. smlðaðar eítir beiðni.
GLUGGAS MIÐJAN
Siðumúla 12 - Sími 38220
Bilapartasalan
Nemandi æfir sig á stökkdýnu i leikfimitima i Tönder. Hjá dýnunni stendur kennarinn, Henning Enoksen, sem er okkur tslendingum að
góðu kunnur, þvi að hann þjálfar islenzka landsliðið i knattspyrnu nú i sumar.
Höfðatúni 10 simi 11397.
um. Bilþjófarnir voru tveir ungir
menn, og eru þeir báðir grunaöir
um að hafa verið nokkuð við skál.
Var annar enn i bilnum, þegar
lögreglan kom að honum, en hinn
var kominn á Hellu og hafðist upp
á honum nokkru siðar. Bifreiðin
var svo til óskemmd.
Þá var Skoda bifreið stoliö frá
bilasölunni Aðstoð i Reykjavik.
Bifreiðin fannst suður i Kópavogi
við Kópavogskirkju.
Loks var stolið bifreið suður i
Kópavogi. Þetta var bifeiðin D
369, sem er af Skoda gerð MB
1000, árgerð 1966, drappleit að lit.
Bifreiðin hefur ekki enn komið
fram, og eru þeir, sem hennar
yrðu varir, beðnir aö láta lögregl-
una vita.
Þá var brotizt inn á þremur
stöðum. Fyrst var farið inn i bif-
reið, sem stóð á Suðurlandsbraut,
og var stolið úr henni ferðaút-
varpstæki. Rúða var brotin i bif-
reiðinni til að komast að tækinu.
Farið var inn i mannlausa ibúð
við Hjallaveg, en engu virðist
hafa verið stolið þaðan.
Þriðja innbrotið var svo i Fálk-
anum við Suðurlandsbraut, en
þar var farið inn um glugga, sem
brotinn hafði verið. Þjófurinn
hafði á brott með sér Kenwood,
stereo kasettutæki KS 7010 A,
seriunúmer 641 092, ásamt til-
heyrandi heyrnartólum. Þjófur-
inn virðist hafa skorið sig við
verknaðinn, alla vega mátti sjá
blóðslóðina á gólfi verzlunarinn-
ar.
-gj-
— Það er mikið skemmtilegra að æfa hnit, en hoppa á tánum i sömu
sporum!
VIPPU - BliSKÚRSHURÐIN
A fimmtudag og aðfaranótt
fimmtudags var brotizt inn á
þremur stöðum i Reykjavik og
auk þess var þremur bifreiðum
stoliðl. Virðast þeir sem sifka iðju
stunda vera óvenju mikið á ferð-
inni um þessar mundir.
Fólksbifreið var stolið i
Reykjavik seint i fyrrinótt. Lög-
reglan frétti af ferðum bifreiðar-
innar austur i Rangárvallasýslu
og fór lögreglan á Selfossi á eftir.
Hún fannst uppi i Landsveit og
hafði henni verið ekið út af vegin-
mm/fL
BILALEIGA
CAR RENTAL