Tíminn - 04.08.1973, Qupperneq 27

Tíminn - 04.08.1973, Qupperneq 27
Laugardagur 4. ágúst 1973. TÍMINN 27 3 ALAN HUDSON... ; miðvallarspilari Chelsea S8SSSSSSSSSSSSSSS TODD OG HUDSON LAUSIR ÚR BANNI í ! Fá nú aftur möguleika á að komast í enska landsliðið Tveir af efnilegustu knatt- spyrnumönnum Englands, þeir Colin Todd, Derby og Alan Hudson, Chelsea, hafa nú fengið náðun hjá enska knatt- spyrnusambandinu. Þessir tveir Ieikmenn voru scttir i bann fyrir tveimur árum, þeg- ar þeir mættu ekki I landsleik, sem enska landsliðiö undir 23ja ára aldri lék. Þeir voru þá settir i ævilangt bann frá enskum úrvals- og landsliö- um. Ástæðan fyrir þvi aö Todd mætti ekki i landsleikinn, var sú, að hann var i sumarfrii með fjölskyldu sinni. Hann sagöist verða að hugsa um konuna sina og börn, þegar hann væri i frii yfir sumartim- ann. En það var einmitt að sumri til sem landsleikurinn, sem hann mætti ekki i, var leikinn. Todd er nú einn bezti mið- vörður i enskri knattspyrnu og eru taldar miklar likur á, að hann veröi i HM-liði Englands, ef England kemst i loka- keppnina i V-Þýzkalandi. Hann var keyptur til Derby frá Sunderland i febrúar 1971 á 170 þús. pund. Hudson er talinn einn bezti miðvallarspilari i Englandi i dag. Hann er uppalinn hjá Chelsea og lék sinn fyrsta leik með félaginu i febrúar 1969 gegn Southampton. Hann er maður framtiðarinnar i enskri knattspyrnu. Manchester United hefur mikinn áhuga á að kaupa hann, en Chelsea vill ekki selja Hudson. u:::: !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■rc r. »■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! IJ BOBBY GOULD TIL BRISTOL C. Bobby Gould, hinn 26 ára gamli VVest Bromwich Albion miðherji, hefur nú verið seldur til 2. deildarliðsins Bristol City á 70 þús. pund. íslenzkir knattspyrnu- áhugamenn muna örugglega eftir Gould, en hann kom hingað til landsins með Arsenal á sinum tima og lék á Laugardalsvellin- Gould, sem er mikill marka- skorari var keyptur til Arsenal frá Coventry City á 90 þús. pund. Frá Arsenal var hann seldur til Úlfanna á 80 þús. pund og þaðan fór hann til W.B.A. á 70 þús. pund. Hann hefur þvi samtals verið seldur á 310 þús. pund á milli þessara félaga. |!llllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllllllllll| 1ERLENDA I IKNATT I ISPYRNAN I I —SOS— I =lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllll= Watney Cup að byrja Enska knattspyrnan byrjar af fullum krafti um næstu helgi. Þá hefst hin árlega Watney Cup keppni, en i henni taka þátt tvö lið úr hverri deild — þau lið sem hafa skorað flest mörk á siðasta kcppnistimabili. Ekki þó þau lið, sem taka þátt i Evrópukeppnum. Liðin sem taka þátt i keppninni, sem er með úrsláttarfyrirkomú- lagi, eru þessi: 1. deild: West Ham og Stoke. 2. deild: Bristol City og Hull. 3. deild: Bristol Rovers og Plymouth. 4. deild: Mansfield og Peterborough. Eftirtalin lið lenda saman i fyrstu umferð: Bristol Rovers — West Ham. Plymouth — Stoke. Peterborough — Bristol City. Mansfield — IIull. Netzer kominn til Real V-þýzki knattspyrnusnilling- urinn Gunter Netzer er nú kominn til Spánar og byrjaður að æfa af fullum krafti með sinu nýja liöi, Real Madrid. Honum llkar lífið vel með hin- um nýju félögum og verður gaman að fylgjast með honum hjá Real Madrid. Það er öruggt, að hann á cftir að llfga upp á liöið. HUTCHINSON TTComeback^ IAN HUTCHINSON-.átrúnaðar- goð áhangenda Lundúnaliösins Chelsea er nú byrjaður að æfa aftur af fullum krafti. Hann hefur litið getaö lcikið meö félaginu, siðan hann var skorinn upp I hné I april 1971. Hann hefur byrjað að leika með Chelsea tvisvar sinnum eftir það og tvisvar sinnum orðið fyrir þvi óhappi að brjóta á sér lappirnar. Nú er hann sem sagt kominn aft- ur „comeback” i þriðja sinn og mun byrja að leika aftur með liö- inu I 1. deildinni nú i ágúst. Hutchinson, sem var keyptur frá Charlton Athietc i ágúst 1963 (tiu ár siðan) á 30 þús pund, er einhver ósérhlifnasti knatt- spyrnumaöurinn á Bretlandseyj- um. Þótt hann sé rétt kominn af skurðarborðinu, þá er hann aðal- maðurinn i baráttunni — ósmeyk- ur i návigum og báráttunni um knöttinn. Hann skorar mikið af mörkum og fyrir dugnaö sinn á leikvelli, er hann einn virtasti leikmaður ensku knattspyrnunn- ar hjá enskum knattspyrnumönn- um. 1AN HUTCHINSON...er byrjaður að ieika meö Chelsea aftur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.