Tíminn - 04.08.1973, Qupperneq 8

Tíminn - 04.08.1973, Qupperneq 8
8 TÍMINN §H| ■ . Vp t. f- \ 1 Hb m W ***&£ íto .. j m fe í < l: AWm Farþcgarými í flugvél frá Vængjum hf. Farþegarýmin gefa ekkert eftir aðbúnaöi I langleiöaþotum slóru flugfélaganna. i Islander vélinni og fleiri flugvélum vængja er einnig sérstakur sjúkrastóll, ætlaö- ur fölluöu fólki »g sjúklingum. tóku nýir eigendur við félaginu, þeir Bárður Danielsson, verk- fræðingur, Úlfar Þórðarson, læknir, Erling Jóhannesson, flug- stjóri, Þóróll'ur Jónsson flugmað- ur, og ýmsir fleiri, allt kunnir flugmenn og flugáhugamenn, og varðsú breyting á rekstrinum, að hafið var áætlunarflug út á land, til önundarfjarðar og Dýrafjarð- ar. Flugkostur var ekki mikill, nokkrar litlar eins hreyfils vélar og tveggja hreyfla leiguvélar af Piper Apache gerð, en umsvif urðu talsverð i flutningum miðað við aðstæður. Flugu með starfsmenn i helgarleyfi frá Búrfells- virkjun Arið 1971 urðu nokkur þáttaskil I rekstri félagsins, en þá voru keyptar frá Bandarikjunum tvær tveggja hreyfla Beechcraft flug- vélar og ein minni vél. Voru vélarnar keyptar notaðar, en ný- uppgerðar. Þær tóku 10 manns i sæti. Auk þess l'ékk félagið 10 sæta Islander vél, tveggja hreyfla, sem lent gat á mjög stuttum flugbrautum og tekið sig upp aftur hlaðin farþegum og varningi. Við þetta gjörbreyttist aðstaða félagsins til mannflutn- inga og voru vélarnar i áætlunar- flugi á flugleiðum okkar, en auk þess mikið i leiguflugi. Vélarnar flutti til dæmis starfsmenn frá Búrfellsvirkjun (Þórisós) til og frá Reykjavik i helgarleyfi. Var flogið um hverja helgi í fyrra og hitteðfyrra og voru hundruð far- þega fluttir með þessum hætti. Gerðu ilugvöll sjálfir á Rifi — Fljúga tvisvar á dag upp á Akranes. Sem áður sagði, hélt áætlunar- flugið áfram. Nú bættust við fast- ar áætlunarferðir til Siglufjarðar og á Blönduós, og nú er einnig flogið á Snæfellsnes til ölafsvíkur og Stykkishólms. A Snæfellsnes fljúgum við fimm ferðir í viku, en þrjár til hinna staðanna. Þá er flogið tvisvar á dag til Akraness. Flugbrautir á þessum stöðum öllum eru stuttar og aðeins ætlað- ar smávélum. Vængir hf. hefur i sinni þjónustu farþegavélar, sem þurfa ekki lengri flugbrautir en fyrir hendi eru. Þó er mikilsvert, að flugvellirnir séu vel staðsettir og ekki alltof langt frá þéttbýlis- kjörnunum eða bæjunum, sem flogið er til. Við gripum til þess ráðs aö gera eigin flugv. á Rifi til að þjóna Ólafsvik, Rifi og Hellis- sandi, en talsverður spölur var til flugvallarins, sem fyrir var. Ruddum við þar eina flugbraut 700 metra og við þetta hafa að- stæður gjörbreytzt. Sama er að segja um Blönduós. Þar er mjög langt til flugvallarins, en nú er byrjað að gera flugbraut rétt við bæinn, og á það vafalaust eftir að gjörbreyta flugsamgöngum Húnvetninga. Stór skrúfuþota, sem lent getur á 92 flugvöll- um á íslandi I siðasta mánuði bættist 21 sætis skrúfuþota i flugflota Vængja hf. Þessi vél, sem er af Twin Otter gerð, breytir i raun- inni allri starfsemi félagsins, þar sem nú er hægt að bjóða upp á skrúfuþotu á alla flugvelli lands- ins, sem munu 92 talsins, en auk þess er ekkert þvi til fyrirstöðu, að vélinni sé lent á öðrum lendingarstöðum. Til dæmis er vélin auglýst þannig i Noregi, að hún lendi á „náttúrugerðum flug- völlum Noregs”, enda er hér um að ræða STOL-vél af sérstakri gerð, sem hefur sérstaka flug- eiginleika. Skrúfuþota okkar þarf aðeins 265-300 metra flugbraut fullhlaðin i logni en skrúfuþotur Flugfélagsins þurfa um 900 metra flugbrautir við sömu aðstæður. Vélin vegur fullhlaðin 5.200 kg og hún getur borið um 2000 kg af varningi og hefur flugþol til 8 tima flugs og meðalflughraði er 296 km á klukkustund. Twin-Otter vélin kostaði 35 milljónir króna, sem er heldur meira en Fokker Friendship þot- ur kosta, en STOL-vélar eru tals- vert dýrari i smiði, en venjulegar flugvélar. Vélin er keypt ný til landsins og varð að senda flug- menn til Bandarikjanna til sér- stakrar þjálfunar i meðferð henn- ar, bæði vegna þotuhreyfla og hinnar nýju flugtækni. Má segja að með tilkomu þessarar vélar verði tslendingar aðilar að nýrri flugtækni, sem útbreidd er nú um allan heim. þ.e.a.s. STOL flugi, en það þýðir, að hægt er að halda uppi farþegaflugi á fullkomnum, stórum flugvélin til allra minnstu flugvalla. Flugvallagerð fyrir af- skekkta fámenna staði er of dýr til að svara kostnaði, og þvi eru flugvellir svo fáir fyrir venjuleg- ar farþegaflugvélar, sem raun ber vitni. Einnig er þessari flug- tækni beitt i rikum mæli til flugs inn i þéttbyliskjarna stórborg- anna, og eru nú STOL flugvellir i flestum stórborgum heimsins eins og t.d New York, svo að dæmi séu nefnd. Vængir hf. i Grænlands- flugi Auk áætlunarflugsins stundum við leiguflug I rikum mæli. Þetta leiguflug hefur verið jöfnun höndum hér innanlands og til Grænlands. Islander-flugvélin hefur til dæmis verið á Grænlandi I allt sumar við málmleit og seg- ulmælingar. Hefur vélin bækist. i Stóradal við Meistaravik. Er reiknað með, að hún fljúgi 200.-300 klukkustundir til visindastarfa, en auk þess eru talsverðir vöru og fólksflutningar milli íslands og Grænlands vegna þessarar starf- semi, sem er á vegum GGU, eða Grönlands Geologiske Undersóg- else, sem hefur yfirumsjón með öllu visindastarfi og könnun á Grænlandi. Hafa svo til allar vél- ar Vængja hf. verið notaðar við Grænlandsflug i sumar. Sjúkraflug i stórum flugvélum Þá er ekki hægt að segja frá starfsemi okkar án þess að geta um sjúkraflugið, sem er umtals- verður þáttur i flugrekstrinum. Segja má, að með Islander-vél- inni og siðar með skrúfuþotunni hafi aðstæður til sjúkraflugs gjör- breytzt hér á landi. Nú er hægt að fljúga með sjúklinga til og frá öll- um flugvöllum og lendingarstöð- um landsins á fullkomnum, stór- um flugvélum, svo að læknar og hjúkrunarfólk getur komið með vélinni, ef þess gerist þörf. Einnig er mikið um það, að við flytjum sjúklinga heim til sin, fólk, sem er of máttfarið til þess að geta ferð- azt með öðrum hætti, eftir sjúkra- húsvist. Þetta fer vaxandi og er til mikilla hagsbóta fyrir alla að- ila, þvi það er kostnaðarsamt fyr- Erling Jóhannson flugstjóri, Birgir Sumarliðason, flugmaður og Ellas Kristjánsson, skrifstofumaður i afgreiðslu Vængja hf. ir sjúklinga að þurfa að dveljast dögum og vikum saman i höfuð- borginni, eftir að hafa verið á sjúkrahúsi til meðferðar. Sætaframboð — hóp- ferðir Sætaframboð Vængja hefur aukizt talsvert á siðustu þrem ár- um. Nýjar flugleiðir eru i undir- búningi, og höfum við þá einkum i huga staði, sem verið hafa af- skiptir með áætlunarflug fram til þessa og þá einkum á Suðurlandi og I vesturhluta landsins. Þar koma til greina staðir eins og Vik i Mýrdal, Borgarnes, Hólma- vik, Kirkjubæjarklaustur og Súgandafjörður, ennfremur Mývatn, svo að eitthvað sé nefnt. Þá má geta þess, að mikið er um, að hópar taki vél á leigu, t.d. Iþróttafólk. Skrúfuþotan kostar aðeins 17.000 krónur á klukku- stund. T.d. fóru nokkrir Vestfirð- ingar um daginn vestur á firði i ættingja- og vinaheimsókn. Vélin beið eftir þeim f 5 klukkustundir fyrir vestan og þannig gátu tveir tugir manna farið I ódýra heimsókn á æskustöðvarnar, sem áður var óhugsandi að gera nema i margra daga ferð. Flugrekstur Vængja Fastir starfsmenn Vængja eru 12 talsins, þar af 8 flugmenn og 2 flugvirkjar. Stjórn flugfélagsins vinnur einnig mikið að daglegum rekstri. Heildarvelta siðasta árs var um 15 milljónir króna, og á þessu ári gerum við ráð fyrir, að hún verði-um 30 milljónir króna. I fyrra fluttum við i áætlunarflugi um 7.500 farþega, en gerum ráð fyrir að flytja rúmlega 12.000 á þessu ári. Leiguflugið er þá ekki meðtalið, en hefi ég ekki hand- bærar skýrslur yfir farþega i leiguflugi, en þeir skipta auðvitað þúsundum. Þá fluttum við um 64 tonn af vörum i áætlunarfluginu og 9.2 tonn af pósti. A vöru- og póstflutningum er fyrirsjáanleg veruleg aukning á þessu ári, og raunar á öllu okkar flugi, segir Hreinn Hauksson að lokum. Vængir hf. hafa bækistöð á Reykjavikurflugvelli, við stóra flugskýlið sunnanvið flugturninn. Þar er margt um mannlnn. Þrir Danir eru að fara með Piper-flug- vél til Vestmannaeyja i skoðunar- ferð. Þessi 5 sæta flugvél hefur verið i stöðugu Vestmannaeyja- flugi vikum og mánuðum saman. ! Eyjum verður farið i skoðunar- ferð með leiðsögufólki og siðan samdægurs heim aftur með flug- vélinni.Skrúfuþotan er að leggja upp i áætlunarflug vestur á land,i kvöld mun hún fara norður til Meistaravikur flullhlaðin af fólki og mun koma aftur til baka undir morgun, til að sinna reglubundn- um flugleiðum og við finnum, að hér er nóg að starfa og rik þörf fyrir flugvélar og duglega menn. — JG. Trúlofunar- HRINGIR Fljót afgreiösla Sent i póstkröfu GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON gullsmiður Bankastræti 12

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.