Tíminn - 04.08.1973, Page 10
11
10
Svartbakurinn er orðinn
gifurleg plága, ekki að-
eins i varplöndum. Hann
er t.d. mjög kræfur við
aðútrýma laxaseiðum. í
maga eins fundust ný-
lega 100 laxaseiði. —
Það þýðir ekkert annað
en að ráðast gegn hon-
um, þar sem hann hópar
sig. En það má ekki
beita eitri gegn honum
nema i varplöndunum,
segir Árni G. Pétursson
ráðunautur. Á siðari ár-
um hefur hrafninn einn-
ig vaðið upp og verið
mjög skæður. Bændur
fengu i vor svæfingarlyf
gegn fuglinum, til þess
að setja i egg. En þetta
reyndist hið mesta
„gabblyf”. Og helzt er
að sjá, að það sé búið að
gera varginn að „dóp-
ista”!
Vtl/ílMiT'
TÍMINN
f cj; . r rc t rrc 1
Laugardagur 4. ágúst 1973.
Búnir að gera svart
bakinn að ffdópista"!
— Vissir fuglafræðingar hér
halda þvi fram, að þýðingariaust
sé að gera útrýmingarárás á
svartbakinn, á sorphaugum eða á
öðrum stöðum, þar sem hann
hópar sig. Segja þeir, að rann-
sóknir sýni, að 60-70% svartbaks-
ins drepist á fyrsta ári, það sé
náttúrulögmál. Halda þeir þvi
fram, að við myndum engum
árangri ná með að ráðast þannig
á svartbakinn, við myndum ekki
gera annað en að drepa eitthvað
af þessum 60-70%, sem hvort sem
er myndu drepast. Ég á erfitt
meö að skilja þessi rök, og mér
hefur ekki tekizt að sannfæra þá
um, að við gætum nú „slysazt” til
að drepa eitthvað af þessum 30-
40% af fuglum komnum af fyrsta
ári.
Eitthvað á þessa leið komst
Arni G. Pétursson, sauðfjár-
ræktarráðunautur hjá Búnaðar-
félagi Islands, að orði, er við
ræddum við hann um æðarvarp,
ágang svartbaks og ann-
arra vargfugla, útrýmingu þeirra
o.fl., en Arni hefur leiðbeint
bændum um æðarrækt.
— Svartbakurinn er orðinn al-
gjör plága, ekki aðeins i æðar-
varpinu. Hann eitrar t.d. vatnsból
og étur stóran hluta af laxa-
seiðunum, sem laxaræktar-
bændurnir setja i árnar. Hann er
miklu duglegri en veiðimennirnir
sums staðar. Fyrir skömmu töldu
þeir á Laxamýri t.d. hundrað
laxaseiði i svartbaksmaga.
Fuglafræðingar halda þvi fram,
að eina ráðið sé að svelta svart-
bakinn i hel, og það er ef til vill al-
veg rétt, en til þess þyrfti stór-
átak og þá helzt með þvi að ganga
ööru visi frá sorphaugum, en gert
er.
Viljum herferð
á haugana
Að sögn Arna er engin skipu-
lagning af hálfu hins opinbera eða
fjárveiting til útrýmingar á
svartbak og flugvargi. Má nú ekki
eitra fyrir fugl á bersvæði, nema
hvað beita má svefnlyfi i varp-
löndum.
— Það sem við i æðarræktar-
félaginu höfum óskað eftir, alveg
frá byrjun, er að gerð væri her-
ferð gegn varginum á þeim stöð-
um, þar sem hann hópar sig, við
sorphauga, fiskvinnslustöðvar,
sláturhús o.s.frv. En við fáum
ekki leyfi til þess. „Þeir eru svo
hræddir um, að ef maður notaði
eitthvert eitur norður I Þing-
eyjarsýslum, þar sem ekki hefur
Bændur æfareiðir yfir nýju
rándýru svæfingalyfi, sem
reyndist næsta gagnslaust.
Hrafninn veður líka uppi.