Fréttablaðið - 20.08.2004, Blaðsíða 29
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 96 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 39 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 8 stk.
Tómstundir & ferðir 13 stk.
Húsnæði 36 stk.
Atvinna 29 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Lífrænn safi
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 20. ágúst,
233. dagur ársins 2004.
Reykjavík 5.35 13.31 21.25
Akureyri 5.10 13.16 21.16
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Eitt af því sem fylgir hinum rómantíska
ágústmánuði er uppskera á ýmsum gjöfum
móður jarðar. Nú svigna greinar runna í
görðum undan rauðum og bleikum berjum
og lautir og hlíðar skarta lyngi með bláum
og svörtum. Sjaldan hefur sprettan verið
meiri, né þroskaskilyrðin betri, slík er ár-
gæskan í landinu. Ber sem við höfum aðal-
lega lesið um í þýddum sögum, eins og stik-
ilsber, sem reyndar hafa verið hluti af
garðaflóru Íslands um tíma, hafa að þessu
sinni náð fullum þroska. Slíkt er ekki al-
gengt. Að sögn Auðar Gunnarsdóttur, garð-
yrkjufræðings í Grasagarðinum, eru til
nokkur yrki af stikilsberjum sem gefa mis-
munandi lit ber, frá hvítum að rauðum.
Hindber eru líka komin til að vera, einkum
þó í garðskálum, en þó segir hún stöðugar
kynbætur fara fram bæði á þeim og öðrum
tegundum þannig að þær verði sífellt harð-
gerari, auk þess sem fræðafólk á þessu
sviði sé sífellt duglegra að sækja efnivið
sem henti við okkar aðstæður. Þar á meðal
er blendingur af sólberjum og stikilsberj-
um sem hægt er orðið að kaupa í gróðrar-
stöðvum. Hún bendir á að auk berja eins og
bláberja, jarðarberja, sólberja, rifsberja,
stikilsberja og reyniberja séu nípur af
rósarunnum góðar í sultu.
gun@frettabladid.is
Einstök árgæska:
Svignandi runnar
undan rauðum berjum
tilbod@frettabladid.is
Sérstakt námsmannatilboð
stendur nú yfir á ADSL-tengingum
hjá Office 1, Spron og BTnet gegn
framvísun skólaskírteina. Miðað er
við bindingu í 12 mánuði og er
mánaðargjaldið tekið út af korti
námsmanns. Um tvö mismunandi
verð er að ræða, 2.999 og 3.999,
eftir því meðal annars hvort hrað-
inn að notanda er 1 eða 2 Mb.
Tilboðsdagar standa nú yfir
í versluninni Egill Árna-
son hf. í Ármúla. Meðal
þess sem þar er á lækk-
uðu verði er Kährs-park-
ett, bæði gegnheilt og
fljótandi og er verðið
2.790 og 3.790 fermetr-
inn, eftir gerð. Flísar og
þiljur bæði á gólf og veggi eru ein-
nig á útsölu hjá Agli Árnasyni og
nemur afslátturinn 30-50%. Þá er
útipallaefni úr lerki og Jatoba
ásamt náttúrusteini og granít á
góðu verði um þessar mundir.
Öll húsgögn eru á tilboði fram í
miðja næstu viku í versluninni
Öndvegi í Síðu-
múla í Reykjavík.
Afslátturinn nem-
ur frá 15 upp í
70% og er þar um
hina ólíkustu stíla
og gerðir að ræða
sem henta bæði í
fínar stofur og
frumstæðari vist-
arverur.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TILBOÐUM
Bættu Microsoft í ferilskrána. Microsoft
prófgráðunám hjá Rafiðnaðarskólan-
um www.raf.is
Gæsaveiði
Eigum lausa daga í kornakur í Skaga-
firði, tún í Aðaldal, Kelduhverfi og Þistil-
firði. Góð aðstaða og mjög miklir
möguleikar á góðri veiði. Veiðisvæðin
alltaf hvíld á milli veiðitúra. Uppl.
www.sportmennislands.is og 892
1450 og 861 2629 eftir kl. 18.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA TILBOÐ TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Í dag eru 1.614
smáauglýsingar á
www.visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Lýður Sveinsson rífur í sig rifsber.
29 (01) Allt forsíða 19.8.2004 15:50 Page 1