Fréttablaðið - 08.09.2004, Page 2
2 8. september 2004 MIÐVIKUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Lokuð geðdeild
fyrir einstaklinga sem taldir eru
hættulegir sjálfum sér og um-
hverfi sínu verður staðsett á
Kleppsspítala, að sögn Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra. Tuttugu einstaklingar eru
sagðir falla undir þessa skilgrein-
ingu, en þeir hafa verið inn og út
af geðdeildum.
„Við höfum sett á það fullan
kraft núna að undirbúa móttöku
og aðstöðu fyrir þessa einstak-
linga innan geðdeildar LSH,“
sagði ráðherra. „ Það hafa komið
upp mjög vond einstaklingsmál,
sem þarfnast úrræða. Við höfum
eindregið verið þeirrar skoðunar
að stærsta geðdeild landsins
þurfi að meðhöndla slík mál.“
Nokkuð hefur tafist að koma
þessari deild á laggirnar, meðal
annars vegna skiptra skoðana um
hvar ætti að staðsetja hana. Lengi
vel var horft til Arnarholts eða
Sogns í þeim efnum, en nú hefur
Kleppsspítali orðið fyrir valinu.
Ráðherra sagði að einnig væri
unnið að eflingu þjónustu utan
stofnana. Þar væri um að ræða
sálfræðiþjónustu heilsugæslunn-
ar, svo og endurhæfingu geð-
sjúkra, sem nokkrir aðilar hefðu
með höndum.
„Við höfum verið að auka fjár-
veitingar til heilsugæslunnar til
þess að bæta við þjónustuna við
geðsjúka, meðal annars til þess
að koma upp teymi til að með-
höndla erfið tilfelli,“ sagði ráð-
herra. „Það teymi hefur tekið til
starfa.“
Þá sagði hann starfandi nefnd
þriggja ráðuneyta, sem fjallaði
um sjálfræðissviptingamál þau
sem upp kynnu að koma. Í henni
sætu fulltrúar dómsmálaráðu-
neytis, heilbrigðisráðuneytis og
félagsmálaráðuneytis. ■
Sundabrautin
sett í forgang
Borgaryfirvöld hyggjast taka ákvörðun um legu Sundabrautar í vetur.
Ekki verður ráðist í framkvæmdir við mislæg gatnamót Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar á næstu árum.
BORGARMÁL Ekki verður ráðist í
gerð mislægra gatnamóta við
Kringlumýrarbraut og Miklu-
braut á næstu árum. Árni Þór
Sigurðsson, borgarfulltrúi R-
listans og formaður samgöngu-
nefndar, segir að Sundabrautin
verði sett í forgang.
„Við teljum að Sundabrautin
sé eitt brýnasta verkefnið í stór-
framkvæmdum á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Árni Þór. „Við
viljum tengja betur norður-
byggðir svæðisins við miðborg-
ina og Sundabrautin mun auð-
vitað létta álagið á Vesturlands-
veg og Miklubraut.“
Árni Þór segir borgaryfirvöld
telja skynsamlegra að sjá hvaða
áhrif Sundabrautin muni hafa á
gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar áður en
ráðist verði í kostnaðarsamar
framkvæmdir á þeim gatnamót-
um. Þriggja hæða gatnamót við
Miklubraut og Kringlumýrar-
braut kosti um þrjá milljarða
króna.
„Það þarf að skoða umferðar-
málin heildstætt en ekki bara
einstaka hnúta í umferðar-
kerfinu. Við vitum til dæmis ekki
hvaða áhrif mislæg gatnamót
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar myndu hafa við Löngu-
hlíð. Það getur verið að vandinn
myndi einfaldlega flytjast
þangað, sem gæti leitt til þess að
við þyrftum að leggja út í aðra
kostnaðarsama lausn á þeim
gatnamótum.“
Árni Þór segir
að undirbúning-
ur nýrrar Sunda-
brautar sé kom-
inn lengra á veg
en mislæg gatna-
mót Miklubraut-
ar og Kringlu-
mýrarbrautar.
„Sundabraut-
in er í umhverf-
ismati og það er
styttra í að það
liggi fyrir niður-
staða úr því mati en mati á um-
hverfisáhrifum mislægra gatna-
móta Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar. Ég tel að okkur
ætti ekki að vera neitt að van-
búnaði að taka ákvörðun um legu
Sundabrautar í vetur og hefjast
handa við hönnun á þeirri fram-
kvæmd.“
Árni Þór segir að kostnaður við
Sundabrautina sé um sjö til átta
milljarðar króna. Ef allt gangi að
óskum ætti hún að geta verið til-
búin eftir þrjú til fjögur ár. Að-
spurður segir Árni Þór að þar með
sé ekki sagt að ekkert verði að
gert á gatnamótum Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar. Hugsan-
lega verði gerð svokölluð plan-
gatnamót en þá eru sér ljós fyrir
alla beygjuásana.
trausti@frettabladid.is
„Satt best að segja þá veit ég það ekki.“
Eyjólfur Sverrisson er þjálfari íslenska ungmenna-
liðsins í knattspyrnu. Leikmenn liðsins hafa safnað
yfirvaraskeggi um hríð í von um að það hefði góð
áhrif á samheldni liðsins. Það gekk eins og í sögu
í síðustu viku þegar liðið vann sinn fyrsta leik í
langa hríð en í gær töpuðu þeir hins vegar fyrir
Ungverjum 1 - 0.
SPURNING DAGSINS
Eyjólfur, eru strákarnir búnir að raka
sig?
BORGARMÁL Sjálfstæðismenn í
borgarstjórn Reykjavíkur eru
ósáttir við þá ákvörðun R-listans
að setja Sundabrautina í forgang
og fresta gerð mislægra gatna-
móta við Miklubraut og Kringlu-
mýrarbraut um óákveðinn tíma.
„Þetta kemur mér ekki á óvart
því R-listinn hefur lengi verið
fjandsamlegur í garð mislægra
gatnamóta við Miklubraut og
Kringlumýrarbraut,“ segir
Kjartan Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, sem
situr í samgöngunefnd. „Ef þetta
verður reyndin er það afskaplega
slæm ákvörðun því hún hefur
áhrif á umferðaröryggi í borg-
inni.“
Kjartan segir að mislæg gatna-
mót á þessum stað hafi verið sett
inn í aðalskipulag þegar Sjálfstæð-
isflokkurinn var við völd árið 1993.
Minnihlutinn hafi ekki gert at-
hugasemdir við það en eftir að R-
listinn hafi komist valda árið 1994
hafi gatnamótin verið tekin út af
aðalskipulagi um tíma og nokkur
önnur mislæg gatnamót gerð í
borginni. Kjartan segir það í raun
ótrúlegt því gatnamót Miklubraut-
ar og Kringlumýrarbrautar séu
ein hættulegustu gatnamót lands-
ins ef ekki þau allra hættulegustu.
Kjartan segir sjálfstæðismenn
vera mjög hlynnta Sundabraut-
inni en þeir telji hins vegar af og
frá að seinka framkvæmdum við
mislæg gatnamót Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar vegna
hennar. Sundabrautin leysi ekki
þann vanda sem sé á þeim gatna-
mótum. ■
ÞRIGGJA MILLJARÐA GATNAMÓT
Borgaryfirvöld segja að þriggja hæða gatnamót við Miklubraut og Kringlumýrarbraut kosti
um þrjá milljarða króna.
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
Segir kostnað við
þriggja hæða
gatnamót um þrjá
milljarða króna.
Frestun á gerð mislægu gatnamótanna:
Sjálfstæðismenn
eru mjög ósáttir
KJARTAN MAGNÚSSON
Kjartan segir að verði framkvæmdum
seinkað hafi það slæm áhrif á umferðar-
öryggi í borginni.
GEIR H. HAARDE
Hefur lýst því yfir að tekjuskattur muni
lækka um áramót.
Fjármálaráðherra:
Boðar tekju-
skattslækkun
SKATTAR Geir H. Haarde, fjármála-
ráðherra tilkynnti í Kastljósi
Ríkissjónvarpsins að ákveðið hefði
verið að tekjuskattur lækkaði um
eitt prósentustig um áramót. Þetta
mun kosta ríkissjóð 4-5 milljarða í
tekjur samkvæmt upplýsingum
efnhagsdeildar Fjármálaráðuneyt-
isins. Engar breytingar verða
aftur á móti gerðar á persónuaf-
slætti.
Alþýðusambandið segir að flöt
lækkun komi sér misvel fyrir ólíka
tekjuhópa; hækkun persónuafslátt-
ar eða barnabóta komi sér betur
fyrir hina tekjuminni. „Eins pró-
sentustigs lækkun tekjuskatts þýð-
ir að skattbyrði lágtekjuhópa lækk-
ar hlutfallslega minnst en skatt-
byrði hátekjuhópa mest“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Alþýðusambands íslands. ■
ÞRJÚ TILFELLI Í VIÐBÓT Þrír sjúk-
lingar hafa greinst með her-
mannaveiki í Svíþjóð síðustu
daga. Þar með hafa komið upp
tólf tilfelli sjúkdómsins á viku og
hefur það aðeins gerst tvisvar að
fleiri hafi greinst með sjúkdóm-
inn í einu.
KLEPPSSPÍTALI
Lokuð geðdeild sem lengi hefur verið
beðið eftir, verður staðsett á Kleppi.
Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun:
Lokuð geðdeild verður á Kleppi
VIÐ ÖLLU BÚNIR
Sænsku blaðamennirnir skemmtu sér
konunglega þegar fyrirfólk úr fylgdarhópi
konungs fauk hvert um annað í verstu
hviðunum.
Konungsheimsókn:
Svíarnir við
öllu búnir
KONUNGSHEIMSÓKN Sænskir blaða-
menn sem fylgdu konungshjónum
sínum eftir um borg og bæ í gær
voru greinilega búnir undir ís-
lenskt veður og það kom sér vel að
Bessastöðum. Þar var hvasst, 10-
12 metrar á sekúndu, og rigning
þegar forseti Íslands tók móti
Karli konungi, Silvíu drottningu og
Viktoríu krónprinsessu. Voru
sænsku blaðamennirnir íklæddir
plasthlífum frá toppi til táar og
margir þeirra með regnhlífar í
kaupbæti. Þeim lærðist þó fljótt að
valsa ekki mikið um með þær þegar
verstu hviðurnar gengu yfir. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ NORÐURLÖND
MINNI FJÁRLAGAHALLI Halla-
rekstur ríkissjóðs Bandaríkjanna
í ár verður ekki jafn mikill og
menn bjuggust við. Hann verður
þó eftir sem áður sá mesti í sög-
unni, rúmlega 30.000 milljarðar
króna samkvæmt nýrri áætlun
fjárlagastofu Bandaríkjaþings.
■ BANDARÍKIN
VIÐSKIPTI Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrigrænna, hefur
farið fram á hluthafafund í Síman-
um vegna kaupa félagsins á hlut í
Skjá einum. Hann vísar í ákvæði í
samþykktum Símans þar sem segir
að bera skuli verulegar breytingar í
rekstri félagsins undir hluthafa-
fund. Steingrímur, sem á hlutabréf í
Landssímanum, segir að samkeppn-
isyfirvöld hafi gert Símanum að
halda rekstri Breiðvarpsins aðskild-
um frá öðrum rekstri félagsins. Þá
hafi verið gefin út yfirlýsing af
hálfu Símans um að félagið ætlaði
ekki að gerast fjölmiðlafyrirtæki.
Kaupin á Skjá einum séu því frá-
hvarf frá yfirlýstri stefnu. Stein-
grímur boðar að málið verði tekið til
umræðu á Alþingi. ■
Kaup Landssímans á Skjá einum:
Steingrímur J.
vill hluthafafund
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Vill að viðskipti Landssímans verði borin
undir hluthafa, enda séu þau fráhvarf frá
yfirlýstri stefnu félagsins.