Fréttablaðið - 30.08.2004, Blaðsíða 63
Það er að verða æ vinsælla fyrir
veiðimenn að sækja á erlendar
veiðilendur. Rússland hefur verið
vinsælt og þar hafa veiðimenn
veitt væna fiska og Argentína hef-
ur verið í mikilli sókn. Fjölmargir
hafa farið til Grænlands á árinu
og einhverjir eru þar núna að
veiða silung og skjóta hreindýr.
Undanfarin ár hefur Lax-á
boðið upp á veiðiferðir til Argent-
ínu við góðan orðstír og ánægju
þeirra sem reynt hafa. Í kjölfar
aukinnar eftirspurnar hefur verið
ákveðið að taka skrefið lengra í
fyrirhugaðri útrás fyrirtækisins á
þessum slóðum.
„Við höfum aukið við framboð
okkar í ánni Rio Grande, veiði-
svæðinu við Toon Ken, auk þess
sem við höfum náð samningum
um nýtt veiðisvæði, La Aurelia á
sömu slóðum,“ sagði Ásta Ólafs-
dóttir hjá Stangveiðifélaginu Lax-
á, þegar við spurðum um þessar
ferðir til Argentínu. „Fyrir veiði-
menn er Rio Grande spennandi og
krefjandi valkostur. Áin er þekkt
fyrir tröllvaxna sjóbirtinga.
Meðalþyngdin er um 11 pund en á
besta tíma er alvanalegt að menn
setji í 20+ punda fisk. Meðalveiðin
er 10-35 fiskar á hverja stöng eft-
ir vikuveiði. Eingöngu er veitt á
flugu og er öllum fiski sleppt.“
Í byrjun ársins var nýtt veiði-
hús opnað á veiðisvæðinu við
Toon Ken og segir Ásta að þeir
veiðimenn sem hafi gist þar á
þeirra vegum séu sammála um að
það fái hæstu mögulegu einkunn
hvað varðar góðan mat, ljúft
starfsfólk og notaleg húsakynni.
„Við hönnun veiðihússins var
mikil áhersla lögð á að gera það
sem best úr garði til að þjóna
þörfum veiðimanna. Veiðihúsið er
á fallegum útsýnisstað, rétt ofan
við veiðisvæðið og býður upp á öll
þægindi, herbergi með baði, setu-
og borðstofu, fluguhnýtingar-
aðstöðu, vöðlugeymslu, bar, heit-
an pott og skjólsæla verönd. Alls
eru 7 stangir leyfðar í Toon Ken.
Hvert holl veiðir í 6 daga og gistir
7 nætur í veiðihúsinu. Árið 2005
bjóðum við upp á 6 vikur á besta
tíma í ánni, það er frá 5. febrúar
til 12. mars.“
Fyrir þá sem leggja minna upp
úr lúxusveiðihúsi er einnig boðið
upp á annan valkost, La Aurelia.
„Það er gamalt en snyrtilegt veiði-
hús þar sem fjögur tveggja
manna herbergi deila tveimur
baðherbergjum. Full þjónusta er í
húsinu og að sjálfsögðu er boðið
upp á argentínskar steikur og ljúf
rauðvín. Veitt er á fjórar stangir
frá La Aurelia, tvær í ánni Rio
Grande, frá bakkanum á móti
Toon Ken og tvær í ánni
Menendez á 12 km svæði. Veitt er
samkvæmt hefðbundinni svæða-
skiptingu. Menendez tilheyrir
sama vatnasvæði og Rio Grande.
Kostirnir við La Aurelia er hversu
stutt er frá veiðihúsinu að ánni og
auk þess veita fjöllin þar í kring
gott skjól fyrir vindi. Við bjóðum
upp á vikuveiði á þessu svæði frá
15. janúar ñ 12.febrúar og svo aft-
ur tvær vikur frá 12-26. mars
2005.
Veiðiferðirnar okkar eru 10
daga ferðir þar sem veitt er í 6
daga en gist 7 nætur í veiðihúsun-
um. Veitt er frá laugardegi til
laugardags og gist í eina nótt fyrir
og eftir veiðina á fimm stjörnu
hóteli í Buenos Aires.
Fyrir þá sem vilja bæta við
ferðina mælum við eindregið með
þriggja daga baráttu við hinn
grimma Dorado í Corrientes en
þar fer saman einstök skemmtileg
veiði, enn meira dekur og ólýsan-
leg náttúrufegurð,“sagði Ásta í
lokin. ■
27MÁNUDAGUR 30. ágúst 2004
Hafnarstræti 5 sími 551 6760
Síðumúli 8 sími 568 8410
www.veidihornid.is
Stoeger eru hálfsjálfvirkar haglabyssur framleiddar í Tyrklandi af fyrirtæki í eigu
Beretta. Dreifingaraðili í Bandaríkjunum er Benelli USA. Byssurnar eru
bakslagsskiftar, með snúningsbolta líkt og í Benelli og fleiri ítölskum byssum.
Hnotuskefti eða svört plastskefti.
26” hlaup. Ólarfestingar og 5 þrengingar fylgja. Frábært verð.
Aðeins 59.900.- staðgreitt.
Veiðihornið býður Stoeger á
frábæru kynningarverði
Fullt verð kr. 36,600
Tilboðsverð kr. 29,900
Vöðlur, skór, sandhlíf og belti.
Simms Freestone
öndunarvöðlu sett
Mörkinni 6, s. 568 7090
†mis starfsmanna- og stéttarfélög
veita styrki vegna dansnámskei›a.
Í tilefni 15 ára afmælis skólans nú í haust ver›ur sérstök afmælishátí›
í mi›bæ Reykjavíkur laugardaginn 4. september kl. 13.
Fame
Mambó
Tjútt
Freestyle
Salsa
Brú›arvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskei› fyrir hópa
N‡justu tískudansarnir
Börn – Unglingar – Fullor›nir
Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Bolholti 8 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
VI‹ BJÓ‹UM
UPP Í DANS
Innritun og
uppl‡singar alla
daga kl. 12–19
í síma 553 6645
e›a me› pósti til
dans@dansskoli.is
VEIÐI
GUNNAR BENDER
■ skrifar um veiði.
Veiðiferðir til Argentínu
VEIÐIHÚSIÐ VIÐ TOON KEN
Það væsir ekki um veiðimenn eftir að veiðitímanum lýkur á daginn.
VILTU MIÐA?
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
SENDU SMS SKEYTIÐ JA TBF Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ.
9. HVER VINNUR.
VINNINGAR ERU
MIÐAR Á MYNDINA · DVD MYNDIR · MARGT FLEIRA.