Fréttablaðið - 07.09.2004, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 7. september 2004
ÞÓRÐUR Á ÆFINGU Þórður Guðjónsson sést hér á æfingu A-landsliðsins í Búdapest í gær. Fréttablaðið/Kristján
flugfelag.is
ÍSAFJARÐAR
5.300 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.400kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
8. - 14. sept.
Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með
fullorðnum, greiða 1.833 kr.
aðra leiðina.
EGILSSTAÐA
6.400
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
57
82
09
/2
00
4
Við munum vinna
Þórður Guðjónsson segir skakkaföll í íslenska hópnum ekki eiga að
spilla fyrir markmiði liðsins gegn Ungverjum í Búdapest.
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu mætir því ungverska í
dag í Ungverjalandi í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins.
„Ungverjarnir hafa verið á
mikilli uppsiglingu undanfarið.
Ég sá hluta af leiknum hjá þeim
gegn Þjóðverjum í sumar sem
þeir unnu 2-0. Þetta er lið sem
byggir ekki á ólíkum leikaðferð-
um og við beitum – þeir verjast
vel, beita svo skyndisóknum og
eru fljótir fram. Þess vegna er ég
að vonast til að það henti okkur
vel að spila þennan leik. Þeir ætla
sér sigur og við getum þá beitt
okkar sterkustu vopnum, það er
sterkri vörn og svo skyndisókn-
um,“ segir Skagamaðurinn
snjalli Þórður Guðjónsson.
Hræðileg úrslit
Þórður segir að tapleikurinn
gegn Búlgaríu á laugardaginn
hafi verið vonbrigði. „Úrslitin
voru hræðileg fyrir okkur. Það
var algjör óþarfi að tapa þessum
leik og það gekk allt upp hjá
þeim. Þeir ætluðu ekki að fá á sig
mark, ætluðu að spila sterka
vörn og vissu það að Berbatov
frammi hjá þeim myndi klára
leikinn fyrir þá eins og hann
sýndi síðan,“ segir Þórður.
„Mér fannst að við vera vinna
okkur hægt og þétt inn í leikinn
en mörkin brutu okkur svolítið
niður. Við náðum að minnka mun-
inn í 2-1 en svo kom rothöggið 3-
1. Það er erfitt þegar lið fær þrjá
skelli.” Rúnar Kristinsson og
Pétur Hafliði Marteinsson verða
fjarri góðu gamni á miðvikudag
þar sem þeir eru meiddir.
Brynjar Björn Gunnarsson verð-
ur heldur ekki með þar sem hann
fékk að líta rauða spjaldið í
leiknum gegn Búlgaríu og er í
leikbanni.
„Hópurinnn á að vera það
sterkur að við getum dekkað það
þó það vanti tvo til þrjá leik-
menn,” segir Þórður sem er stað-
fastur á því að íslenskur sigur
muni líta dagsins ljós gegn Ung-
verjum. „Við vinnum leikinn.“
Þórður er með leikjahæstu
mönnum landsliðsins og einn af
þeim eldri í leikmannahópnum.
Eldist eins og hinir
„Ég klæði mig alltaf í vesti
þegar það er skipt ungir og
gamlir, þannig að ég upplifi mig
enn sem ungan mann. Engu að
síður er það staðreynd að ég er
þriðji elsti maðurinn í hópnum í
dag. Ég eldist eins og allir hinir,“
segir Þórður hlæjandi.
„Við erum með fína blöndu af
yngri og eldri leikmönnum. Ungi
strákarnir eru með töluvert
mikla reynslu, flest allir með
reynslu af því að spila erlendis.“
Þórður hefur leikið með þýska
úrvalsdeildarliðinu Bochum
síðustu ár en reyndi fyrir þetta
tímabil að fá sig lausan undan
samningnum. Það tókst ekki.
Átta nýir leikmenn
„Það fóru þrír leikmenn úr
byrjunarliðinu fyrir þetta tímabil
en það komu átta nýir leikmenn
til baka. Þeir vildu samt ekki
hleypa mér frá klúbbnum. Ég
hefði viljað komast burt í sumar.
Mér stóðu til boða mörg fín og
góð tilboð til dæmis í Þýskalandi,
Austurríki og Belgíu. Eitt til-
boðið var frá liði í næsta nágreni
við mig og það hefði verið upp-
lagt fyrir að mig að fara þangað
því þá hefðum við ekki þurft að
flytja,“ segir Þórður.
Skagamaðurinn snjalli kann
vel við sig í Þýskalandi en hann á
tvö ár eftir af samningum við
Bochum. „Ég verð alla vega tvö
ár í viðbót en svo sér maður til
hvað gerist.“
kristjan@frettabladid.is
Íslenska ungmennaliðið eflir samheldni hópsins:
Mottukeppni strákanna
FÓTBOLTI Leikmenn íslenska ung-
mennalandsliðsins í knattspyrnu
hafa brugðið á leik fyrir viðureign
sína gegn Ungverjum í und-
ankeppni Evrópumótsins.
Íslensku piltarnir hafa margir
hverjir safnað yfirvaraskeggi eða
svokallaðri mottu, eins og leikar-
inn Burt Reynolds skartaði þegar
hann var upp á sitt besta. Tilgang-
urinn með uppátækinu er að sögn
þeirra að efla samstöðu í hópnum
en liðið vann frækilegan sigur á
Búlgörum á föstudaginn var.
Eins og gefur að skilja eiga
ungu mennirnir misjafnlega erfitt
með að safna skeggi og hafa
margir hverjir brugðið á það ráð
að lita skeggið dökkt til að gera
það meira áberandi.
Þeir sem geta hins vegar alls
ekki safnað skeggi hafa látið
skera hár sitt á undarlegan hátt
eða litað það skjannahvítt. Ís-
lensku strákarnir mæta þeim
ungversku í dag en sigurinn á
Búlgörum var sá fyrsti í þrjú ár
hjá ungmennaliðinu.
FLOTTUR MEÐ MOTTUNA Tryggvi
Bjarnason leikmaður ÍBV og ungmenna-
landsliðsins er einn af þeim sem er kominn
með myndarlega mottu.
Fréttablaðið/Kristján