Fréttablaðið - 20.08.2004, Blaðsíða 30
Til að fá hvítlauksbragð í salatið er hægt
að nudda hvítlauksrifi í innanverða skálina.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur sími 564 2100
vingerdin@simnet.is www.vingerdin.is
Dúndurtilboð
15 - 40% afsláttur á
víngerðarefnum í
ágúst.
Opið virkadaga 11 - 18
og laugardaga 11 - 15.
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR HANDA
MINNST FJÓRUM FYRIR 1000 KR. EÐA MINNA.
Ferskt kjúklinga- og mangósalat
Indjánasumar kallast það í Vesturheimi þegar óvænt hitabylgja
skellur á síðsumars eða snemma á haustin. Veðurástand þetta er
ekki ólíkt því sem við höfum fengið að kynnast hér á Íslandi undan-
farnar vikur. Indjánasumri fylgir mikið letilíf og við slíkar aðstæð-
ur er tilvalið að snæða létta og frískandi fæðu sem auðveld er í mat-
reiðslu. Réttur dagsins uppfyllir akkúrat þessi skilyrði.
Marínerið kjúklingabringurnar í hálftíma til eina klukkustund.
Grillið þær síðan í 3 til 4 mínútur á hvorri hlið og dreypið yfir þær
maríneringunni á meðan grillað er.
Rífið ísbergsalatið gróft niður í stóra salatskál og græna salatið
líka. Afhýðið mangó og skerið í báta. Skerið kjúklingabringurnar í
bita og blandið við salatið ásamt mangóbitunum. Saltið og piprið sal-
atið og skvettið tveimur til þremur matskeiðum af ólífuolíu yfir það
áður en það er borið fram. Gott að setja lítinn brúsk af ferskum kórí-
ander yfir til skrauts.
Kostnaður um 1000 kr.
Kjúklingabringur um 600 g 700 kr.
1 höfuð ísberg salat 66 kr.
1/2 höfuð grænt salat 100 kr.
1 mangóávöxtur 106 kr.
Marínering
safi og rifinn börkur af 1/2 sítrónu
2 msk. ólífuolía
4 blöð af ferskri salvíu (söxuð smátt)
1 msk. þurrkað tarragaon
1 tsk. fennelfræ
sjávarsalt og nýmalaður pipar
„Stikilsberin eru grjóthörð en ef
maður frystir þau fyrir notkun
þurfa þau styttri suðu og verða
sætari,“ segir Þóranna Eiríksdótt-
ir, húsfreyja í Árbænum í Reykja-
vík. Hún er ein af þessum mynd-
arlegu sem kunna með ber að fara
og búa til úr þeim frábærar afurð-
ir. Þótt hún búi í fjölbýlishúsi og
hafi ekki einkagarð til umráða
verður hún sér úti um hinar að-
skiljanlegustu tegundir berja
bæði í görðum dætra sinna og úti í
villtri náttúru. „Svo berst þetta að
mér úr ýmsum áttum,“ segir hún
hlæjandi. Þóranna var að búa til
sultu úr stikilsberjum þegar við
höfðum samband við hana og var
fús til að gefa okkur uppskrift,
bæði að henni og fleiri gómsætum
tegundum sem hún lumaði á.
Stikilsberjasulta
1/2 kg stikilsber
1/2 kg græn epli
2 dl vatn
4 1/2 kg sykur
1 kanilstöng
Berin eru þvegin en eplin
flysjuð og kjarnarnir teknir úr.
Hvort tveggja er maukað í mat-
vinnsluvél. Maukið sett í pott með
vatninu og kanilstönginni og soðið
í 20 mínútur. Þá er sykurinn látinn
út í og síðan er sultan soðin áfram
í 10 mínútur.
Sulta úr jarðarberjum og rabarbara
1 kg rabarbari (úr frystinum)
1 kg sykur
1/2 kg jarðarber
Allt soðið í um 20 mínútur og
síðan maukað. Soðið aftur, hleypir
settur út í og þar fylgt leiðbeining-
um á hleypispakkanum.
Rifsberjahlaup
Berin þvegin og hreinsuð og
sett í pott með stilkunum og smá-
vegis laufi ásamt vatnslögg, þó
ekki svo miklu vatni að fljóti yfir.
Soðið í 30 mínútur. Síað á grisju
yfir nótt. Safinn settur í pott
ásamt 1 kg af sykri á móti 1 l af
safa. Soðið í 30 mínútur. Sett sjóð-
andi heitt á litlar krukkur sem
hitaðar hafa verið í ofni og lokið
sett á.
Bláberjasulta
500 g ber
1 1/2 l vatn
Soðið í fimm mínútur. Tekið af hellunni
og berin kramin.
350 g sykur
Stráð yfir smátt og smátt og soðið áfram
í 10 mínútur.
Sett í litlar krukkur, þær fylltar
alveg og lokað strax. Nauðsynlegt
að vera nákvæmur með suðutím-
ann.
Saft úr hrati og fleiru
Hrat af rifsberjunum og stik-
ilsberjum er sett í pott með vatni
sem látið er fljóta yfir. Rabarbari
og bláber sett út í. Soðið í kortér.
Síað á grisju yfir nótt. Lögurinn
látinn í pott og hálft kíló af sykri
sett út í hvern lítra. Vissara er að
nota þessa saft fljótlega því óvíst
er að hún þoli langa geymslu. ■
Sulta og saft:
Berin þurfa styttri
suðu séu þau fryst
Þóranna hellir unaðslegri saft úr stikilsberjahrati, bláberjum og rabarbara í litla karöflu.
Stikilsberjarunninn er með smáfingruð blöð og svo er hann þyrnóttur. En berin eru stór.
Hreinlætið er nauðsyn þegar saft- og sultu-
gerð er annars vegar og sömuleiðis merk-
ingarnar.
Þóranna er með þetta allt á hreinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
O
G
R
Ó
B
ER
T
30-31 (02-03) Allt-Matur 19.8.2004 16:06 Page 2