Fréttablaðið - 08.09.2004, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 8. september 2004
LOS ANGELES, AP Baráttan um
völdin í einu þekktasta fyrirtæki
heims, Walt Disney fölmiðlaveld-
inu, er enn í fullum gangi. Roy
Disney, sonur Walts heitins, fer
fremstur í flokki fjárfesta sem
unnið hafa að því að steypa
Michael Eisner forstjóra úr stóli.
Á síðasta aðalfundi greiddu 45
prósent hlutafjáreigenda at-
kvæði gegn Eisner og fyrir vikið
vék hann úr sæti stjórnarfor-
manns þótt hann sé ennþá for-
stjóri. Í kjölfarið hefur félagið
gert miklar breytingar í rekstrin-
um og hefur hagnaður þess tvö-
faldast.
Þrátt fyrir þetta eru hinir óá-
nægðu fjárfestar ekki af baki
dottnir. Búist er við að önnur til-
raun verði gerð til að ná tökum á
stjórn félagsins á næsta aðal-
fundi en fram að því koma hinir
ósáttu hluthafar skoðunum
sínum á framfæri á heimasíðunni
savedisney.com. ■
BANDARÍKIN, AP Flugmenn hjá
bandaríska flugfélaginu US
Airways munu ekki greiða at-
kvæði um nýjan samning sem
stjórnendur félagsins buðu.
Fulltrúar flugmanna segja til-
boðið ekki koma til greina. US
Airways á í miklum fjárhagserfið-
leikum og er talið þurfa að spara
1,5 milljarða Bandaríkjadala (ríf-
lega hundrað milljarða króna) til
að geta haldið áfram rekstri.
Félagið gæti þurft að óska eftir
greiðslustöðvun á næstunni en að-
eins er eitt ár síðan félagið var
endurskipulagt í kjölfar greiðslu-
stöðvunar. United Airways hefur
óskað eftir því að flugmenn gefi
eftir átta hundruð milljónir dala
(tæplega sextíu milljarða króna)
af launakröfum sínum. ■
FLUGFÉLAG Í VANDA
Hlutabréf í US Airways-flugfélaginu í
Bandaríkjunum lækkuðu um níu prósent í
gær. Fulltrúar flugmanna félagsins neituðu
að láta kjósa um nýjan kjarasamning sem
stjórnendur höfðu lagt til.
ANDRÉS OG MICHAEL Á MEÐAN
ALLT LÉK Í LYNDI
Óánægðir hluthafar í Disney hafa lengi
reynt að velta Michael Eisner úr forstjóra-
stóli.
Disney fyrirtækið:
Hart barist um völdin
United Airways:
Neita að semja