Tíminn - 04.08.1973, Page 2
2
TÍMINN
Laugardagur 4. ágúst 1973.
YFIRLÝSING
FRÁ U.AA.F.Í.
AF GEFNU tilefni vill Ung-
mennafélag islands koma á
framfæri eftirfarandi yfirlýsingu
varöandi samkomuhald um
verzlunarmannaheigar, sem
ungmennafélögin viðs vegar um
land hafa annazt undanfarin ár en
faiia niður að þessu sinni.
Ungmennafélögin i landinu
hafa um árabil haft forgöngu um
að koma á menningarlegum úti-
samkomum viðs vegar um land,
og er það mál manna að slikar
sumarhátiðir fari bezt fram séu
þær skipulagðar sem fjölskyldu-
hátiðir og hæfilega margar,
dreifðar um landið svo sem ung-
mennafélögin hafa stefnt að.
Að þessu sinni munu
CJÖFIN J|
gleður
sumarhátiðir þessar viðast hvar
falla niður vegna samþykktar
skógarvarða Skógræktar rlkisins
um að loka þeim svæðum, sem
þeir hafa ráð yfir, fyrir sam-
komuhaldi um verzlunarmanna-
helgina. Má þar nefna vinsæl
hátiðasvæði, svo sem Vaglaskóg,
Atlavik, Laugarvatn o.fl.
UMFI harmar þessa afstöðu og
einhliða samþykkt skógarvarða,
enda hafa ungmennafélögin, sem
fyrr er sagt, einbeitt sér að þvi að
bæta samkomuhald, og talið
skipulag og stjórn heppilegra
þessum stöðum um vinsælar
feröamannahelgar en skipulags-
laust rangl fólks i stórum hópum,
sem ekkert er gert fyrir. Þá má
geta þess, að bættu samkomu-
haldi fylgir aukinn og dýr
útbúnaður, sem félögin hafa fjár-
fest i á undanförnum árum, en
liggur nú að þessu sinni ónotaður
og engum til gagns.
UMFl óskar þess eindregið, að
almennt samkomuhald fái að
þróast á skipulegan hátt fyrir
framtak frjálsra félagshreyfinga
i landinu, og samstarf megi tak-
ast við forráðamenn þessara
samkomusvæða, um skipulagn-
ingu þessara mála i framtiðinni.
Forráðamenn ungmennafélag-
anna telja þessa ráðstöfun spor
aftur á bak.
Reykjavik 1. ágúst 1973,
Ungmennafélag islands.
Það er nú
þægilegra
að vera
áskrifandi —
og fá blaðið
sent heim
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Starfsstúlku vantar i eldhús Kópa-
vogshælis. Nánari upplýsingar gefur
matráðskonan, simi 41500.
Landspitalinn óskar eftir að ráða
sendil til sendistarfa innan spitalans
og á spitalalóðinni.
Umsóknum, er greini aldur, menntun
og fyrri störf, ber að skila til skrif-
stofunnar. Umsóknareyðublöð
fyrirliggjandi á sama stað.
Reykjavik 2. ágúst 1973.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765
Óldnssamingurinn
,frd 1961
Landfari, Timinn.
Mig langar til að biðja ykkur fyrir
nokkur orð til rikisstjórnarinnar.
Ég vil þakka ykkur fyrir hvað
þið hafið staðið vel i ístaðinu i
landhelgismálinu miðað við það,
að þið standið með þennan óláns
samning frá 1961 eins og rýting i
bakið. Og ég vil skora á ykkur að
láta hvergi deigan siga i þessu
máli. Enga undanlátssemi á
nokkurn hátt. Enga samninga við
Breta. Eftir það sem á undan er
gengið frá þeirra hálfu á ekki einu
sinni að ljá máls á þvi að tala við
þá um samninga hvað þá meira.
Og ekki ættuð þið heldur að kaupa
of dýrt samninga við Þjóðverj-
ana. Þessar þjóðir hafa aldrei
sýnt okkur annað en yfirgang og
ribbaldahátt. Vinaþjóðir hafa
þetta aldrei verið I okkar garð. Cr
sögn úr NATO og herinn burt er
nú svo sjálfsagður hlutur að slikt
ætti ekki að þurfa að ræða.
Og i öllum bænum, látið ekki
þessar eiturtungur, sem alltaf eru
að mjálma framan i Bretann, og
láta skina i það, að hér sé enginn
einhugur um landhelgismálið,
koma i veg fyrir að þið standið
fast á okkar málstað. Sigur okkar
er viss, ef ekkert er gefið eftir
fyrir þessum veiðiþjófaribböld-
um. Þessir vesalingar sem eru að
þessu mjálmi og sleikjugangi við
Breta, eru að reyna að bjarga
andlitinu frá 1961, en skilja ekki
að þeir tapa þvi meir og meir, og
auglýsa sina vesaimennsku æ
betur og betur, með svona hátta-
lagi.
Að lokum held ég að ég láti
fylgja hér með það sem ég i sárri
gremju setti saman eftir að þeir
gerðu svivirðingarsamninginn
1961, og mér er nær að halda að
nokkuð margir hafi þá hugsað
álika gremjulega til þeirra er
þann samning gerðu, og þaðan af
fleiri áreiðanlega núna.
Landhelgissamningurinn 1961.
Nú hafa þeir samið við bölvaðan Bretann,
og biðja ’ann að fiska sem allra mest.
I auðmýkt og þrælslund þeir ætla að éta ’ann,
Þeir eru eins og hundar sem flaðra upp um gest.
Fyrir útlendum hroka þeir lyppuðust linir,
og lögðust flatir sem rakka er.
Og þetta eru vorrar þjóðar synir.
Það er nú biti, sem stendur i mér.
Eflaust mun þetta vera að vonum,
að velja til stjórnar dáðlaus þý.
Er enginn mergur i Islandssonum?.
A ekki að taka upp merkið á ný ?.
Ég heiti á íslands verndarvætti,
sem vikna ei fyrir brezkum her,
að blaka við hinu brezka úrþvætti.
Blessist þeir aldrei á miðunum hér.
Og minnist svo ræflanna þrjátiu og þriggja,
frá þinginu nitján, sextiu og eitt,
sem hundflatir fyrir hrokanum liggja,
héðan af verður dómnum ei breytt.
Þó að þeir sifellt um sigurinn æpi,
sagan, mun aldrei veita þeim ró.
Að vinna á þjóð sinni þvi lika glæpi.
það er til dómfellis yfrið nóg.
Svo óska ég ykkur góðs gengis
og farsælla lykta i öllum málum,
og vona að ég verði aldrei eins
gröm við ykkur og gömlu
stjórnarherrana.
Elinborg Kristmundsdóttir.
1 14444 %
mum
25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN
Vegur yfir Sprengi-
sand
„Hefur verið gerð
kostnaðaráætlun um veg yfir
Sprengisand, sem yrði vel fær
öllum bilum að sumrinu? Væri
ekki æskilegt að fá þessa leið
opnaða milli Suðurlands og
Norðurlands?”
Kristinn Björnsson
Stóragerði 36
Sigurður Jóhannsson vega-
málastjóri svarar:
„Nei, það hefur ekki verið
gert. Hins vegar var á alþingi i
vetur samþykkt þings-
ályktunartillaga um að láta
gera hagkvæmnisathugun á
lagningu vegar yfir Sprengi-
sand. Máliðupplýsist þvi e.t.v.
i vetur þegar þeirri athugun
verður skilað. Svar við þvi
hvort slik framkvæmd yrði
æskileg fæst væntanlega einn-
ig að þessari athugun lok-
inni.”
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 emangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáið
þér frían álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskiimáiar.
Sendum hvert á land sem er.
Jli
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbrou* 121 . Sími 10-600